Egill Jónsson:
Herra forseti. Ég vil byrja á því að óska eftir því að hæstv. landbrh. verði við þessa umræðu. Hann var að flytja og tala fyrir tillögum í Nd. í gærkvöld og þessi mál hafa tekið miklum vendingum þannig að mér finnst ástæða til þess að leita eftir skýringum hæstv. landbrh. og óska þá jafnframt eftir því að hefja ekki mál fyrr en ráðherrann verður kominn til þingfundar. Ég á ekki von á öðru en ráðherrann sé að starfa. Hann er væntanlega einhvers staðar annars staðar. ( Fjmrh.: Við getum nú kannski greitt úr spurningum þingmannsins.) Maður leggur nú sitt eigið mat á það hvaða ráðherrar eru marktækir eður ei. ( Fjmrh.: Það yrði nú lítið úr landbúnaðinum ef það væru ekki peningarnir.) Já, það er hárrétt. Það er mjög mikilvægt fyrir rekstur ríkissjóðs hvað miklar tekjur koma frá landbúnaðinum inn í þann kassa og er það reyndar ánægjuefni að hæstv. fjmrh. er að átta sig á því. ( Forseti: Ég hef óskað eftir því að hæstv. landbrh. verði send boð.) Hvernig ber að skilja þessi orð, herra forseti? Á ég þá að doka við í ræðupúltinu á meðan? Ég hef ekki svo afar mikla þörf fyrir að tala við aðra menn. ( Fjmrh.: Við getum þá bara farið.) ( Forseti: Eins og hv. ræðumaður veit á hæstv. landbrh. ekki sæti í þessari deild og hér er um að ræða mál sem heyrir undir fjmrh. Landbrh. hefur því væntanlega ekki gert ráð fyrir því að sín yrði óskað hér í deildinni þannig að ég sendi þessa beiðni þegar er hún var borin fram af hv. ræðumanni.) Ég næ ekki, herra forseti, enn þá samhengi í þessar skýringar. Ef það er meiningin að hæstv. landbrh. verði ekki við ósk minni um að mæta til þessa þingfundar tala ég að sjálfsögðu án þess, en verði mín ósk virt dugir að sjálfsögðu ekki að hæstv. landbrh. komi eftir að ég hef talað þannig að ég verð að fá það skýrt fram hjá hæstv. forseta hvort ég eigi að doka við þar til landbrh. kemur til fundar eður ei. ( Forseti: Hæstv. landbrh. er búinn að fá þá ósk sem hv. ræðumaður bar fram þegar hann kom í ræðustólinn og hann mun koma nú þegar, en það er spölur á milli húsa.) Ber þá að skoða það þannig að fundi sé frestað þar til hann gengur í salinn eða á ég að standa hér í ræðustól? ( Menntmrh.: Nema hvort tveggja sé.) ( Forseti: Óskar ræðumaður eftir að gera hlé á ræðu sinni á meðan?) Ég óska eftir því já og er búinn að því. ( Forseti: Þá mun verða orðið við því.)
Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. landbrh. fyrir að hafa brugðist svo skjótt og vel við minni ósk um að vera viðstaddur þessa umræðu. Ástæðan fyrir því er m.a. sú að hér eru til umræðu öðru sinni lánsfjárlög eftir að þeim hafði verið breytt í Nd. og það vill svo til að aðalbreytingarnar, ef breytingar skyldi þá kalla, fjalla einmitt um þau efni sem ég hafði sérstakt orð á meðan málið var í umræðu og meðferð þessarar hv. deildar. Eins og menn kannski muna eftir tók hæstv. landbrh. þá líka þátt í þeirri umræðu að minni ósk.
