Heræfingar varnarliðsins
Mánudaginn 03. apríl 1989

     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Hér verður nú að fresta þessari umræðu um skýrslu um stöðu og rekstur fiskvinnslufyrirtækja þar sem ákveðið var að kl. þrjú hæfist umræða utan dagskrár um heræfingar sem varnarliðið hefur óskað eftir að halda hér á landi á komandi sumri. Umræðu þessarar hefur óskað hv. 1. þm. Norðurl. v. Fer hún fram skv. síðari mgr. 32. gr. þingskapa og er ræðutími því ómældur.