Karl Steinar Guðnason:
Herra forseti. Ég vek athygli á brtt. sem er á þskj. 637, b-liður, þar sem segir ,,aðrar skuldbreytingar vegna greiðsluvandkvæða, lán á árinu 1989 að fjárhæð allt að 100 millj. eða jafnvirði þeirrar fjárhæðar í erlendri mynt``. Ég hef miklar áhyggjur af þeirri stefnu sem nú er tekin upp gagnvart sveitarfélögum. Þetta er breyting frá því sem áður var þar sem tilgreind var sérstök upphæð til Siglufjarðar vegna þeirra vandræða sem það bæjarfélag er í. Nú er þessu breytt í almenna heimild til sveitarfélaga að sækja lán til útlanda til hinna ýmsu verkefna. Það er spurning sem vaknar í mínum huga hvort þetta sé í tilefni af því að á næsta ári eru kosningar til bæjarstjórna, hvort með þessu móti á að bjarga sveitarfélögum sem hafa staðið sig illa í fjármálum, sveitarfélögum sem eru með mikla skuldabagga sem þau hafa bundið sér og ráða ekki við með góðu móti. Það er ástæða til að spyrja: Hvers á Hofsós að gjalda sem hefur verið settur í gjörgæslu félmrn.? Hvers vegna voru hans mál ekki leyst svona? Hvers vegna var Hofsósi ekki gefið rúm til að fara þessa leið? Ég tel að nú sé farið mjög rangt að og ég veit um fjölda sveitarfélaga sem vildu sækja í þetta. Ég veit t.d. um Voga á Vatnsleysuströnd sem eru mjög illa staddir. Það hreppsfélag er mjög illa statt. Ég veit um mörg önnur sveitarfélög. Það er líka spurning hvort með þessu móti getur eitthvert eitt sveitarfélag gert samning við verktaka um að malbika og gangstéttaleggja allar götur í byggðarlaginu og fengið til þess erlend lán til að afla sér atkvæða fyrir næstu bæjarstjórnarkosningar. Mér sýnist að það sé gefið ráðrúm til þess samkvæmt þessu.
Mig langar að spyrja fjmrh. hvaða skilyrði sveitarfélög þurfi að uppfylla til að fá þessa fyrirgreiðslu. Hvað veldur því að nafnið Siglufjörður er tekið út og talan hækkuð um að minnsta kosti helming og þetta gert að almennri heimild sem hlýtur að vera til skaða þegar lengra líður frá?