Júlíus Sólnes:
Hæstv. forseti. Mér þykja málin hafa tekið alleinkennilega mynd á sig. Þ.e. við í stjórnarandstöðunni höfum verið samvinnuþýð um það að greiða hér fyrir þingstörfum og höfum fallist á það að vinna hér fram eftir kvöldi við að afgreiða þau mál sem lágu fyrir hv. þingdeild. Nú bregður svo einkennilega við að lánsfjárlögin, sem við höfum beðið eftir, hafa verið tekin út af dagskrá í Nd. Ég sé þá ekki annað en að það sé eðlilegast eins og nú horfir að fresta þingfundum fram yfir hátíðar. Þ.e. við komum hér aftur saman 3. apríl og hefjum þingstörf með eðlilegum hætti.
Hvað varðar lánsfjárlögin er ég þeirrar skoðunar að það skipti ekki nokkru máli hvort það næst að afgreiða þau í dag eða eftir páska, eða næsta haust, eða skömmu fyrir næstu jól. Því að lánsfjárlög eru eins og allir vita óskhyggja ein og þau eru best afgreidd eins seint á árinu og mögulegt er því að þá er von til þess að það sé eitthvert vit í þeim.