Ég má kannski byrja á því, herra forseti, að vitna til þess að við fjárlagagerð gáfu bæði varaformaður og formaður fjvn. í umboði landbrh. yfirlýsingu um að
greiðslur vegna jarðræktarlaga og búfjárræktarlaga yrðu inntar af hendi á þessu ári. Að vísu gátu þeir þess, sérstaklega þó formaður fjvn., að það uppgjör færi fram í tengslum við nýjar ákvarðanir að því er varðaði þessi lög, þ.e. þegar þeim hefði verið breytt á Alþingi. Það vakti því nokkra eftirtekt þegar lánsfjárlög gerðu ráð fyrir því, 28. og 29. gr., að þessum yfirlýsingum yrði kippt til baka því að í 28. og 29. gr. er sagt alveg skýrum orðum að fjmrh. hafi engar heimildir umfram fjárlög til að greiða skuldir ríkissjóðs gagnvart þeim aðilum sem þarna eiga hlut að máli. Ég fagna því að sú umræða hefur farið fram sem sýnir að sjálfsögðu með ótvíræðum hætti að hér er um alveg óforsvaranleg vinnubrögð að ræða gagnvart bændum landsins. Ég neita því, sem hefur komið fram í skýringum, m.a. máli hæstv. landbrh., að hér sé ekki um neitt óvenjulegt verklag að ræða.
Hann hefur nefnt um það dæmi að lagaákvæði væru oft tekin af með heimild í lánsfjárlögum. Það kannast ég að sjálfsögðu við og væntanlega allir hér í þessari hv. deild. En sá er munur á að hér er verið að taka fyrir framkvæmd á persónulegum viðskiptum milli einstaklinga og ríkisvaldsins. Ég hef ekki gert við það sérstakar athugasemdir þótt t.d. greiðslur til Stofnlánadeildar landbúnaðarins væru skertar eða jafnvel þótt það væri gripið til þess ráðs að færa skuldbindingar ríkissjóðs í sambandi við lög um afleysingaþjónustu yfir á Stofnlánadeild landbúnaðarins. Þessar ákvarðanir eru með allt öðrum hætti. Skerðingarákvarðanir í lánsfjárlögum gilda yfirleitt ekki aftur fyrir sig. Hér er hins vegar um það að ræða að neita að greiða það sem búið er að stofna til ýmist fyrir einu eða tveimur árum. Þessar ákvarðanir eiga sér þannig ekki hliðstæður. Þetta eru viðskipti við á milli 3000 og 4000 manns, bein viðskipti, sem þarna er tekið fyrir. Þetta er allt annars eðlis en gildir að því er varðar aðrar ákvarðanir um greiðslufresti sem teknar eru í lánsfjárlögum.
Nú má ég til, herra forseti, að minna á það sem kom fram í ræðu hæstv. landbrh. þegar hún átti sér stað í þessari hv. deild. Þá gat hann þess að í undirbúningi væri gerð frv. til breytinga á jarðræktar- og búfjárræktarlögum.
Þá kæmi stóra lausnarorðið um hvernig þessum greiðslum yrði háttað. Hæstv. landbrh. gat þess líka í þeirri umræðu að þar yrði um nýjungar að ræða. Það yrði dregið úr því sem ekki væri lengur móðins og teknar upp nýjar áherslur. Hæstv. landbrh. hefur staðið við að semja sitt frv. og hann lagði það m.a. fyrir síðasta búnaðarþing. Það leyndi sér reyndar ekki og mér þykir bæði vert og skylt að geta þess að hæstv. landbrh. gerði sér far um að vera í góðum tengslum við búnaðarþing og ég held að mér sé óhætt að fullyrða að honum hafi verið sýnd þar full virðing. Ég þakka honum út af fyrir sig fyrir tillitssemi gagnvart búnaðarþingi. En búnaðarþing fjallaði um þetta frv. og hefur skilað frá sér tillögum um það til hæstv. landbrh.
