Lánsfjárlög 1989
Þriðjudaginn 21. mars 1989

     Frsm. meiri hl. fjh.- og viðskh. (Páll Pétursson):
    Herra forseti. Fjh.- og viðskn. fjallaði um þetta mál á fundi sínum og við komumst að þeirri niðurstöðu, meiri hl. nefndarinnar, að rétt væri að halda sig við upphaflegar brtt. eins og þær eru á þskj. 637, blaði sem er merkt endurprentað upp. Þær brtt. sem fram höfðu komið og athugasemdir voru vegna þess að menn höfðu ekki verið viðstaddir umræðuna. Að sjálfsögðu var búið að taka það fram að þessi afgreiðsla var liður í lagabreytingu sem fyrirhuguð er á jarðræktarlögunum annars vegar og á búfjárræktarlögum hins vegar þannig að það þarf ekkert að taka það fram í lagatexta og um það er gott samkomulag í ríkisstjórnarliðinu að afgreiða endurskoðuð jarðræktarlög og búfjárræktarlög áður en þessu þingi lýkur. Þar af leiðir að það þarf ekki að taka fram í lagatexta nein fyrirheit þar um, enda voru þau komin fram í framsögu minni.
    Varðandi það orðalag að ganga frá uppgjöri og að semja um uppgjör sáum við ekki ástæðu til að kippa okkur neitt upp við það. Þetta merkir nákvæmlega það sama. Að semja um uppgjör felur í sér að það verði gengið frá málinu að hluta til kannski á þessu ári og að hluta til á síðari tíma. Ég legg til að menn fallist á að láta þetta standa eins og brtt. meiri hl. fjh.- og viðskn. lagði til.