Alexander Stefánsson:
Herra forseti. Ég vil í upphafi máls míns taka undir með hv. 1. þm. Suðurl. að það er mjög ámælisvert í raun og veru að ekki skuli hafa farið fram eða a.m.k. beðið eftir heildarendurskoðun á húsnæðismálum til framtíðar þar sem þessir meginþættir skipta augljóslega mestu máli, þ.e. séreignakerfið og verkamannabústaðakerfið. Hægt sé þannig að átta sig á því í gegnum þá endurskoðun hvað væri eðlilegast að gera með tilliti til reynslu annarra þjóða og einnig það sem við þurfum að gera til lengri tíma. Ég tek undir þetta sjónarmið enda er það sú stefna sem við í Framsfl. höfum viljað framfylgja og höfum lagt til.
Hins vegar er það annað mál og vissulega umhugsunarefni hvers vegna þarf að taka hvert einstakt tilefni út úr í hvert skipti áður en það kerfi sem menn búa við er búið að sýna hvað það megnar með ákveðnum lagfæringum sem ég vil koma aðeins að síðar. Mér finnst það vissulega umhugsunarefni, ég vil segja það beint út að það er undrunarefni, hvers vegna það ástand þarf að skapast að núv. hæstv. félmrh. þarf ávallt að beita afbrigðilegum aðferðum þegar hann leggur fram breytingar á húsnæðiskerfinu. Hæstv. ráðherra setur samráðherra sína í ríkisstjórn upp við vegg, bæði í fyrrv. ríkisstjórn og núv. ríkisstjórn, gerir verkfall í ríkisstjórninni og hótar útgöngu úr henni og neitar að taka tillit til samstarfsflokka í samsteypustjórn ef hann fái ekki sín mál afgreidd strax samkvæmt sinni framsetningu. Er þetta lýðræði? Eru þetta eðlilegar samskiptareglur? Það væri fróðlegt að vita hvaða nafngift er hægt að gefa slíkum aðferðum. Ég verð að segja það alveg eins og er að við meðferð þessa máls hefur virst sem við framsóknarmenn séum eitthvað sérstaklega erfiðir. Sannleikurinn er hins vegar sá að það hefur ekki verið rætt við framsóknarmenn á eðlilegan hátt í sambandi við þetta mál fyrr en núna á síðustu stigum og það gerir málið miklu erfiðara og stangast á við þá stefnu sem flokkurinn fylgir.
Herra forseti. Ég vil í upphafi máls míns lýsa andstöðu við þetta frv. Ég tel kaflann um húsbréfin tímaskekkju og settan fram í þeim tilgangi sem lýst er í forustugrein Alþýðublaðsins: ,,Breytingin felur í sér að núverandi húsnæðiskerfi verði fellt niður og svonefnt húsbréfakerfi komi í staðinn.`` Ég tel að hlutverk Húsnæðisstofnunar við þessar aðstæður verði lamað og fasteignasalar og verðbréfamarkaðurinn, svo burðugur sem hann nú er, taki við. Það koma markaðsvextir að sjálfsögðu á öll lán og einstaklingarnir verða háðir sveiflum verðbréfamarkaðarins og þetta mun auka á þenslu og auka stórlega fjármagn til húsnæðiskerfisins. Þeir sem búa við bestu aðstöðuna, stórar húseignir, munu ganga fyrir og græða á öllu saman. Þeir sem húsnæðiskerfið á að vernda munu aftur á móti tapa. Ég þarf ekki að rökstyðja þessa skoðun mína hér og nú öllu nánar. Það þarf ekki annað en að lesa greinar sem birst hafa í fjölmiðlum undanfarið og sanna þetta. Ég vil benda mönnum sérstaklega á grein eftir Pétur Blöndal sem
skrifaði um þetta mál með opinskáum huga fyrir nokkru og sýndi fram á hvernig þetta muni virka. Þetta er sú mynd sem mér finnst blasa við og jafnframt er alveg ljóst að enginn hefur fært fram sannfærandi rök um hvaða áhrif þetta húsbréfakerfi muni hafa eins og okkar efnahags- og peningakerfi er í dag. Þess vegna tel ég þetta tímaskekkju.
