Afsal þingmennsku
Mánudaginn 03. apríl 1989

     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Albert Guðmundsson, 5. þm. Reykv., hefur ritað mér á þessa leið:
    ,,Reykjavík, 3. apríl 1989.QR
    Þar sem ég hef verið skipaður sendiherra Íslands í París og mun senn taka við því embætti tilkynni ég yður, virðulegi forseti, að ég afsala mér þingmennsku frá og með þessum degi.
    Ég óska alþingismönnum öllum og starfsfólki Alþingis giftu og farsældar í starfi og Alþingi Íslendinga allra heilla.
Virðingarfyllst.

Albert Guðmundsson,

5. þm. Reykv.``

    Samkvæmt því bréfi sem nú hefur verið lesið tekur Benedikt Bogason verkfræðingur sæti á Alþingi sem 16. þm. Reykv.
    Eftir venju verður hv. þm. Guðmundur Ágústsson 5. þm. Reykv. og hv. þm. Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir 11. þm. Reykv.
    Ég býð Benedikt Bogason velkominn til starfa á Alþingi.
    Nú við þingmennskuafsal Alberts Guðmundssonar er mér bæði ljúft og skylt að færa honum hjartans þakkir fyrir samstarf og samvinnu á undanförnum árum. Ég vona að það sé ekki brot á þingvenjum, skrifuðum eða óskrifuðum, þó ég segi að við kveðjum nú einn litríkasta stjórnmálaforingja síðustu ára hér á Alþingi.
    Albert Guðmundsson hefur vissulega verið umdeildur maður, en um góðgirni hans hefur ekki verið deilt. Ég veit að ég mæli fyrir munn allra háttvirtra alþingismanna þegar ég óska honum og fjölskyldu hans allra heilla í því mikilvæga starfi sem hann tekst nú á hendur fyrir land og þjóð.