Efnislega ætla ég ekki að fjalla um það, enda ekki sérstök ástæða til, nema einn þátt þess máls, þ.e. það
sem snertir uppgjörsmálin og hér er til umræðu núna. Aðrir þættir þessa máls bíða að sjálfsögðu síðari tíma. En í frv. landbrh., sem hann lagði fyrir búnaðarþing, segir svo, með leyfi hæstv. forseta, um uppgjör málsins: ,,Heimilt er fjmrh., að viðhöfðu samráði við landbrh., að semja um uppgjör ógreiddra framlaga vegna jarðræktarframkvæmda ársins 1988.`` Þetta er svo að segja nákvæmlega sama orðalag og nú er komið inn í lánsfjárlagafrv. sem verða greidd atkvæði um innan skamms. Og hverju svarar nú samningsaðilinn, búnaðarþing, því að það fer ekki á milli mála að með framkvæmd jarðræktarlaga fer Búnaðarfélag Íslands í umboði landbrn. þannig að ef einhverja samninga á að gera yrðu þeir að sjálfsögðu gerðir á þeim vettvangi?
Ég má kannski ekki segja frá því hér að það kom afar skýrt fram í máli búnaðarþingsfulltrúa að Búnaðarfélag Íslands gæti ekki samið um þessi mál. Og af hverju? Vegna þess að það fer hver og einn bóndi með sínar eigin fjárreiður. Það sem hér er verið að gera er að það er verið að brjóta á þeim bændum sem hér eiga í hlut en ekki Búnaðarfélagi Íslands sérstaklega. Ef menn ætla eitthvað að semja verða menn að semja við rétthafa í þessum efnum en ekki við Búnaðarfélag Íslands né heldur aðra aðila sem þar yrðu til kvaddir, enda hefur búnaðarþing svarað.
Svar þess er, með leyfi forseta, þannig: ,,Þá felst búnaðarþing ekki á bráðabirgðaákvæði frv. þar sem það er ófrávíkjanleg krafa þingsins að jarðræktarlögin verði virk.``
Þetta er afstaða búnaðarþings, afstaða bændanna í þessu landi. Kannski hefur þessi samþykkt og sú umræða sem út frá henni hefur spunnist komið af stað ofurlitlum titringi innan Alþingis. Það gæti t.d. vel verið að einhverjir hv. þm. Framsfl. væru aðeins farnir að átta sig á því hvað hefur gerst í þessum efnum. Það getur vel verið að þeir hafi orðið varir við þann þunga sem er á bak við áherslur búnaðarþings og bændanna í landinu út frá þeim uppgjörsmáta sem hér er viðhafður. Þau eru ekki símtölin og fyrirspurnirnar sem koma inn til Búnaðarfélagsins, trúlega líka landbrn., um það hvenær bændur fái þær greiðslur sem þeir eiga að fá vegna framkvæmda bæði fyrir 1987 og 1988. Í þeim viðskiptum sem bændur hafa átt við ýmsa aðila sem þeir skipta við, t.d. í sambandi við byggingarframkvæmdir, hefur það þótt góður og fullgildur kostur að geta veðsett eða vísað á framlögin sem þeir hafa átt von á samkvæmt jarðræktarlögum.
Þeir bændur sem þannig er búið að gera að vanskilamönnum og er enn staðfest við þessa lánsfjárlagagerð eru farnir að láta heyra í sér, m.a. vænti ég fyrrv. landbrh. og aðrir þingmenn Framsfl. Þess vegna segir búnaðarþing alveg skýrum orðum að það er ekki um neitt að semja. Það er ekkert um það annað að segja en að jarðræktarlögin séu virt. Það er ekki um annað að ræða en að orð og venjur standi.
Nú er það svo að ef menn telja á annað borð að virðingu formanns fjvn. og varaformanns fjvn. sé borgið með þeim viðbótartillögum sem liggja hér fyrir er það a.m.k. alls ekki nema að hálfu leyti vegna þess
að það ákvæði sem þarna er fjallað um er bara miðað við árið 1988. Ef þetta opnar einhverjar leiðir til að greiða vangoldin framlög vegna jarðræktarlaga opnar það ekki heimildir gagnvart árinu 1987. Það skulu menn athuga. Nú er það svo að hæstv. landbrh. hefur með bréfi sagt fyrir um það hvernig fyrstu greiðslum sem borist hafa Búnaðarfélaginu vegna framkvæmdar jarðræktarlaga skuli ráðstafað. Vera má að ráðherrann hafi haft til hliðsjónar þær ábendingar sem ég gaf við umræðuna á dögunum þar sem ég gat þess að verksamningar á milli ríkisins og verktaka væru virtir nema þegar um væri að ræða viðskipti innan landbúnaðarins, enda skilyrti hæstv. landbrh. þessa fyrstu greiðslu við það að verksamningar yrðu uppgerðir. Þegar það er búið vantar enn fjármagn til að greiða hluta af því sem út af stóð fyrir árið 1987 og fyrir því eru engar heimildir hér.
