Forsætisráðherra (Steingrímur Hermannsson):
Virðulegi forseti. Mér þykir rétt á þessu stigi að koma að nokkrum upplýsingum í þessu máli og þá fyrst og fremst um afskipti mín af því sem utanrrh. Á fundi í Keflavík, þar sem upplýsingar voru veittar um starfsemi varnarliðsins í ágúst 1987, sem kallað er á ensku máli ,,briefing`` eða þess háttar, sem sagt upplýsingafundur um starfsemina sem utanríkisráðherrar fá, var mér skýrt frá tilvist þessa varaliðs. Hafði þá ekki þekkt til þess áður. Ég tel út af fyrir sig ekkert óeðlilegt að slíkt lið sé til og sé ekki ástæðu til að gera athugasemdir við það. Mér skilst að því hafi verið komið á fót að höfðu samráði við utanrrh. 1984. Mér var jafnframt tjáð að fram hefðu farið tvær æfingar hér á landi, í fyrsta lagi 1985 þegar hingað komu 150 manns og síðan 1987 þegar hingað komu 400 manns. Einnig var mér tjáð að gert hefði verið ráð fyrir því að slíkar æfingar færu fram nokkurn veginn á tveggja ára fresti.
Ég fékk þá engar upplýsingar um þá æfingu sem nú er talað um að öðru leyti en því að æfing væri ráðgerð 1989. Ég skildi svo að hún yrði af svipaðri stærðargráðu og áður hefði verið. Mér fannst engu að síður nauðsynlegt að leggja á það áherslu að öll starfsemi þessarar varasveitar hér á landi, æfingar eða hvað það kallast, yrði að vera ákveðin í nánu samráði við íslensk stjórnvöld. Þess vegna taldi ég nauðsynlegt að láta koma fram það sem hér hefur verið vitnað til í skýrslu minni til Alþingis sem utanrrh. Þar er sérstaklega undirstrikað að æfingar varnarliðsins hljóti að verða í samráði við íslensk stjórnvöld.
Ég heyrði síðan ekkert meira um þessa æfingu fyrr en núna að ég heyrði hennar getið í Ríkisútvarpinu, enda hefur komið fram hjá hæstv. utanrrh. að nánari upplýsingar --- og kannski er ekki rétt að kalla þær nánari því að mjög stuttlega er þessarar æfingar getið í fundargerð varnarmálanefndar frá 30. ágúst 1988 --- komu aldrei á mitt borð, a.m.k. ekki svo að ég vissi, en að vísu voru menn ákaflega uppteknir þá við aðra hluti, stjórnarmyndun o.s.frv. eins og allir þekkja. Ég held að menn verði að hafa í huga að fundargerðir varnarmálanefndar berast yfirleitt ekki utanrrh. fyrr en nokkru síðar. Þær eru yfirfarnar af báðum aðilum og það er aðeins ef um sérstök atriði er að ræða að athygli utanrrh. er vakin strax á því. Svo hygg ég að hafi ekki verið í þessu tilfelli af einhverjum ástæðum.
Ég verð að segja að mér finnst að af hálfu varnarliðsins hafi verið haldið mjög undarlega á þessu máli og ekki gætt þess sem skylda þess hlaut að vera. Ég lét þess getið strax í ágúst frá 1987 að svona æfingar yrði að sjálfsögðu að ákveða að höfðu samráði við íslensk stjórnvöld og því var ekki mótmælt. Sömuleiðis hygg ég að öllum muni vera ljóst að skýrsla utanrrh. er þýdd og varnarliðið hefur fullan aðgang að þeirri skýrslu. Satt að segja lét ég þýða þá skýrslu sem ég flutti og hún var öllum aðgengileg og send sendiráðum o.s.frv. Þar kom, eins og hér hefur verið lesið, skýrt fram að slík æfing hlyti að ákveðast, eins og ég er margbúinn að segja, að höfðu nánu samráði við íslensk stjórnvöld. Þessa er
ekki gætt. Það er fyrst í gær, upplýsir hæstv. utanrrh., að hann fær upplýsingar um þessa æfingu, um fjölda þátttakenda og ýmsan herbúnað sem hingað á að flytja. Þetta hlýt ég að telja ámælisvert.
Ég hef sagt, það er rétt, að heræfing af þessari stærð væri tímaskekkja. Margt hefur gerst frá því að þessi heræfing mun hafa verið ákveðin, eins og nú er upplýst, 1986. M.a. er lokið Vínarfundi. Þátttaka okkar í þeim fundi var miklu meiri undanfarin 1*y1/2*y ár en áður hafði verið. M.a. skipaði ég sérstakan sendiherra til að taka þátt í þeim málum og eitt af mínum fyrstu verkum sem utanrrh. var að ákveða að Ísland yrði innan þess svæðis sem Vínarfundurinn um afvopnun næði til. Ísland hafði ekki verið tilkynnt áður innan þess svæðis. Það var nokkuð mikilvæg ákvörðun sem þar var tekin og ég er þeirrar skoðunar að eðlilegt sé að bæði stórveldin hafi frekar minni æfingar en meiri á meðan nú er fyrst af alvöru unnið að því að ná jafnvægi í vopnabúnaði í Evrópu á milli austurs og vesturs. Hitt er svo eflaust hárrétt, sem hæstv. utanrrh. sagði, að undirbúningur að þessari æfingu hefur tekið langan tíma og menn eru útkallaðir og menn hafa gert sínar áætlanir í samræmi við það. Ég endurtek hins vegar að mér sýnist þar fyrst og fremst vera um handvömm af hálfu varnarliðsins að ræða.
Ég sé ekki ástæðu til að gera athugasemd við það þótt hingað komi svipaður fjöldi manna og gerst hefur á tveggja ára fresti, en því verður að sjálfsögðu ekki neitað að hér er verið að efna til langtum víðtækari æfingar en hér hafa tíðkast á vegum þessarar sveitar og við það sýnist mér eðlilegt að gerð sé athugasemd eins og aðdragandi málsins er.