Hins vegar er ég alveg jákvæður fyrir því og tel það sjálfsagt að ræða nýtt húsnæðismálakerfi í heild eins og hv. 1. þm. Suðurl. var að tala um áðan. Við erum þar alveg nákvæmlega á sömu skoðun. Ég tel hins vegar sjálfsagðan hlut að núverandi kerfi, sem var komið á með víðtæku samkomulagi við aðila vinnumarkaðarins, fái aðlögunartíma eins og gert var ráð fyrir til að virka og gerðar verði á því nauðsynlegar breytingar sem bæði eru fyrir hendi í núgildandi lögum, en hefur ekki verið framfylgt, og einnig í sambandi við það sem m.a. kemur fram í þessu frv. að öðru leyti en um húsbréfin. Mér finnst það alveg sjálfsagður hlutur, en ég tel mig hafa fullgild rök fyrir því að slíka endurskoðun sé eðlilegt að gera í samráði við aðila vinnumarkaðarins sem ráða yfir því fjármagni sem rennur til húsnæðismála og er af þeirri stærðargráðu sem hér hefur komið fram eða um 11--12 milljarða kr. á ári.
Ég verð að segja það alveg eins og er að mér finnst svolítið broslegt að það skuli koma fram núna í rökum þeirra sem vilja kollvarpa því kerfi sem við búum við að það fari allt of mikið fjármagn til húsnæðismála á Íslandi, menn fái allt of stór lán og allt of mikið til þess að koma upp eigin húsnæði. Síðan er borið saman við Noreg og talið að þar sé þetta nú eitthvað annað. Þar séu ekki veittir nema 2,6 eða 2,7 milljarðar í kerfið á móti 5--6 milljörðum á Íslandi. Þetta er alrangt. Það vita allir að í norska kerfinu er lánað til húsnæðismála mörgum sinnum hærri upphæð en hér á Íslandi þó að við miðum við allan markaðinn sem er um 18--20 milljarðar hér á landi. Peningakerfið í Noregi er í jafnvægi og það getur hvaða maður sem hefur eitthvert eigið fé gengið í banka af götunni og lagt þar sín mál inn til meðferðar og fengið mat á því hvort hann er fær um að byggja miðað við það fjármagn sem hann hefur og þau lán sem hann biður um. Þetta er ekki til hjá okkur því miður. Vegna hvers? Vegna þess að við höfum aldrei fengið aðstöðu eða e.t.v. frið til þess að byggja upp
kerfi sem getur samrýmst öðrum möguleikum sem eru í banka- og peningakerfinu á Íslandi. Það hefur aldrei fengist tóm til að tengja þetta saman. Þar kem ég aftur inn á það sem hv. 1. þm. Suðurl. sagði í upphafi. Auðvitað þarf einhvern tíma að fá samstillingu um að leita að þessum leiðum, ekki sífellt að koma með innskot á hverju einasta ári til að breyta því sem við höfum án þess að það stefni að framtíðarlausn. Þetta er eitt það erfiðasta sem við er að eiga í þessum málum jafnframt því að við getum náttúrlega tekið undir að á Íslandi hefur okkur sem betur fer tekist að koma upp húsnæði sem er jafnvel betra en það sem er með nágrannaþjóðum. En við
þurfum einhvern tíma að leita að varanlegri lausn.
Ég get sagt það aftur að ég tel að það sé sjálfsagt að leita uppi þessar breytingar og að aðilar vinnumarkaðarins, bæði atvinnurekendur og launþegar, eigi þarna hlut að máli. Ég er hins vegar algerlega andvígur hæstv. félmrh. sem vill ekki viðurkenna gildi þess að aðilar vinnumarkaðarins séu meðvirkir um húsnæðiskerfi þjóðarinnar. Ég held að það sé mjög alvarlegt umhugsunarefni í sjálfu sér. Auðvitað gerist ekkert í þessum málum á Íslandi miðað við kerfi sem við höfum byggt upp í sambandi við lífeyrissjóði og annað nema þessir aðilar séu með og séu fullvirkir.
