Pálmi Jónsson:
Herra forseti. Við 2. umr. gerði ég athugasemd við tillögu frá meiri hl. fjh.- og viðskn. Í fyrsta lagi athugasemd um það að texti þeirra tillagna væri óskýr og nauðsynlegt væri að vita hvað í þeim tillögum fælist þar sem talað var um að heimila það að fjmrh. í samráði við landbrh. og fjvn. Alþingis fengi heimild til að semja um uppgjör ógreiddra framlaga til jarðræktarframkvæmda á árinu 1988. Sambærileg brtt. fjallaði um ógreidd framlög vegna búfjárræktarlaga. Ég lagði þá til að tillögurnar væru kallaðar aftur og teknar til athugunar á milli umræðna. Á þetta var fallist og nú hefur hæstv. landbrh. flutt hér nýjar brtt. um þetta efni.
Ekki veit ég hvort hæstv. landbrh. hefur notað tímann vel milli umræðna og ókunnugt er mér um það hvort til að mynda formaður fjh.- og viðskn. þessarar hv. deildar hefur verið til kvaddur, þar sem hann var ekki hér við atkvæðagreiðslu og hann sést ekki hér enn í þingsalnum, en mér kemur ekki neitt á óvart það sem hæstv. landbrh. sagði í lok sinnar ræðu, að það kynnu að leynast í þessum tillögum prentvillur og ástæða gæti verið til að prenta þær upp einu sinni enn.
Þessar tillögur sem hæstv. landbrh. hefur nú mælt fyrir skýra málið að vísu lítillega. Sú hin fyrri er svohljóðandi, með leyfi hæstv. forseta:
,,Við 28. gr. bætist nýr málsliður er orðist svo: Þó er fjmrh. heimilt, að höfðu samráði við landbrh. og fjvn. Alþingis, að ganga frá uppgjöri og ákveða tilhögun greiðslna vegna ógreiddra framlaga ríkissjóðs til jarðræktarframlaga árið 1988 í framhaldi af afgreiðslu nýrra laga um greiðsluskyldu ríkissjóðs vegna slíkra framkvæmda.``
Sambærilegt orðalag er í hinni nýju brtt. við 29. gr. er varðar búfjárræktarframlög.
Þetta þýðir það, ef það er skýrt eins og orðanna hljóðan liggur fyrir --- og er nú enn dreift hér nýju uppkasti sem ég hef ekki enn lesið --- að efna á til samninga um uppgjör og tilhögun greiðslna á ógreiddum framlögum ríkisins vegna jarðræktarframkvæmda og búfjárræktarlaga sem bændur eiga samkvæmt lögum. En þetta er skilyrt, er háð því skilyrði að áður hafi verið sett ný jarðræktarlög og ný búfjárræktarlög sem væntanlega, ef ætla má af orðum hæstv. ráðherra, fela í sér skerta greiðsluskyldu ríkisins þessa vegna. Það sem sé felur í sér að það skal áður setja lög --- og enginn veit hvenær það verður gert --- og ekki hreyfa þessar greiðslur fyrr en ný lög hafa verið sett á hinu háa Alþingi. Með því er verið að setja þvingun á Alþingi og þvingun á þá sem vilja standa á rétti bænda í þessu máli.
