Halldór Blöndal:
Herra forseti. Ég vil taka undir áhyggjur hv. 8. þm. Reykn. vegna stöðu sveitarfélaganna úti á landi. Mörg þessara sveitarfélaga hafa tekið á sig miklar skuldbindingar vegna atvinnurekstrarins á landsbyggðinni og þess óvissa atvinnuástands sem þar ríkir nú, ekki síst eftir að við urðum að taka upp kvótakerfið og hert var á reglum um sókn í fiskistofnana. Við getum þrætt ströndina og við sjáum að í öllum landshlutum eru sveitarfélög sem hafa tekið á sig mjög þungar byrðar og vaxandi í baráttu sinni fyrir því að reyna að halda uppi öruggri atvinnu á viðkomandi stöðum. Auðvitað hlýtur maður að spyrja varðandi suma þessara staða hvernig framtíðin muni vera. Við kynntumst því í síðustu viku að það skip sem var burðarásinn í því að afla frystihúsinu á Þórshöfn hráefnis var selt til Hríseyjar svo að dæmi sé tekið. Við höfum séð aðrar þvílíkar hreyfingar á milli ýmissa annarra staða og við sjáum líka að á þessum síðustu vikum og mánuðum hefur ríkisstjórnin látið sér fátt um finnast þótt sjávarútvegurinn sé áfram rekinn með halla og svarar ekki einföldum spurningum um það hvernig rekstrargrundvöllur útgerðarinnar og fiskvinnslunnar í landinu verður næstu 2--3 mánuði fram í tímann. Þannig skil ég vel að hv. 8. þm. Reykn. sé áhyggjufullur. Hann hefur gegnt starfi bæjarstjóra bæði á Ísafirði og í Keflavík og þekkir því betur en flestir aðrir hversu veikburða atvinnulífið úti á landsbyggðinni er um leið og eitthvað bjátar á í sjávarútveginum.
Ég vil taka fram, vegna þess að í frv. til lánsfjárlaga er gert ráð fyrir því að til sérstaks atbeina ríkisvaldsins komi vegna Þormóðs ramma, að hæstv. fjmrh. hefur fullvissað fjh.- og viðskn. deildarinnar um að það sé nauðsynlegt vegna eignaraðildar ríkisins að þessu fyrirtæki en ekki vegna þess að ríkið ætli sér að koma með einhverjum sérstökum hætti til móts við þetta útgerðarfyrirtæki í Siglufirði. Nú get ég vel unnað þeim Siglfirðingum þess að þeir fái eitthvað endurgreitt af þeim fjármunum sem röng stefna í atvinnumálum hefur skaðað þá Siglfirðinga um. Við getum t.d. tekið það örlæti sem hæstv. sjútvrh. hefur haft í útbýtingu rækjuvinnsluleyfa sem bitnar mjög þungt á Siglfirðingum svo að dæmi sé tekið. Fleira gæti ég tínt til sem ég skal ekki gera nú þar sem páskahelgin gengur senn í garð og ég vil ógjarnan að fundur standi fram yfir sex í kvöld, en vil sem sagt leggja áherslu á að ég deili áhyggjunum með hv. 8. þm. Reykn. Það er áreiðanlega rétt hjá honum að þau sveitarfélög sem þyrftu á samsvarandi fyrirgreiðslu að halda og nú er hugsuð fyrir Siglufjörð eru fleiri en svo að þau séu teljandi á fingrum annarrar handar og það er áreiðanlega líka rétt að það er ekki aðeins Þormóður rammi sem stendur frammi fyrir miklum erfiðleikum nú þegar ríkisstjórnin virðist hafa að sérstöku markmiði að gæta þess að óvissan sé sem mest í kringum útflutningsatvinnuvegina því að auðvitað eru menn ófúsir að leggja nýtt fé í sjávarútveginn þegar þannig árar í landinu, þegar þeir menn sem stjórna Íslandi skilja ekki þýðingu
sjávarútvegsins.
Ég hef tekið eftir því að hv. 4. þm. Vesturl. Skúli Alexandersson getur illa setið hér í þingsalnum undir málum eins og þessum, langar til að standa upp og skeyta skapi sínu á ríkisstjórninni, en reynir að taka mesta sviðann af með því að skamma fyrrv. ríkisstjórn og skil ég hann vel. En ég tek eftir því að þegar hann segir ,,fyrrverandi`` segja augun og hugsar hann ,,núverandi``. Þess vegna get ég líka sagt að ég deili kvíðanum með hv. 4. þm. Vesturl. þegar hann hefur áhyggjur af því að sjávarútvegurinn sé ekki í sem bestum höndum núna. Það veitti ekki af því að fá sjútvrh. sem væri ákveðnari og beittari þannig að þessi atvinnurekstur gæti gengið a.m.k. bærilega.
Það er eðlilegt að mikill kvíði sé í þjóðinni allri. Við höfum séð það atvinnuleysi sem er að grafa um sig og kannski eina vonin sú hjá þeim stéttum sem sækja laun sín til hæstv. fjmrh. að hann muni verða örlátur. Skattar hafa verið þyngdir mikið hjá þjóðinni nú upp á síðkastið og af fyrri ræðum sínum vitum við að hæstv. fjmrh. vill gjarnan hækka laun opinberra starfsmanna um svona 100% í krónum talið minnst og verður fróðlegt að fylgjast með því. Er eðlilegt að flokksbróðir hans og trúnaðarvinur, forseti Alþýðusambands Íslands, vilji fremur synda í kjölfarið og telji að það sé auðveldara að eiga við Vinnuveitendasambandið eftir að fjmrh. er búinn að brjóta ísinn. Mig minnir að það hafi komið fram í ræðu hv. 14. þm. Reykv. að það þyrfti að hækka launin núna um 8% ef ríkisstjórnin ætlaði að standa við loforðið um sama kaupmátt og um áramótin. En ríkisstjórnin er kannski hætt við það líka. A.m.k. er forsrh. farinn að tala um að hann sé á móti vísitölum. Hann vill áreiðanlega ekki láta mæla kaupmáttinn núna og um áramótin á vísitölu og bera saman við verðbólguna kjaraskerðinguna.
Það er eiginlega skaðlegt að hafa ekki hæstv. félmrh. hér inni. Ég skal ekki biðja um að hann verði sóttur. Það hefði þó kannski verið ástæða til vegna þessarar sérstöku tillögu um að veita nú ríkistryggð lán til að reyna að
hressa upp á bága skuldastöðu sveitarfélaganna að heyra hvað hæstv. félmrh. hefur um þetta að segja. En við getum kannski reynt að eiga orð við félmrh. þegar hann er búinn að koma húsnæðisfrv. í nefnd. Ég geri ekki ráð fyrir því að hann sé viðmælandi um annað á meðan það hefur ekki tekist.