Það er alveg ljóst að í núgildandi lögum eru ýmis ákvæði ef þeim er beitt að fullu til að þrengja aðgengi að lánum til þeirra sem eiga fullnægjandi húsnæði fyrir. Eins og ég sagði áðan er sjálfsagt að setja ákvæði í lög sem koma í veg fyrir misnotkun á kerfinu. En ég vil taka fram að ég hef farið talsvert ofan í það að núverandi kerfi er á góðri leið með að ná því jafnvægi sem að var stefnt með setningu laganna. Ég get alveg vitnað, þó að ég ætli ekki að tefja tímann hér, í formann þeirrar nefndar sem samdi þau lög, Hallgrím Snorrason, sem gerði ráð fyrir því að 200--250 umsóknir á mánuði væri það sem teldist jafnvægi í þessum málum. Miðað við þær upplýsingar sem ég hef úr húsnæðiskerfinu er þetta ekkert langt frá því að vera að nálgast og með meiri þrengingu er augljóst hvert stefnir. Þar komum við líka að öðrum þætti sem hver ríkisstjórn hefur í hendi sér án lagabreytinga og hæstv. núv. félmrh. er búinn að hafa í hendi sér þau ár sem hann hefur setið í ríkisstjórn, þ.e. að hægt er að breyta þessu ákvæði á einum degi annaðhvort með því að hafa mismunandi vexti eða hækka vextina eins og lög gera ráð fyrir því þeir eru ekki bundnir.
Mér finnst ástæða til að koma því að í þessari umræðu að því hefur verið haldið fram með mjög þungri gagnrýni á núverandi kerfi að það fari allt of stór hluti af fjármunum Byggingarsjóðs ríkisins til kaupa á notuðu húsnæði eða 50--60%. En hafa menn nokkurn tíma fengið raunverulegar upplýsingar um það hverjir það eru sem njóta þessara kjara og þessara lánveitinga í kerfinu eins og það er í dag? Hefur það nokkurn tíma komið fram opinberlega? Ég hef fullar sannanir fyrir því að stærri hluti af þessum 50--60% er unga fólkið. Það er unga fólkið sem vill frekar kaupa notað húsnæði en fara út í byggingar. Ég er ekkert frá því að það væri ástæða til að óska eftir því að á þessu verði gerð fullkomin úttekt. Sjálfsagt er það rétt, sem hv. 1. þm. Suðurl. sagði áðan, að ýmsar þær ráðstafanir sem ríkisstjórnin hefur gert í sambandi við hækkun á byggingarefni og annað slíkt eru auðvitað einn þátturinn í því að unga fólkið vill í auknum mæli frekar fá að kaupa notað húsnæði. Ég vil í leiðinni benda á að einmitt þetta ákvæði í lögum, sem aðilar vinnumarkaðarins óskuðu eftir að yrði sett þar sem gert var ráð fyrir svo mikilli hækkun á lánum til kaupa á notuðu húsnæði, kunni að hafa unnið á jákvæðan hátt sem húsnýtingarstefna í sambandi við húsnæði sem fyrir er á Íslandi.