Þetta fyrirkomulag, sem hæstv. ráðherra hefur hér mælt fyrir, er því þvingunarfyrirkomulag og með þessu móti á að þvinga þá, t.d. væntanlega einhverja hv. þm. Framsfl., sem kynnu að vilja standa á rétti bænda í þessu máli. Áður en farið væri að greiða það sem bændur eiga inni hjá ríkissjóði vegna þessara laga á að þvinga þá til að afgreiða ný lög sem fela í sér
skerta greiðsluskyldu ríkisins og minni rétt bænda. Þetta er það sem lesa má út úr hinni nýju tillögu hæstv. ráðherra. Vonandi er að í henni felist prentvillur eins og hæstv. ráðherra gaf í skyn og nú er rétt að ég lesi enn nýja útgáfu af þessari tillögu sem hér er komin og viti hvað kunni nú að felast í henni. Sú tillaga við 28. gr. hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:
,,Við 28. gr. bætist nýr málsl. er orðist svo:
Þó er fjmrh. heimilt, að höfðu samráði við landbrh. og fjvn. Alþingis, að ganga frá uppgjöri og ákveða tilhögun greiðslna vegna ógreiddra framlaga ríkissjóðs til jarðræktarframkvæmda árið 1988 í tengslum við afgreiðslu nýrra laga um greiðsluskyldu ríkissjóðs vegna slíkra framkvæmda.``
Þarna hefur því einu verið breytt að það er hér fengin heimild til að hefja greiðslur ógoldinna framlaga ríkisins í tengslum við nýja lagasetningu í stað, sem fyrri útgáfa sagði, í framhaldi af nýrri lagasetningu og munar þá ekki stórkostlega miklu þar frá. Þetta er eina breytingin á hinni síðustu útgáfu. Nú hlýt ég að mælast til þess, úr því að hér hefur á svo sem 7 eða 8 mínútum verið dreift tillögum af hálfu hæstv. landbrh. þar sem er verið að breyta tillögu meiri hl. fjh.- og viðskn. sem nauðsynlegt var að skýra a.m.k. og fá að vita hvað þýddi því að hún var svo óljóst orðuð, að þessari umræðu verði frestað og að hv. fjh. og viðskn. taki þetta mál til athugunar og að það sé ekki verið að kasta hverri vitleysunni á fætur annarri inn á borð hv. þm. og í miðri umræðu og það við 3. umr. og ætla sér síðan að afgreiða málið á þann máta eins og hér hefur verið lýst hvað þetta þýðir. Þetta eru þvingunarákvæði og ekkert annað. Ég hlýt að telja að geð þeirra hv. þm. sé næsta lítið í þessum þingsal og teljast til stjórnarliðsins sem vilja láta það yfir sig ganga að slík þvingunarákvæði séu sett við afgreiðslu lánsfjárlaga er varða allt annað og óskylt efni, þ.e. landbúnaðarlöggjöfina. Ég hlýt að undrast það vegna þess að ég veit að í þeim hópi eru þó menn sem vilja standa vörð um hagsmuni bændastéttarinnar í þessu máli. Ég undrast það ef það skal svo ganga fram að þeir láta sér það lynda að fá yfir sig slík þvingunarákvæði sem hæstv. landbrh. hefur hér mælt fyrir og mælir með að verði samþykkt.
Ég endurtek því þá eindregnu ósk mína og tillögu að umræðunni verði frestað og hv. fjh.- og viðskn. verði kölluð saman til fundar þar sem hún taki þetta mál fyrir að nýju. Það hlýtur að teljast hrein ósvífni, ég tek svo stórt til orða, að taka þetta mál upp og flytja um það nýja og allt aðra tillögu, þvingunartillögu, í fjarveru formanns fjh.- og viðskn. sem þó hafði flutt og mælt fyrir brtt. sem áður var á dagskrá hér, brtt. sem að vísu var þannig úr garði gerð að það var ómögulegt að skilja hvað þar var átt við. Þess vegna hlýt ég að fara þessa mjög eindregið á leit og verði það ekki gert beini ég máli mínu til þeirra hv. þm. sem hér kunna þó að vera og vilja ekki sætta sig við að á þá séu sett þvingunarákvæði í lánsfjárlögum, þvingunarákvæði sem tákna að þeir skuli gangast undir það jarðarmen að afgreiða nýja
löggjöf um jarðræktarlög, um búfjárræktarlög, sem er væntanlega í því formi að þrengja mjög hag bænda, áður en hægt væri að hugsa sér að greiða út þá peninga sem bændur eiga lögum samkvæmt. Þessu hlýt ég að beina ekki síst til hæstv. landbrh., en þó ekki síður þeirra annarra þingmanna stjórnarliðsins sem hér hirða þó um að vera við 3. umr. um lánsfjárlög.