Viðskiptabankar
Þriðjudaginn 21. mars 1989

     Danfríður Skarphéðinsdóttir:
    Virðulegi forseti. Ég get lýst yfir stuðningi Kvennalistans við flestar greinar þessa frv. sem nú er til umræðu. En það er ein grein sem ég vil gera athugasemdir við og sem við getum ekki stutt og það er reyndar lykilgrein þessa frv., þ.e. 2. gr. Hér er horfið frá því að bankaráð marki einungis heildarstefnu í samráði við þá sem sjá um daglega stjórn bankans. Samkvæmt greininni skal bankaráð án undantekningar ákveða vexti og þjónustugjöld bankans. Ég tel eðlilegra að slíkar ákvarðanir séu í höndum þeirra sem sjá um daglegan rekstur bankanna, en í bankastjórnum sitja í flestum tilfellum menn með töluverða faglega þekkingu bæði hvað varðar innri mál og daglegan rekstur bankanna. Hlutverk bankaráða er hins vegar fyrst og fremst að gegna eftirlitshlutverki og móta heildarstefnu og fjalla um ýmsar hugmyndir og tillögur bankastjórnar.
    Hins vegar tel ég óhjákvæmilegt og hafa sýnt sig að stjórnvöld verði að hafa einhverja möguleika til að hafa áhrif á vaxtaákvarðanir ef þurfa þykir. Við höfum fyrr í dag fjallað um breytingar á seðlabankalögum og þar lýsti ég yfir stuðningi okkar kvennalistakvenna við heimild, sem fram kemur í 9. gr. seðlabankalaga, um að hægt sé af hálfu bankans að hafa áhrif á vaxtamyndun að fengnu samþykki ráðherra. Ég lít svo á að með þessu ákvæði geti stjórnvöld á hverjum tíma haft þau áhrif á vexti sem nauðsynleg þykja og séu ekki rök fyrir því að bankaráð grípi inn í með þeim hætti sem hér er til ætlast.
    Ég vildi aðeins lýsa þessari skoðun minni hér þar sem ég á ekki aðild að þeim nál. sem mælt hefur verið fyrir.