Flm. (Jón Helgason):
    Hæstv. forseti. Ég þakka fyrir þá umræðu sem hér hefur farið fram um þessa tillögu þó að þar hafi komið fram skiptar skoðanir.
    Það er rétt að það hefur ekki farið fram nein rannsókn á því hvaða hagkvæmni muni leiða af því að sameina þessi tvö fyrirtæki sem að meiri hluta eða öllu leyti eru í eigu ríkisins. Hins vegar, eins og hér kom reyndar fram í umræðunum, eru bæði með blandaða starfsemi, þ.e. Landsvirkjun bæði framleiðir orku og dreifir henni víða um landið þó að það sé á heildsölustigi og síðan selja Rafmagnsveitur ríkisins raforku bæði í heildsölu og smásölu. En mér finnst engan veginn víst, þó að skipulag hjá miklu fjölmennari og stærri þjóðum þar sem þetta er algerlega aðgreint sé talið heppilegra þar, að það eigi við hjá okkur.
    Ég reyndi í minni framsögu að gera grein fyrir aðaltilgangi þessarar þáltill., þ.e. orkujöfnun. Menn hafa gjarnan tekið undir það, eins og hér gerðu allir ræðumenn, að það sé sanngirnismál að jafna raforkuverðið. Þó hefur það ekki náðst. Kannski hefur það verið vegna þess, sem einnig kom fram í máli hv. 2. þm. Reykn., að menn hafa sagt: Það á að gera það einhvern veginn öðruvísi, en síðan hafa þessar ,,öðruvísileiðir`` ekki reynst fullnægjandi og ekki náð þessu markmiði.
    Það er rétt að 1983 var gerð nokkur skipulagsbreyting á þessum málum og þar töldu menn að væri verið að breyta til þannig að líklegt væri að þetta markmið næðist. Reynslan síðan hefur því miður sýnt að þetta er hvergi nærri fullnægjandi.
    Það sem ég vildi líka leggja áherslu á með þessari tillögu og mínu máli áðan er að mér finnst að hér þurfi að breyta hreinlega hugsunarhættinum, þannig að jöfnun orkuverðs sé ekki einhver ölmusa til þeirra sem nú búa við dýrara orkuverð. Mér finnst það eins og ég sagði 19. aldar nýlenduhugsunarháttur að telja að það sé við það búandi að íbúar annarra héraða en þar sem orkulindirnar eru eigi að hafa miklu lægra orkuverð. Leiðina til þess að ná þessu tel ég vera einfalda með þessari sameiningu. Hins vegar sé hægt að finna fleiri leiðir. En aðalatriðið er að mönnum finnist þetta svo sjálfsagt mál að þarna verði að gera breytingar á eins og kom fram í máli hv. 2. þm. Vesturl.
    Hv. 2. þm. Reykv. varaði við því að Alþingi yrði --- að mér skildist --- of vont við Landsvirkjun og þá sem þar eru minnihlutaaðilar. Þá mundu þeir óska þess að fyrirtækinu yrði skipt upp og taka sinn hlut út úr. En þá hlýtur að verða að gera upp dæmið hvað héruðin, þar sem orkunnar er aflað, eiga þá að fá mikið til sín. Það eru þessi miklu réttindi sem Landsvirkjun hefur, þ.e. orkuöflunarrétturinn. Ég skal ekkert segja um hvernig það dæmi yrði reiknað, en það hlýtur að verða að taka það til athugunar.
    Ég skal ekki fjölyrða frekar um þetta. Umræða um þetta hefur sem sagt þegar hafist og ég vonast til þess að hún haldi áfram og henni verði ekki lokið fyrr en að markmiði þessarar tillögu um orkujöfnun verður

náð. Það vil ég endurtaka að er aðalatriði tillögunnar. Ég vænti þess að menn sjái að ástandið eins og það er getur ekki gengið áfram. Það er okkur til vansa.