Ég er þess fullviss að ef menn hafa fylgst með þróuninni t.d. hérna í vesturbænum í Reykjavík síðan þessi lög voru sett sjái þeir að hún er lýsandi dæmi um hið jákvæða hvað þetta varðar. Ég hef búið í vesturbænum og fyrir nokkrum árum var ástandið þar þannig að þar fækkaði íbúum sífellt á þessu svæði. Það voru kannski ein eða tvær manneskjur í hverri íbúð. Núna er þar iðandi líf, ungt fólk og fullt af börnum og krafa um að Reykjavíkurborg flýti byggingu grunnskóla o.s.frv. vegna þess að allt húsnæði er þar yfirfullt af ungu fólki. Þetta er jákvætt. Ég held því að í umræðunni um þetta sé rétt að það sé litið á þetta atriði þegar menn eru að gagnrýna að svo mikill hluti af lánum í núverandi kerfi fari til kaupa eða skipta á notuðu húsnæði. Það er ekki bara brask. Það er hrein staðreynd. Fólk sem skiptir og kaupir notað húsnæði er ekki í hópi þeirra óverðugu sem sumir vilja halda fram að njóti þessara stóru lána. Ég undirstrika að þetta er frekar jákvætt en hitt og um leið leiðrétta þær óraunhæfu fullyrðingar að verið sé að moka út fjármagni til fólks sem hefur ekkert með það að gera. Hins vegar getur verið eðlilegt að það sé skoðað, og það er bæði hægt samkvæmt núgildandi lögum og það er hægt með þeim breytingum sem hér koma fram, að takmarka lán til þeirra sem eiga örugglega fullnægjandi íbúðarhúsnæði miðað við fjölskyldustærð og allt það þannig að það megi setja takmarkanir á þetta. Við skulum bara gæta að því að það er heilbrigð stefna að nýta það húsnæði sem fyrir er, ekki síst með tilliti til þess að byggingar á Íslandi eru yfirleitt traustar og vel gerðar
og ekki síst þessi tegund af húsum.
Ég hefði gjarnan viljað fara nokkuð ofan í þann þátt í áróðri gegn núverandi kerfi sem byggist á því að svo og svo margar þúsundir séu á biðlista sem orðinn sé til þriggja ára. Ég hef ýmsar upplýsingar um þetta og held að það væri nauðsynlegt, og ég mun leggja það til í þeirri þingnefnd sem fær þetta frv. til meðferðar, að það verði farið ofan í þetta og rannsakað hvort þessar tölur eru raunhæfar eða ekki. Ég er ansi hræddur um að það komi margt skrýtið þar í ljós. Það hefur þannig verið haldið uppi þeim áróðri að 17.000 umsóknir, eða hvað það er, 10.000 séu eftir óafgreiddar o.s.frv. þó að það sé búið að afgreiða af þessum 10.000 nú þegar 3000 umsækjendur sem fá lán á þessu ári. Þetta fólk er vissulega ánægt með sinn hlut. Eftir þeim upplýsingum sem ég hef frá innviðum Húsnæðisstofnunarinnar er alveg ljóst að með þeim breytingum sem hægt væri að gera á þessu kerfi væri hægt að stytta þennan svokallaða biðtíma í 1*y1/2*y--2 ár. Það er enginn vafi á því. En það hefur bara engin nákvæm athugun farið fram á vegum þess opinbera um þessi mál og Húsnæðisstofnun hefur alls ekki verið falið að leggja fram nákvæmar upplýsingar hvað þetta varðar. Það hefur varla verið farið í gegnum þessar umsóknir öðruvísi en að númera þær í tölvu.
Ég vil aðeins í þessu sambandi koma inn á annan þátt sem raunverulega tengist því sem hv. 1. þm.
Suðurl. sagði einnig, þ.e. nauðsynina á alhliða endurskoðun á þessu kerfi og hvaða stefnu við eigum að taka til frambúðar. Það hefur engin nákvæm áætlun verið gerð um raunverulega þörf hér á landi fyrir nýbyggingar íbúðarhúsnæðis. Hún hefur ekki farið fram. Það hafa verið gerðar nokkrar skoðanakannanir og ég undirstrika að þar er um að ræða allt húsnæði, bæði einkahúsnæði og eins félagslegt húsnæði. Það hefur ekki verið gerð nein slík könnun. Það hafa verið gerðar kannanir á vegum félagsvísindadeildar Háskólans sem eru byggðar á tiltölulega litlu úrtaki um eins konar óskalista o.s.frv. og ég er ekkert að gera lítið úr því nema síður sé. En nákvæm könnun byggð á víðtækri rannsókn á íbúðaþörf landsmanna þar sem sérstaða landsbyggðar er einnig tekin inn í dæmið hefur ekki farið fram. Ég tel að áður en nýjar breytingar í húsnæðiskerfinu séu lögfestar þurfi slík rannsókn að liggja fyrir. Þetta gera allar þjóðir í kringum okkur. Það eru alveg hreinar línur. Ef menn vilja sækja til þeirra eitthvað í þessum málum er þarna a.m.k. verðugt verkefni til að byggja á framtíðina. Það hefur ekki verið gert.
