Frsm. 2. minni hl. fjh.- og viðskn. (Halldór Blöndal):
Herra forseti. Það er hið sama um þetta frv. að segja og um frv. um Seðlabanka Íslands að að því leyti sem í því felst efnisbreyting sem máli skiptir þá horfir hún til hins verra. En á hinn bóginn eru ýmsar greinar í frv. sem skipta svo sem engu máli og get ég þá sérstaklega tekið til 1. gr. þess.
Það var eftirtektarvert hvað Þórður Ólafsson hjá bankaeftirliti Seðlabanka Íslands sagði um það efni. Eftir honum er bókað á fundi fjh.- og viðskn. 16. febr. sl. að 1. gr. frv. sé ónauðsynleg að mati Þórðar Ólafssonar sem telur réttara að láta reyna á ákvæði núgildandi laga í stað þess að breyta þeim. Þá taldi Þórður Ólafsson að þessi grein kæmi af stað ákveðnu misræmi milli ríkisbanka og einkabanka. Þetta er mat Þórðar Ólafssonar. Ég tek það svo að það sé hans persónulega mat, en eigi að síður sýnir þessi afstaða hans hversu hæpin þessi grein er í raun og veru og skal ég ekki gera hana frekar að umræðuefni.
Hins vegar hlýt ég að gera mjög alvarlegar athugasemdir við þá breytingu sem hér er lagt til að gera við 4. mgr. 21. gr. laga um viðskiptabanka og vil þá víkja aftur að ummælum Þórðar Ólafssonar á fundi fjh.- og viðskn. en hann sagði, með leyfi hæstv. forseta, eins og það er bókað í fundargerðum fjh.- og viðskn.:
,,Þórður Ólafsson sagði 2. gr. frv. vera á skjön við almennt viðurkennt stjórnskipulag bankanna. Það væri ekkert í núgildandi lögum um viðskiptabanka sem hindraði bankaráð í að gera það sem frv. ætlaði því. Þórður Ólafsson taldi ljóst að bankaráð yrði að bóka ákvarðanir sínar um vexti og þjónustugjöld á öllum fundum sínum. Þórður Ólafsson vakti athygli á orðunum sambærileg og hliðstæðum í sömu grein sem hann sagði að hægt væri að túlka á marga vegu.`` Og lýkur þar með tilvitnun í ummæli Þórðar Ólafssonar.
Ég vil líka minna á það að í álitsgerð sem fjh.- og viðskn. barst frá Sambandi ísl. viðskiptabanka er mjög varað við 2. gr. efnislega og bent á það í fyrsta lagi, og var það talið eiga sérstaklega við um ríkisbankana, að bankaráðin þar gegndu eftirlitshlutverki en nauðsynlegt væri að gera sama greinarmun á bankastjórn og bankaráði í viðskiptabönkum eins og gert væri milli framkvæmdastjórnar og stjórnar í fyrirtækjum.
Ég hygg að það sé alveg ljóst að sú breyting sem hér er hlaupið í eigi sér pólitískar rætur en ekki bankalegar. Ég hygg að skýringin sé sú að hæstv. ríkisstjórn sé að reyna að herða tökin á fulltrúum sínum í bankaráðunum og á bak við þá skoðun sé sú ímyndun ríkisstjórnarinnar að einstakir bankaráðsmenn muni gera það af einhverjum persónulegum greiða við forsrh. að fórna hagsmunum bankanna gegn betri vitund fyrir einhverja ímyndaða stefnu ríkisstjórnarinnar í peninga- og vaxtamálum. Auðvitað hlýtur maður að verða að vona það í lengstu lög að einstakir bankaráðsmenn, þó svo þeir séu kjörnir af Alþfl., Framsfl. eða Alþb. í bankaráðin, bregðist ekki skyldum sínum og reyni að standa við þær kröfur sem
gera verður til slíkra manna er þeir taka á sig þau trúnaðarstörf sem því fylgir að vera í bankaráðum.
Ég er ekki í neinum vafa um það að meiri hlutinn nær sínu fram. Þessi breyting verður gerð á lögunum um viðskiptabanka til bölvunar, en auðvitað verður það fyrsta verk þess viðskrh. sem næstur tekur við því embætti að láta nema þetta brott á nýjan leik.
Þá segir í umsögn Sambands ísl. viðskiptabanka, með leyfi hæstv. forseta:
,,Auk þeirra breytinga á framkvæmdastjórn banka sem ákvæðið gerir ráð fyrir hefur það að geyma tillögu um að lögbinda þá viðmiðun sem bönkum verður heimilt að nota þegar þeir ákveða ávöxtunarkröfu sína gagnvart viðskiptavíxlum og viðskiptaskuldbréfum. Tillaga þessi er ekki rökstudd einu orði í athugasemdum, enda hefur hún augljósa galla.
