Háskóli Íslands
Þriðjudaginn 21. mars 1989

     Frsm. minni hl. menntmn. (Halldór Blöndal):
    Herra forseti. Frv. það sem hér liggur fyrir felur í sér breytingu á þeim reglum sem gilt hafa um ráðningu við Háskóla Íslands. Nauðsynlegt er að þær reglur séu skýrar, séu líklegar til að forða ágreiningi og að tryggt sé að umsækjendur um störf við Háskóla Íslands fái réttláta meðferð. Draga verður í efa að frv. þetta tryggi þessi markmið.
    Nokkur fljótaskrift virðist vera á þessu frv., enda hefur meiri hl. nefndarinnar séð ástæðu til að flytja við það brtt. og menntmrh. hefur haft frumkvæði að því að meiri hl. nefndarinnar leggur til að það verði kveðið á um það með skýrum hætti að ráðherra hafi algert neitunarvald ef honum falla ekki í geð tillögur Háskóla Íslands um einstakar ráðningar. Minni hl. nefndarinnar getur ekki fallist á frv. eins og það liggur fyrir og flytur brtt. á sérstöku þskj.
    Fyrri brtt. er um það að dómnefndarmenn skuli eftir því sem við á uppfylla hin sérstöku dómaraskilyrði 36. gr. laga nr. 85/1936, um meðferð einkamála í héraði. Í þeirri grein er fjallað um hvenær dómari eigi að víkja úr dómarasæti. Þar er m.a. fjallað um sérstök tengsl við málsaðila, fyrri afskipti af máli, óvináttu við málsaðila og sérstaka hagsmuni. Dómnefndarmenn um hæfi umsækjenda hafa mikil völd. Mörg þeirra skipta viðkomandi umsækjendur mjög miklu máli og það er því grundvallaratriði að umsækjendur geti treyst óhlutdrægni þeirra. Til að tryggja hag umsækjenda að þessu leyti er þessi tillaga borin fram.
    Síðari brtt. felur í sér þá breytingu að ráðherra sé skylt að fylgja tillögu Háskóla Íslands ef *y2/3*y viðstaddra á deildarfundi mæla með ákveðnum umsækjanda, enda hafi dómnefnd dæmt hann hæfan. Á hinn bóginn er þá fellt niður neitunarvald ráðherra. Mörg dæmi eru þess að 1--2 atkvæði skilja að umsækjendur í atkvæðagreiðslum á deildarfundum. Virðist þá oft tilviljun ráða hver verður ofan á. Ófært er að hendur ráðherra séu bundnar í slíkum tilvikum. Eðlilegt er að þá sé matið lagt í hans hendur. Þess vegna er lagt til að aukinn meiri hluti þurfi að vera fyrir hendi, þ.e. að niðurstaða deildarfundar sé ótvíræð til að hendur ráðherra séu bundnar.
    Ef brtt. þessar ná ekki fram að ganga treystir minni hl. sér ekki til að samþykkja þetta frv.