Eignarleigustarfsemi
Þriðjudaginn 21. mars 1989

     Júlíus Sólnes:
    Virðulegi forseti. Fyrir hönd okkar þingmanna Borgfl. í Ed. vil ég lýsa því yfir að við erum ánægðir með að að skuli vera komið fram frv. til laga um starfsemi eignarleigu. Ég held að það sé orðið mjög tímabært að þessi starfsemi verði sett í fastar skorður. Það hafa farið fram tilraunir með þetta undanfarin ár og komið upp ýmsir vankantar á rekstri fjármögnunarleiga og ýmislegt hefur komið upp sem hefur orkað tvímælis. Þess vegna var mjög knýjandi og nauðsynlegt að setja um þetta ákveðinn lagaramma.
    Við erum tiltölulega ánægðir með það frv. til laga sem hér liggur fyrir og höfum ekki séð ástæðu til að gera neinar sérstakar brtt. við frv. og munum styðja það eins og það liggur fyrir.