Í fyrsta lagi er hér um að ræða þau verðbréf sem einmitt geta gengið kaupum og sölum á verðbréfamarkaði utan innlánsstofnana. Íhlutun um vexti banka af þessum bréfum með þeim hætti sem tillagan gerir ráð fyrir mun því vafalaust leiða til að kaup banka á bréfunum minnka. Það mun leiða til vaxandi framboðs þeirra á verðbréfamarkaði sem hefur í för með sér hækkandi ávöxtunarkröfu á markaðnum. Tillagan mun því ekki vernda seljendur viðskiptabréfa eins og stefnt virðist að.
Í öðru lagi gerir tillagan ekki ráð fyrir að mismunandi kostnaður fylgi hinum ýmsu flokkum útlána. Nafnverð einstakra viðskiptabréfa er yfirleitt lágt, en þau krefjast tiltölulega mikillar vinnu, bæði við kaupin sjálf og innheimtu. Þessar staðreyndir hljóta að endurspeglast í ávöxtunarkröfu bankanna en tillagan gerir einungis ráð fyrir að ávöxtunarkrafan sé sambærileg við almenn útlán bankanna í hliðstæðum áhættuflokkum.``
Þetta eru auðvitað skýr ummæli sem ég veit að hæstv. viðskipta- og bankamálaráðherra skilur, en ég vil líka koma því áleiðis að Samband ísl. viðskiptabanka gerði við það sérstaka athugasemd að ekki skyldi vera haft samráð við það áður en frv. var lagt fram og ég veit að í röðum viðskiptabankanna er mikil óánægja yfir því að meiri hl. fjh.- og viðskn.
skuli ekki gera neitt með þær athugasemdir sem frá viðskiptabönkunum hafa komið. Á síðustu árum hafa smátt og smátt verið að þróast hér frjáls verðbréfaviðskipti. Við vitum það að þegar verið er að kaupa slíka pappíra í bönkunum, þá kostar það oft mikla vinnu og fyrirhöfn og við vitum líka að bankarnir hafa á stundum getað haft góðan hagnað af slíkum viðskiptum við aðila sem e.t.v. eru ekki fastir viðskiptamenn bankanna. Þetta hefur með öðru valdið því að bankarnir ættu að geta haft vaxtamun minni en ella, þetta ætti að treysta rekstur þeirra, enda er það svo í öðrum löndum að einstakir bankar hafa heimildir til að stunda slíka starfsemi. Það fellur innan þess ramma sem kallað er venjuleg bankastarfsemi, venjuleg starfsemi viðskiptabanka, og er auðvitað algjörlega út í hött ef það er stefna hæstv. viðskrh. að gera bankastarfsemi hér nútímalegri eins og hann
hafði orð á áðan að hann vildi gera til lengri tíma litið. Þá vildi hann að bankastarfsemin yrði frjálsari og lík því sem gerist erlendis. Ef hann á annað borð stefnir að því, þá er óþarfi að ganga nú skref í hina áttina til að byrja með. Ég vil því mjög skora á hæstv. viðskrh. að láta nú betri manninn ráða ferðinni í þessu efni og kalla þessa tillögu til baka vegna þess að ég efast ekki um að honum er betur kunnugt um það en mér að þessi nýja regla mun ekki valda því að verðbréfaviðskipti hér verði heilbrigðari en nú er, hún mun ekki leiða til þess að bankastarfsemi verði heilbrigðari en nú er og hún mun ekki leiða til þess að um meiri hagkvæmni verði yfir höfuð að tala í bankarekstrinum.
Það getur verið gott og blessað að tönnlast alltaf á því að sameina banka, sameina banka, sameina banka og sameina banka. En það er ekki sama hvernig bankar eru sameinaðir. Hæstv. viðskrh. veit vel um það, t.d. eru dæmi um það a.m.k. frá Danmörku og ugglaust víðar, að sameining banka getur þvert á móti haft hinar hörmulegustu afleiðingar og á barnabókamáli er það kallað gúmmí-Tarsan þegar tveir viðskiptabankar eru gerðir að einum stórum til bölvunar og svo er enginn kraftur í honum þannig að það þýðir ekki að tala bara svona. Aðalatriðið er að reyna hvarvetna og með öllum hætti að styrkja og greiða fyrir eðlilegri rekstrarafkomu og eðlilegum rekstrargrundvelli bankanna.
Um síðari mgr. 2. gr., að þær reglur sem bankaráð setji um lánveitingar og ábyrgðir og hámark lána til einstakra lántakenda og trygginga fyrir lánum skuli endurskoðaðar árlega, er svo sem allt í lagi. Það er til bóta. Það liggur ekkert á því að setja það í lög, en það er ágætt. Ég hygg að slíkar reglur séu hvort sem er endurskoðaðar árlega og ekkert því til fyrirstöðu að það sé gert, en það gefur ekki tilefni til sérstaks frumvarpsflutnings. Þetta er aðhald sem bankaeftirlitið getur veitt bönkunum og þarf ekki lagaheimild til.