Annars er það einkennilegt, ef menn meina eitthvað með þessu á annað borð, að það skuli ekki hafa verið settar inn réttar tölur eins og í öðrum tilvikum. Af hverju eru ekki settar inn réttar tölur og tilgreint hvaða upphæðum heimildirnar megi nema, uppgjöri á skuld frá árinu 1987 og því sem enn er ekki fyrir hendi fyrir árið 1988? Af hverju eru ekki settar inn réttar tölur ef menn meina eitthvað með þessu á annað borð? Auðvitað er skýringin sú að það er
verið að skjóta þeim út bakdyramegin, formanni og varaformanni fjvn., svo þeir verði ekki alveg ærulausir gagnvart bændum landsins fyrir þær yfirlýsingar sem þeir gáfu í umboði landbrh. við fjárlagagerð. ( KP: Það þarf stórar dyr.)
Það sem vekur svo sérstaka eftirtekt gagnvart öllu þessu máli er sú aðför að bændum landsins og hinum dreifðu sveitabyggðum sem í þessu felst. Það væri út af fyrir sig bagalaust fyrir forustumenn Alþb. að fara aðeins yfir ræðurnar sínar sem þeir héldu á árum áður ( SkA: Ja, það væri nú þörf á.) þegar þeir voru að berjast fyrir því að bæta hag bænda í landinu, þegar þeir voru að fara í utandagskrárumræður á þeim tímum sem var verið að taka vandasamar ákvarðanir um stjórn á búvörunni og annað það sem þá var út af fyrir sig mikill meiningarmunur um á milli bændanna í landinu. Væri ekki hollt fyrir ráðherra Alþb. að draga fram þessar ræður sínar? ( HBl: Eða lesa ræður Lúðvíks.) Og menn skulu athuga það vel, sem er náttúrlega versti kosturinn við allt þetta mál, hvað á að nota til þess að koma fram skerðingaráformum, niðurrifi á jarðræktarlögunum og búfjárræktarlögunum. Menn hafa sagt það svo að segja alveg með beinum orðum að þetta tvennt yrði tengt saman og að uppgjörið færi þá fyrst fram þegar bændur landsins og forráðamenn þeirra hefðu sýnt að þeir væru góðu börnin í þeim félagsskap. Búnaðarþing hefur svarað í þeim efnum. Og ætli það gæti ekki verið að sú umræða kæmi upp innan stjórnarflokkanna, ef hún er þá ekki þegar orðin þar á fullri ferð, að því aðeins yrðu þessar skuldir greiddar að menn féllust á þær fyrirætlanir sem hæstv. fjmrh. hefur m.a. birt búnaðarþingi um gerð nýrra jarðræktarlaga.
Það sem vekur svo allra mesta athygli í öllu þessu
máli er hverjar eru ástæðurnar fyrir þessari aðför að bændum landsins. Menn hafa gefið þau svör að það hlytu að vera aðrar áherslur núna en áður var á meðan menn voru að auka við framleiðsluna og bæta húsakostinn. Þar af leiðandi þyrfti ný jarðræktarlög eða jarðræktarlög að taka mið af breyttum aðstæðum. Jarðræktarlögin eru ekki nema tveggja ára gömul. Þau voru sett árið 1987. Og það vill svo til að þau taka einmitt mið af þessu.
