Danfríður Skarphéðinsdóttir:
Virðulegi forseti. Ég tel nauðsynlegt að leiðrétta í upphafi máls míns. Það hafa orðið smávægileg mistök við gerð nál. þar sem nafn mitt stendur þar undir um að ég sé samþykkt álitinu fyrir hönd Kvennalistans. Ég hef gert ráðstafanir til að leiðrétta þetta og væntanlega birtist þskj. þá aftur rétt.
En það gildir auðvitað hið sama um þetta frv. eins og hið fyrra. Þau ganga bæði út á sama málið. Lykilatriðið er þetta breytta fyrirkomulag um ákvarðanir um vexti og gjaldskrá og í þessu tilfelli gilda sömu rök og ég lýsti áðan við umfjöllun um frv. til l. um viðskiptabanka.
Ég tel þó líka rétt að taka fram að að sjálfsögðu er ég sammála þeim nauðsynlegu breytingum sem lagðar eru til vegna stjórnarkjörs í sparisjóðnum vegna breytts fyrirkomulags í sveitarfélögunum og sömuleiðis þær greinar sem ég tiltók að ég styddi áfram í frv. um viðskiptabanka. Það er aðeins greinin um vaxtaákvarðanir og gjaldskrár sem ég get ekki stutt. Eins og ég tók fram áðan er þetta reyndar lykilgreinin í báðum þessum frumvörpum.
Ég vildi að það kæmi örugglega skýrt fram hér að nafn mitt á ekki að standa á þessu nál.