Við getum tekið upp nýtt kerfi. Við getum tekið upp húsbankakerfi eins og í Noregi sem ég viðurkenni að ég varð svolítið skotinn í þegar ég var í ráðherrastóli og lét útvega þau lög og ýmsar athugasemdir sem gerðar hafa verið við þau. Ég mundi ekkert hafa á móti því. Eða hvort menn vilja setja upp húsbréf eða eitthvað þess háttar og tengja það almenna peningakerfinu á Íslandi. En við þurfum bara góðan tíma í þetta. Það skiptir vissulega miklu máli að mínu mati fyrir okkar þjóðfélagsuppbyggingu til framtíðar að það sé vandað sem verið er að ákveða til breytinga í þessum málum. Það vil ég sérstaklega undirstrika. Þetta hefur vantað. Menn rjúka upp til handa og fóta og taka einhvern einn þátt út úr og sækja með offorsi að fá það í gegn án þess að það sé sett í samhengi við það heildarkerfi sem við þurfum að hafa í þessum mikilvæga uppbyggingarþætti hér á landi til framtíðar. Það vil ég átelja og ég tel tíma til kominn að menn taki höndum saman um þetta atriði. Það er e.t.v. einmitt þetta sem hefur gert að verkum að a.m.k. sumir í þingflokki Framsfl. hafa viljað flýta sér hægt í þessu máli, ekki að það séu nein hrossakaup þarna frá okkar hálfu. Ég kannast ekki við það. Þær breytingar sem hæstv. ráðherra kann að hafa gert á þessu frv. eru ekki frá okkur komnar nema mjög lítilfjörlegt í einhverjum bráðabirgðaákvæðum. Það var ekki tekið tillit til þeirra skilyrða sem komu fram í okkar þingflokki í sambandi við þetta mál.
Ég vil segja það, herra forseti, að það er þess vegna ekkert óeðlilegt að þingmenn Framsfl. hafi, eins og fram hefur komið, óbundnar hendur gagnvart frv. á þskj. 626. Ég tel í þessu sambandi nauðsynlegt að vitna til stefnu flokksins eins og hv. 1. þm. Suðurl. var að vitna í flokksráð Sjálfstfl. Það vill svo til að æðsta stofnun Framsfl., 20. flokksþingið sem haldið var 18.--20. nóv. sl., markaði ákveðna stefnu í þessum málum. Ég vil, með leyfi hæstv. forseta, fá að rifja þessa samþykkt nokkuð upp. Mér finnst það vel við
hæfi þegar við erum að ræða almennt um húsnæðiskerfið:
,,Flokksþing framsóknarmanna telur að með setningu gildandi laga um húsnæðismál frá árinu 1986 hafi verið tekið eitt stærsta skref í framfaraátt í húsnæðismálum landsmanna til þessa. Með samvinnu stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins voru lánveitingar til almennra íbúðakaupa hækkaðar úr tæpum 20% í 70% af kostnaðarverði meðalíbúðar auk þess sem lánstíminn var lengdur og 55% af ráðstöfunarfé lífeyrissjóðanna veitt inn í húsnæðiskerfið. Flokksþingið leggur því áherslu á eftirfarandi:
Að búið verði áfram við núverandi húsnæðislöggjöf, gerðar verði breytingar í samvinnu við aðila vinnumarkaðarins sem hefðu það markmið að stytta biðtíma eftir lánum.
Að tekið verði tillit til fjölskyldustærðar og eignarstöðu umsækjenda við
úthlutun lána.