Það er líka í þessu sambandi afar fróðlegt, eins og kemur fram í afgreiðslu búnaðarþings, að fara yfir það hvernig peningamálin hafa þróast. Í greinargerð fyrir tillögum búnaðarþings er birt tafla, sem nær yfir fimm ár, um greiðslur jarðræktarframlaga. Þá kemur m.a. fram í þeirri töflu að árið 1984 var greiðsla vegna jarðræktarframkvæmda aðeins ríflega 5 millj. kr. á verðlagi þess árs. Fyrir árið 1988 er þessi tala 162 millj. kr. miðað við verðlag þess árs. Samdrátturinn í þessum framkvæmdum er svo að segja nákvæmlega sá sami og nemur verðhækkunum á þessum fimm árum. Í krónutölu, miðað við verðlag síðasta árs, hefur þessi samdráttur orðið úr 347 millj. kr. niður í 162, lækkun á þessu árabili um liðlega 200 millj. Og ég segi bara: Geri aðrir betur. Geri aðrir betur í því að semja sig að breyttum háttum í þessu landi en bændur landsins hafa gert. Það eru harðir kostir að verða vitni að því, m.a. hér á Alþingi, hvernig því er mætt.
Ég sakna þess að hv. formaður landbn. Ed. skuli ekki vera við umræðuna. Ég hef stundum heyrt hann hafa áhyggjur af því hvað vinnslustöðvunum gengi illa. Ég held að síðast í gær hafi hann haft orð á því. Hann minntist ekki á bændur landsins, enda hafa þeir ekki þörf fyrir neina sérstaka vorkunnsemi af því að þeir hafa kunnað að haga málum sínum þannig að þeir búa með bærilegum hætti í landinu. Hæstv. landbrh. sagði í Nd. í gær að það væri ætlunin að borga það sem út af stæði þegar peningar yrðu til á árinu. Þegar peningar væru til. Það verður þá sjálfsagt búið að borga upp þá 10 milljarða sem ríkissjóður skuldar nú í Seðlabankanum áður en röðin kemur að því að greiða þessi vanskil. En fjmrh. vílaði ekkert fyrir sér að borga í útflutningsbætur á mjólkurvörur að mig minnir nokkuð svipaða upphæð og var vangoldin í jarðræktarframlögunum. Ég hef fullar efasemdir um það --- það var a.m.k. ekki bundið með lögum með sama hætti og ég stórefa að það hefðu verið nokkur frávik frá búvörusamningnum þó að sú greiðsla hefði ekki verið innt af hendi. Það er ekki sama hverjir eiga í hlut. Það er stóra málið í þessu. Það er alveg augljóst hvar hjarta Alþb., þrátt fyrir stóru orðin og yfirlýsingarnar frá fyrri árum, liggur í þessum efnum.
Það er líka eftirtektarvert, sem kemur fram í greinargerð búnaðarþings, hvernig áherslurnar hafa breyst. Þar er m.a. birt tafla um túnrækt allt frá 1980--1988. Hún hefur minnkað úr 3229 hekturum, sum árin hefur hún reyndar verið hærri eins og 1981, 3600 hektarar rúmir, niður í 1790 hektara eins og hún var á sl. ári og var hér um bil um ekkert annað að ræða en endurræktun.
Herra forseti. Ég fagna því að hafa átt þess kost að
koma þessum sjónarmiðum á framfæri. Íslenskur landbúnaður á við mikinn vanda að etja og þótt vel hafi tekist til er fjarri því að öll mál séu leyst. En það er skelfilegt til þess að hugsa ef ríkisvaldið ætlar að vinna á móti því að þar geti átt sér stað eðlileg þróun og með því að ganga sérstaklega gegn þeim þróunarverkefnum sem ríkið hefur stutt og reyndar haft frumkvæði um, sem felast í ákvæðum jarðræktarlaga og búfjárræktarlaga eins og margsinnis hefur verið yfirlýst af núv. ríkisstjórn, er það skelfileg tilhugsun ef menn brjóta niður
þróunarstarfsemi í atvinnuveginum með svo ógætilegum hætti sem orð vísa til og ákvæði frv. til lánsfjárlaga með því viðbótarákvæði sem hér er sérstaklega fjallað um vísa sérstaklega til.