Flm. (Guðmundur H. Garðarsson):
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir till. til þál. um vinnuvernd í verslun. Flm. eru Guðmundur H. Garðarsson, Danfríður Skarphéðinsdóttir, Halldór Blöndal og Kristín Einarsdóttir. Tillagan hljóðar sem hér segir:
,,Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að hefja undirbúning að setningu laga um vinnuvernd í verslunum.``
Ég vil, virðulegi forseti, gera nokkra grein fyrir þessu máli en þáltill. þessa efnis var lögð fram á síðasta þingi en náði ekki fram að ganga. Tillagan er því endurflutt í þeirri von að mál þetta fáist afgreitt á yfirstandandi þingi.
Óþarfi er að flytja langt mál með þessari tillögu. Það er alkunna að vinnuálag á verslunarfólk hefur aukist gífurlega á síðustu árum. Aukin velmegun og breytt viðhorf í viðskiptum hafa leitt til þess að opnunartími verslana hefur lengst til muna og er nú svo komið að í ýmsum stórmörkuðum getur daglegur vinnutími fólks verið allt að 12--14 klukkustundir 5 daga vikunnar. Þar við bætast 7--8 klukkustundir á laugardögum. Þess eru dæmi að vinnuvikan komist í 70--80 klukkustundir. Þetta er auðvitað algjörlega óviðunandi og þrátt fyrir ítarlegar viðræður á milli fulltrúa launþega og vinnuveitenda í verslunum hefur enn ekki tekist að ná viðunandi samkomulagi um tilhögun vinnutíma í þesari grein. Það má því segja að það stefni í fullkomið óefni ef ekkert verður að gert til að tryggja hag fólksins í þessum efnum.
Með þessari þáltill. er ekki stefnt að því að þrengja hag eða rekstrarstöðu verslunarfyrirtækja heldur lögð sú skylda á herðar Alþingi og ríkisstjórnar að tryggja að verslunarfólki verði ekki misboðið með of miklu vinnuálagi auk þess sem fjölskyldulífi þeirra er starfa við verslun verði ekki stefnt í voða vegna óeðlilega langs vínnutíma 6 daga vikunnar allt árið um kring.
Víða erlendis hafa farið fram miklar umræður um hliðstæð vandamál og hér er við að stríða. Þar hefur verið unnið að því m.a. að setja lög og gefa út reglugerðir sem eiga að veita verslunarfólki ákveðna vinnuvernd og á það sérstaklega við hjá hinum stóru mörkuðum í stórborgum nágrannaríkjanna. Samkvæmt því verður að teljast eðlilegt að Alþingi Íslendinga og ríkisstjórn komi til skjalanna m.a. með setningu laga sem fela í sér ákveðna vinnuvernd fyrir verslunarfólk jafnframt því sem kröfum nútímans um aukna þjónustu verði mætt með viðunandi hætti. Og það eru fordæmi fyrir því úr þingsögunni að lög svipaðrar gerðar séu sett hér á hinu háa Alþingi og nægir að vísa þar til vökulaganna svonefndu sem sett voru árið 1924.
Það kann e.t.v. að vekja nokkra furðu að lögð sé fram þáltill. um það að Alþingi komi við sögu í sambandi við þetta vandamál milli starfsfólks í verslunum og vinnuveitenda þess, sérstaklega á Stór-Reykjavíkursvæðinu, en því miður verður það að segjast eins og er að þrátt fyrir ítarlegar umræður, ekki aðeins nú heldur á síðustu árum og áratugum hefur ekki tekist að finna því viðunandi form hvernig
vinnutíma fólks í verslunum skuli háttað. Þess vegna vil ég, virðulegi forseti, leggja til að að lokinni þessari umræðu verði þessari till. vísað til félmn. og skjótrar afgreiðslu.