Að vextir verði samræmdir almennum vöxtum á útlánum en vaxtabætur greiddar gegnum skattkerfið til hinna tekju- og eignaminni.
Að Húsnæðisstofnun verði heimilað að fjármagna hefðbundin útlán sín með almennu skuldabréfaútboði.
Að kannað verði hvort hægt sé að fá lífeyrissjóðina til að auka skuldabréfakaup umfram samninga.
Að ráðgjafarstöð Húsnæðisstofnunar ríkisins verði efld, komið verði upp í landshlutunum svo fljótt sem verða má ráðgjafar- og þjónustustöðvum fyrir húsbyggjendur.
Að lögin um félagslegar íbúðir verði tekin til endurskoðunar og haft verði samráð við almenningssamtök sem um þau mál fjalla.
Að í lög um Byggingarsjóð verkamanna verði sett heimild til tímabundinnar leigu á íbúðum í verkamannabústöðum.
Að sett verði lög um búseturéttaríbúðir í byggingarsamvinnufélögum.
Að stofnaður verði byggingarsjóður námsmanna sem hafi það hlutverk að fjármagna íbúðabyggingar fyrir samtök námsmanna.
Að leigjendum verði greiddir styrkir í samræmi við aðra húsnæðisaðstoð.
Að heimilað verði að geyma lánsrétt ef öll upphæð lána í núverandi kerfi er ekki tekin út.
Að lögð verði áhersla á nýjungar í byggingariðnaði er gætu leitt til aukinnar hagkvæmni og lækkunar byggingarkostnaðar. Í þessu skyni verði rannsóknir efldar og stuðlað að meiri samræmingu.``
Að sjálfsögðu, og því vænti ég að hv. þm. átti sig á, ber okkur þingmönnum flokksins að taka mið af samþykkt æðstu stofnunar hans sem markar stefnu í aðalatriðum.
Ég tel enn fremur rétt að lesa samþykkt Sambands ungra framsóknarmanna frá febrúar sl., með leyfi hæstv. forseta, en þessi samtök eru e.t.v. sá vaxtarbroddur sem er í hverjum stjórnmálaflokki og er sjálfsagt að taka tillit til þeirra, enda hafa þeir aðstöðu til að hafa mikil áhrif í okkar flokki. Þar stendur svo,
með leyfi forseta:
,,Vegna framkomins frv. frá félmrh. um breytingar á lögum um Húsnæðisstofnun ríkisins vill framkvæmdastjórn Sambands ungra framsóknarmanna minna þingflokk framsóknarmanna á samþykkt 20. flokksþings Framsfl. um húsnæðismál. Þar segir að búið verði áfram við núverandi húsnæðislöggjöf og gerðar verði breytingar í samvinnu við aðila vinnumarkaðarins sem hefðu það að markmiði að stytta biðtíma eftir lánum, að Húsnæðisstofnun verði heimilað að fjármagna hefðbundin útlán sín með almennu skuldabréfaútboði.
Það er álit framkvæmdastjórnar SUF að í frv. félmrh. séu lagðar til breytingar á núverandi lögum um Húsnæðisstofnun ríkisins sem stangast í grundvallaratriðum á við samþykkt flokksþingsins. Ef frv. nær fram að ganga mun sjálfvirkni útlána Húsnæðisstofnunar aukast og skuldabréfaútgáfa Húsnæðisstofnunar aukast verulega sem leiðir til þenslu á fjármagnsmarkaði og vaxtahækkana. Þá mun réttur þeirra sem nú njóta forgangs á húsnæðislánum hverfa í húsbréfakerfinu. Kollsteypur í reglum um útlán á fjármagni Húsnæðisstofnunar eru varasamar. Ef biðröð sú sem nú er eftir húsnæðislánum er raunhæf sem viðmiðun og allir þeir sem þar eru tækju lán mun hið nýja húsnæðiskerfi auka skuldabréfaútgáfu ríkisins verulega, auka eftirspurn íbúða og þar með hækka verð þeirra. Þetta mun óhjákvæmilega verða raunin ef loforð formælenda húsbréfakerfisins um verulega styttingu biðtíma eftir lánum standast.
