Lánsfjárlög 1989
Þriðjudaginn 21. mars 1989

     Albert Guðmundsson:
    Virðulegi forseti. Ég þakka forseta fyrir sanngjarna lausn á þessu máli. Ég geri mér ljóst hver rök forseta eru fyrir því að bíða með að kanna málið nánar og þau eru fullkomlega samþykkjanleg frá minni hálfu. En ég vil þá óska eftir því að frekari afgreiðslu á þskj. 637 verði frestað þangað til það liggur fyrir hvað er rétt og hvað er rangt í þeim málum sem ég hef flutt.