Þorsteinn Pálsson:
Herra forseti. Að vísu er það ekki gild afsökun að hv. fjh.- viðskn. skuli ekki hafa komið saman til fundar til að fjalla um þetta mál með því að formaður nefndarinnar bað sérstaklega um að nefndin fengi svigrúm til þess, en nú skilst mér að gera eigi hlé til þess að hv. nefnd geti komið saman til fundar og þá er sérstök ástæða til að óska eftir því að það hlé verði notað í þeim tilgangi að fjalla um þetta mál þannig að það verði hægt á síðari fundi hér að taka þetta mál til afgreiðslu.