Frsm. fjh.- og viðskn. (Valgerður Sverrisdóttir):
Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nál. á þskj. 640 frá hv. fjh.- og viðskn. Nál. er um frv. til laga um eignarleigustarfsemi. Nefndin hefur athugað frv. og leggur til að það verði samþykkt með þeim breytingum sem á því voru gerðar í meðförum Nd. og þeirri brtt. sem birt er á sérstöku þskj., 641. Sú brtt. miðar að því að færa orðalag frv. til samræmis við orðalag í frv. til laga um verðbréfaviðskipti og verðbréfasjóði.
Þrír nefndarmanna, Eyjólfur Konráð Jónsson, Halldór Blöndal og Júlíus Sólnes, áskilja sér þó rétt til að flytja eða fylgja brtt. ef fram kunna að koma.
Eyjólfur Konráð Jónsson og Ragnar Óskarsson voru fjarverandi við lokaafgreiðslu frv.
Undir nál. rita, auk þeirrar sem hér stendur, Eiður Guðnason, Júlíus Sólnes, Halldór Blöndal og Jóhann Einvarðsson.