Lánsfjárlög 1989
Þriðjudaginn 21. mars 1989

     Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir):
    Herra forseti. Hv. þm. Þorsteinn Pálsson beindi til mín ákveðnum spurningum varðandi samskipti stjórnvalda og lífeyrissjóðanna. Eins og hv. þm. veit hefur það komið í hlut hæstv. fjmrh. og hæstv. viðskrh. að ræða við lífeyrissjóðina um þann ágreining sem uppi hefur verið. Ég hef vitanlega verið upplýst jafnharðan um gang þeirra viðræðna sem fram hafa farið milli þessara aðila og ég hef ekki gert athugasemdir við það hvernig haldið hefur verið á málum af hálfu hæstv. fjmrh. og hæstv. viðskrh. Ég veit að þeir hafa haldið þannig á málum að það skaði ekki hagsmuni lántakenda hjá byggingarsjóðunum eða umbjóðenda lífeyrissjóðanna. Það hlýtur einu sinni að vera svo að það hlýtur að vera sameiginlegt hagsmunamál forsvarsmanna lífeyrissjóðanna og stjórnvalda að þannig sé haldið á málum að það skaði ekki þá sem taka lánin hjá byggingarsjóðum ríkisins, en það eru félagar í þessum lífeyrissjóðum.
    Varðandi það, ef lífeyrissjóðirnir halda að sér höndum varðandi kaup á skuldabréfum byggingarsjóðanna, hvort það skerði þá lánsréttindi þeirra sem leita lána hjá Byggingarsjóði ríkisins, þá er hv. þm. auðvitað kunnugt um það að lánsréttur viðkomandi hjá byggingarsjóðunum helst í hendur við kaupskyldu lífeyrissjóðanna. Ef lífeyrissjóðirnir uppfylla ekki sína kaupskyldu, þá er heimilt að skerða lán til viðkomandi sem því nemur. Á þetta hefur ekki reynt enn þá. Að vísu er það svo að það hefur verið erfitt að fylgjast með reglubundið hvort lífeyrissjóðirnir hver og einn uppfylli sína kaupskyldu vegna þess að uppgjörin koma yfirleitt á eftir. Ég get nefnt sem dæmi, ég held að ég muni þá tölu rétt, að um síðustu áramót mun hafa vantað um 800 millj. upp á það að lífeyrissjóðirnir hefðu uppfyllt sína kaupskyldu að því er varðar árið 1988. En eins og ég sagði hefur þetta ekki komið niður á lántakendunum enn þá og þarf vonandi ekki að gera það. Þegar samningarnir voru gerðir við lífeyrissjóðina í desembermánuði, þá var það einmitt eitt samningsatriðið að koma betri reglu á það, að fá upplýsingar um það hvernig lífeyrissjóðirnir stæðu við sínar skyldur að því er varðar kaupskylduna þannig að væntanlega verður hægt að fylgjast með því betur hér eftir en hingað til. En auðvitað segir það sig sjálft að ef lífeyrissjóðirnir ætla að halda alveg að sér höndum varðandi það að gera sín skil til sjóðanna, ef þangað koma ekki inn peningar frá lífeyrissjóðunum, þá hlýtur það óhjákvæmilega fyrr en seinna að bitna á sjóðfélögunum. Það segir sig sjálft. Um það eru ákvæði í húsnæðislöggjöfinni.
    En það verða væntanlega teknar upp viðræður við lífeyrissjóðina fljótlega og ég vil ítreka að það hlýtur að vera hagsmunamál bæði stjórnvalda og lífeyrissjóðanna að þannig sé haldið á málum að ekki skaði þá sem fá lánafyrirgreiðslu hjá byggingarsjóðunum.