Lánsfjárlög 1989
Þriðjudaginn 21. mars 1989

     Ingi Björn Albertsson:
    Hæstv. forseti. Ég leyfi mér sem fulltrúi í fjh.- og viðskn. Nd. að gagnrýna þá brtt. sem hér er fram sett jafnseint og raun ber vitni og leyfa mér að taka undir þá kröfu hv. þm. Pálma Jónssonar að umræðu verði nú þegar frestað og hv. fjh.- og viðskn. Nd. verði nú þegar kölluð saman.