Í sambandi við 3. gr. er það eitt að segja að í fyrsta lagi er það svo a.m.k. í ríkisbönkum að bankaráðsmenn taka ekki þátt í meðferð máls er varðar viðskipti þeirra sjálfra eða fyrirtækja sem þeir eiga hlut í. Þeir taka yfirleitt ekki ákvarðanir um lánveitingar, en auðvitað er það sjálfgert í viðskiptabönkunum að hvorki bankastjóri né bankaráðsmenn taki þátt í slíku, hefur ekki verið gert. Þessi grein eins og hún er núna er fullnægjandi og svo sem ekki neitt um þetta að segja.
Um 4. gr. er það að segja að bankaeftirlitið taldi nauðsynlegt að skoða fleiri atriði í löggjöfinni um viðskiptabanka sem snerta ríkisendurskoðun en þau sem tilgreind eru í 4. gr. frv. og hið sama telur Samband ísl. viðskiptabanka þannig að þar er kastað höndunum til verksins og ástæðulaust að stíga það skref að hálfu leyti.
5. gr. fjallar um aðlögunarfrestinn. Hann rennur senn út og sú grein skiptir svo sem engu máli.
Af þeirri stuttu umfjöllun sem ég hef haft um þetta frv. liggur m.ö.o. ljóst fyrir að ég er sammála bankaeftirlitinu um það að 1. gr. frv. sé óþörf. Ég er
sammála bankaeftirlitinu um það að 4. gr. segir hálfa sögu og sé þess vegna kannski einfaldast að fella hana niður. 3. gr. má vel standa í lögum. Það er ekkert á móti því og ekkert sem mælir sérstaklega með því heldur. Þetta eru svona sjálfsagðir hlutir. 2. mgr. 2. gr. er líka sjálfsagðir hlutir og ekkert við það að athuga. Bankaeftirlitið getur komið þessu við án lagabreytingar. Spurningin er því einungis um 1. mgr. 2. gr. Það er það eina efnisatriði í þessu frv. sem máli skiptir, eina efnisatriðið. Og um það er það að segja að Samband ísl. viðskiptabanka telur þá grein í beinni andstöðu við nútímastjórnunaraðferðir og talar sérstaklega um eftirlitshlutverk bankaráða ríkisbankanna í því sambandi og viðtekna verkaskiptingu stjórna og framkvæmdastjórna í stærri fyrirtækjum. En auðvitað þykist ég vita að hæstv. viðskrh. þurfi að reyna einhvern veginn að setja plástur á greinina úr því að hann er að bera þetta fram og ber það svo mjög fyrir brjósti. En hitt er alvarlegra að síðasti málsl. 1. mgr.: ,,Við umfjöllun um vexti eða kaupgengi viðskiptavíxla og viðskiptaskuldbréfa skal bankaráð gæta þess að ávöxtunarkrafa bankans sé sambærileg við ávöxtun almennra útlána bankans í hliðstæðum áhættuflokkum.`` leiðir beinlínis til þess að tiltekin viðskipti fara út úr bönkunum og á það sem sumir hafa kallað svartan markað, ég kalla
frjálsan markað. Og ef svo fer að hæstv. viðskrh. ætlar líka að fara að ákveða vextina í gegnum Seðlabankann á frjálsa markaðnum þá er komið að því að þessi bréf fara beint á skúmaskotamarkaðinn sem viðgekkst hér á landi þegar við báðir vorum litlir drengir og margar sögur voru frá sagðar.
Enn hefur hæstv. viðskrh. ekki svarað þeirri spurningu sem ég beindi til hans í sambandi við Seðlabankann. Að vísu þurfti ég að bregða mér aðeins frá vegna þess að maður að norðan átti erindi hér í húsið og hæstv. viðskrh. hefur e.t.v. svarað því meðan ég brá mér frá hvort hugsun hans sé sú að settar verði almennar reglur um það hvaða afföll eða hvaða ávöxtunarkröfu megi gera til þriðja manns pappíra. Ég vil í því sambandi vekja athygli á að Seðlabankinn er þeirrar skoðunar að um leið og settar eru ákveðnar reglur um það hver skuli vera hámarksafrakstur slíkra viðskipta, þá eru um leið settar reglur um hver skuli vera lágmarksafrakstur slíkra viðskipta því að almennar reglur af því tagi eiga jafnt við hvort sem við tölum um þriðja manns --- Nú sló ég sjálfan mig út af laginu og læt máli mínu lokið.