Hófsöm og raunhæf lausn til jafnvægis í núverandi húsnæðislánakerfi er mörkuð í ályktun 20. flokksþings og frekar útfærð í séráliti Guðmundar Gylfa Guðmundssonar og Ásmundar Stefánssonar. Grundvallaratriði sem er ekki fært að víkja út frá við endurskoðun núverandi laga eru að áiti framkvæmdastjórnar SUF eftirfarandi:
1. Ákvæði um 55% af ráðstöfunarfé lífeyrissjóðanna verði óbreytt og fjármagninu ráðstafað eins og nú er.
2. Að Húsnæðisstofnun verði heimilað að fjármagna hefðbundin útlán sín með almennu skuldabréfaútboði.
Framkvæmdastjórn SUF álítur að óhætt sé að fallast á tilraun með húsbréfafyrirkomulag í takmörkuðum mæli til reynslu og komi slíkt fram í lögunum. Ekki er tímabært að koma á fót sérstakri húsbréfadeild í Húsnæðisstofnun. Þá er mikilvægt að húsbréf verði aðeins heimiluð í viðskiptum með eldri íbúðir.
Framkvæmdastjórn SUF skorar á þingmenn framsóknarmanna að hafna framkomnu frv. þar til tekið hefur verið tillit til grundvallaratriða ályktunar æðstu stofnunar Framsfl., flokksþingsins.``
Sérálit Guðmundar Gylfa Guðmundssonar og Ásmundar Stefánssonar, forseta ASÍ, er í niðurstöðu skýrslu nefndarstarfs um almennt húsnæðiskerfi sem allir hv. alþm. fengu í hendur og þarf því ekki að tíunda það frekar hér í umræðunni.
Þá vil ég víkja nokkuð að afstöðu þingflokksins, en
þetta mál var rætt m.a.
með öllum þeim aðilum og við alla þá aðila sem flokkurinn hefur falið framgang húsnæðismála á undanförnum árum og eru starfandi í því í dag.
Það er hægt að segja við þessar aðstæður að samkomulag um að fylgja óbreyttu frv. félmrh. varð ekki. Það var meiri andstaða gegn því í ýmsum stofnunum flokksins en jafnvel í þingflokknum sjálfum. Þess vegna var ákveðið að menn hefðu þar óbundnar hendur. Menn voru sammála um að það væri --- meiri hlutinn, skulum við segja, var sammála um að heimila tilraun á þessu sviði og mér þykir ástæða til vegna þeirrar umræðu sem hér hefur verið að geta þessa. Það voru engin hrossakaup. Það voru bara ákveðnar tillögur. Þingflokkur framsóknarmenna telur óráð að hverfa frá núverandi húsnæðislánakerfi í megindráttum þar sem það stefnir í jafnvægisátt. Hins vegar telur þingflokkurinn rétt að gera tilraun með húsbréfakerfi til hliðar við núverandi kerfi og felur þingflokkurinn ráðherrum flokksins að vinna að húsbréfakerfinu með eftirfarandi skilyrði. Skilyrðið var að það varði aðeins um skipti á eldri íbúðum í fyrstu lotu og það væri takmarkað við ákveðna upphæð á ári, t.d. 500 millj. kr. Vextir verði ekki hærri en á ríkisskuldabréfum og þeir sem eru í biðröð gangi fyrir. Húsbréfadeildin verði inni í Húsnæðisstofnun eins og aðrar sérdeildir þar og tilraunin verði endurskoðuð að tveimur árum liðnum og kaupskyldu lífeyrissjóðanna verði breytt.
