Danfríður Skarphéðinsdóttir:
Virðulegi forseti. Við fyrri umr. þessa máls í fyrra studdi ég þá hugmynd sem fram kemur í þeirri þáltill. sem hefur verið mælt fyrir núna fyrir hönd þingflokks Kvennalistans og ég vil enn og aftur lýsa stuðningi okkar við tillöguna, enda kemur hann fram á þingskjalinu þar sem tvær okkar eru meðflutningsmenn.
Eins og fram kemur í grg. hefur vinnuálag á verslunarfólk aukist til muna á síðustu árum og það sýndi sig í þeirri kjaradeilu sem stóð í fyrra að hún snerist að miklu leyti um vinnutímann sem í mörgum tilfellum er orðinn óhóflega langur og reyndar kominn út fyrir öll skynsemismörk í sumum tilvikum. Ég vil við þessa umræðu málsins nú aðeins minna á tvær tillögur sem þingkonur Kvennalistans hafa flutt og tengjast þessu máli.
Í fyrsta lagi fluttum við tillögu í fyrra um réttindi og skyldur fólks á vinnumarkaði en sú tillaga felst í því að lögð verði meiri áhersla en nú er á að fólk verði frætt um réttindi sín og skyldur. Þá lögðum við einnig fram tillögu í fyrra um eflingu kjararannsókna. Sú tillaga hefur nú verið lögð fram aftur af þingmönnum allra flokka og eftir því sem ég best veit hlotið mjög jákvæðar umsagnir, en hún felur í sér að kjararannsóknir verði gerðar áreiðanlegri en nú er, m.a. með því móti að á skattagögnum megi fá upplýsingar um vinnustundafjölda og starfsheiti starfsfólks. Það er reyndar mikið umhugsunar- og áhyggjuefni hversu stór hluti þjóðfélags okkar eiginlega gengur á yfirvinnunni.
Ég vil aðeins víkja að þeim hópi sem þetta þingmál fjallar einkum um, en það eru fastráðnir starfsmenn í verslunum. Eins og fram kemur í grg. eru konur þar stór hluti. Konur hafa farið út á vinnumarkaðinn í æ ríkari mæli á undanförnum árum, hvort sem þær óskuðu þess eður ei og það segir sig sjálft að þessi langi vinnutími kemur niður á heimilis- og fjölskyldulífi fólks.
Ég vildi með þessum örfáu orðum aðeins enn og aftur ítreka stuðning okkar kvennalistakvenna við þessa tillögu.