Lánsfjárlög 1989
Miðvikudaginn 22. mars 1989

     Halldór Blöndal:
    Herra forseti. Ég hlýt að átelja hversu seint lánsfjárlög koma hér til lokaafgreiðslu. Að réttu lagi hefði stjórnarmeirihlutinn átt að taka rögg á sig og afgreiða lánsfjárlögin þegar þing var kallað saman eftir áramótin, en þessi seina og að mörgu leyti undarlega afgreiðsla lánsfjárlaga lýsir auðvitað með öðru þeim glundroða sem er innan ríkisstjórnarinnar og hversu erfiðlega ríkisstjórninni hefur gengið að marka eitthvað í átt við það sem kalla megi efnahagsstefnu. Margt í þessu frv. er þess eðlis að ég get ekki fallist á það. Stefnan í ríkisfjármálum og efnahagsmálum er röng. Á hinn bóginn er nauðsynlegt að lánsfjárlög séu í gildi í landinu. Þess vegna greiði ég ekki atkvæði.