Þannig var samþykkt meiri hluta þingflokksins. Síðan var haldið áfram að semja gagnvart þeirri ósveigjanlegu fyrirstöðu sem virtist vera til að ná þessu máli fram eins og hér hefur komið fram áður. Niðurstaðan varð sú að ráðherrarnir sömdu um það í sambandi við skipti á eldri íbúðum að það yrði til eins árs. Vextir yrðu ekki hærri en á ríkisskuldabréfum og með tilliti til skattalegrar meðferðar, eins og þar stendur, yrði það samræmt og þeir sem eru í biðröðinni nú hafi forgang í sex mánuði. Tilraunin verði endurmetin, það stendur óbreytt, en í sambandi við þakið sem menn vilja leggja mikla áherslu á, þ.e. að þetta verði tilraun til að sjá hvernig hægt er að samræma þetta þeim peningamarkaði sem er hér á landi, var miðað við að það þak yrði þannig að 10% af fjármagni frá lífeyrissjóðunum verði heimilað til að gefa út húsbréf í þennan aðlögunartíma sem er það þak sem meiri hluti þingflokksins féllst á að yrði sett á til að átta sig á því hvaða gildi þetta kerfi kann að hafa ef gert verður að lögum.
Ég vil geta þess að það hefur ekki enn verið tekin afstaða til vaxtaþáttar þessara mála. Það er enn þá óafgreitt í þingflokknum. Þar er margt óupplýst, hvernig þær tillögur í viðkomandi frv. komi til með að virka í framkvæmd. Það er mjög nauðsynlegt að kanna það vandlega því að ef við erum með ákvæði í vaxtalögum sem sannanlega ekki koma að notum þeim sem mest þurfa þess með er þörf að átta sig á því hvaða breytingar þarf á því að gera. Þetta er atriði sem er ekki fullupplýst í því frv. sem fyrir liggur og
það er ekki búið að ganga frá því í þingflokknum, en ég sé samt sem áður að það er búið að dreifa þessu þskj. á borð í þingsalnum án þess að það sé afgreitt í okkar þingflokki.
Herra forseti. Ég endurtek það hér að kafla frv. um húsbréf, miðað við ástand peningamarkaðarins og efnahagsástandið í þjóðfélaginu, tel ég vera tímaskekkju og er þess vegna mótfallinn því atriði eins og það liggur fyrir hér. En ég undirstrika aftur nauðsyn þess að menn átti sig á stöðu þessara mála og taki höndum saman um það að gera alhliða úttekt á húsnæðiskerfinu í heild. Það er það sem hefur mest gildi fyrir meðferð þessa máls og ég undirstrika enn að það þarf að vera forgangsefni.
Ég á sæti í félmn. deildarinnar og ég mun beita mér fyrir víðtækri skoðun á þessu máli, rækilegri athugun, eins og stendur í samþykkt þingflokksins sem hljóðar svo, með leyfi forseta:
,,Þingflokkur framsóknarmanna heimilar framlagningu frv. til laga um húsnæðislánabréf í samræmi við ályktun þingflokksins frá 9. mars og samkomulag sem viðræðunefndir flokkanna hafa komist að. Málið þarfnast rækilegrar athugunar í þingnefndum og einstakir þingmenn hafa óbundnar hendur við afgreiðslu málsins.``
Það er einmitt þessi ,,rækilega athugun`` sem ég set innan gæsalappa. Frv. verður að sjálfsögðu sent út til ýmissa aðila í þjóðfélaginu sem málið varðar eins og venja er til um umdeild og vandasöm mál og ég vil fúslega lýsa því yfir að ég mun taka þátt í því að skoða þessi mál vandlega, en ég endurtek: Allar breytingar á núverandi kerfi miðað við þær aðstæður sem eru fyrir hendi í þjóðfélaginu í dag tel ég að sé ekki skynsamlegt að gera öðruvísi en í samráði við aðila vinnumarkaðarins. Bæði atvinnurekendur og launþegar koma þar inn í málið. Það vil ég gera að útgangspunkti og undirstrika að ég tel að við getum það ekki í þessari stöðu, en endurtek í þriðja sinn að heildarendurskoðun á húsnæðiskerfi á Íslandi er nauðsyn sem markar framtíðina í þessum málaflokki, en við þurfum ekki að fara fleiri kollsteypur meðan við höfum kerfi sem býr yfir nægu fjármagni.