Stjórnarfrumvarp um verðbréfaviðskipti
Þriðjudaginn 21. mars 1989

     Páll Pétursson:
    Herra forseti. Því miður hefur fjh.- og viðskn. deildarinnar ekki unnist tími til að athuga þetta mál enn þá og þess vegna verð ég að óska eftir því að enn verði dregin lokaafgreiðsla málsins þangað til nefndinni hefur unnist tími til að fara yfir það.