Eignarleigustarfsemi
Þriðjudaginn 21. mars 1989

     Danfríður Skarphéðinsdóttir:
    Virðulegi forseti. Þar sem álit Kvennalistans kemur ekki fram á því nál. sem rétt í þessu var mælt fyrir vil ég koma hér til að styðja þetta nál. og það frv. sem hér er til afgreiðslu. Það er nauðsynlegt að setja lög um þessa starfsemi sem hefur þróast án lagaramma og á stóran þátt í þenslu síðustu ára. Þó tel ég engan vafa á að hún hefur uppfyllt vissa þörf og því er nauðsynlegt að afmarka verksvið þessara umsvifamiklu fyrirtækja með lögum.