Hjörleifur Guttormsson:
Virðulegi forseti. Við erum að ræða hér stórt mál þó að hæstv. utanrrh. hafi kosið að tala um smávægilega heræfingu miðað við það sem gerist annars staðar í löndum og enn minni var sú æfing sem boðuð hafði verið að mati hv. þm. Þorsteins Pálssonar. Það hefur komið fram í þessari umræðu að málshefjandi lýsir sig algerlega andvígan þeim heræfingum sem hér fara fram og ég vænti þess að formaður þingflokks Framsfl. hafi nokkra sveit að baki sér í eigin þingflokki til að fylgja þeirri kröfu eftir. Ég vænti þess einnig og heyri það á máli hæstv. forsrh. að hann er andvígur þeim heræfingum sem hér eru ráðgerðar, hefur ítrekað lýst þeim og síðast hér áðan sem tímaskekkju, og ég stend hér sem fulltrúi Alþb. í utanrmn. og það liggur fyrir að Alþb. er andvígt þessum heræfingum, hefur gert kröfu til þess í ríkisstjórn að þeim verði aflýst, af þeim verði ekki og fært fyrir því sín rök. Ég á eftir að bæta hér við ýmsu varðandi þetta mál því að þetta mál, sem sumir meta smátt en aðrir hér og ég í þeim hópi sem stórt mál, tel ég að sé liður í mun stærra máli, mun stærra samhengi sem hæstv. utanrrh. raunar vék að í máli sínu, þ.e. þátttöku Íslands í Atlantshafsbandalaginu, þátttöku erlendra hersveita á Íslandi í vígbúnaðarstefnu sem Atlantshafsbandalagið stendur fyrir sem annað risaveldanna á Norður-Atlantshafi. Það er þetta samhengi sem við þurfum að ræða og fjalla um hér á Alþingi Íslendinga.
Þessi heræfing er ekki aðeins táknræn heldur er hún hræðilegur veruleiki ef hún fer fram, en hún er þó ekki stór miðað við það samhengi sem er sóknarstefna Bandaríkjahers, Bandaríkjaflota á Norður-Atlantshafi og bandamanna Bandaríkjanna innan Atlantshafsbandalagsins. Þar er Ísland hlekkur í því samhengi. Þar er íslenskt land notað til æfinga, m.a. í þeim stóru æfingum sem hæstv. utanrrh. minnti á en tengdi aðallega við Noreg, þ.e. æfingunni Teamwork sem haldin var í september á sl. ári, stærsta heræfing á Norður-Atlantshafi að mér skilst frá stríðslokum varðandi sjóhernað og nú á að bæta við stærstu heræfingu hér á Íslandi sem haldin hefur verið samkvæmt upplýsingum sem fram hafa verið bornar af fjölmiðlum og veit ég út af fyrir sig ekki hvaða aðrar upplýsingar hæstv. utanrrh. hefur varðandi þau efni.
Þetta eru hræðilegar staðreyndir í ljósi þess að heimurinn hefur verið að búast við slökun og árangri í afvopnunarmálum í framhaldi af þeim fundi sem efnt var til á Íslandi á haustdögum 1986, þar sem mættust leiðtogar risaveldanna beggja.
Það er sagt að þessar æfingar séu ekki ögrun, en eru þær lóð á vogarskál friðar? Eru þær lóð á vogarskál þess málstaðar sem ég er ekki í vafa um að þorri Íslendinga, vonandi allir Íslendingar, taka undir, þ.e. að það náist raunverulegur árangur í afvopnun og það ekki síst á okkar svæði? Ég segi: Þessar fyrirhuguðu æfingar eru ekki lóð á þá vogarskál. Þær eru þvert á móti lagðar hinum megin, á vogarskál vígbúnaðarkapphlaupsins, vaxandi vígbúnaðar. Það er
þó viðurkennt m.a. af hæstv. utanrrh. að vígbúnaðurinn á höfunum sé eitt mesta áhyggjuefni okkar Íslendinga. Það hefur verið nefnt af íslenskum utanríkisráðherrum á þingi Sameinuðu þjóðanna frá 1984 að telja að það sé okkar helsta áhyggjuefni. Og halda menn að þátttaka hersveita hér á Íslandi í slíkum heræfingum sé til þess fallin að draga úr þessari spennu og leggja lið þeim málstað sem utanríkisráðherrar landsins hafa í orði boðað á vettvangi hinna Sameinuðu þjóða en því miður enn ekki á borði?
Ég minni á það að á fjölmennum fundi Samtaka herstöðvaandstæðinga sem haldinn var í gær í Háskólabíói, þar sem var húsfyllir, kom fram alger fordæming á þessar heræfingar sem hér eru ráðgerðar og krafa um friðlýst Ísland, Ísland og nágrenni landsins. Ég vænti þess, þó að vonir mínar séu efablandnar hvað snertir hæstv. utanrrh. eftir að hafa hlýtt á mál hans hér, að hann sjái sér fært að taka undir með því sem virðist vera meiri hluti í ríkisstjórn Íslands þar sem eru fulltrúar Alþb. og Framsfl., því að ég vænti þess að þeir flokkar standi þar sameinaðir á móti þessum heræfingum, og aflýsi þessu hernaðarbrölti. Það er sú krafa sem ég og minn flokkur gerum til hæstv. utanrrh. og ég tók eftir því að hæstv. ráðherra lýsti ekki endanlegri niðurstöðu þó að mikið í hans máli væri því miður ekki röksemdir að því marki sem ég mæli hér fyrir. En kannski á hæstv. ráðherra eftir að átta sig og taka af skarið í þá veru sem er áreiðanlega vilji yfirgnæfandi meiri hluta almennings á Íslandi sem hefur fengið að fylgjast með undirbúningi þessara mála núna síðustu dagana og séð forsmekkinn, vasaútgáfu af þessum heræfingum eins og þær birtust í kvikmynd sem Sjónvarpið sýndi í gær.
Virðulegur forseti. Ég mun gera hlé á máli mínu en víkja að nokkrum atriðum sem snerta þetta mál og tengjast þátttöku Íslands í Atlantshafsbandalaginu, í hernaðarbandalaginu NATO, og þeirri ömurlegu staðreynd að við leggjum íslenskt land undir hernaðarbrölt og erlendar herstöðvar. --- [Fundarhlé.]
Virðulegur forseti. Ég geri ráð fyrir því að hæstv. utanrrh. ætli sér að vera viðstaddur framhald umræðunnar. Ég hef ætlað mér að víkja máli til hans þannig að ég vil inna hæstv. forseta eftir því hvort .*3.*3. ( Forseti: Ég vil biðja þingvörð að gjöra svo vel að sækja hæstv. utanrrh. Hann er hér í húsinu.
--- Hæstv. utanrrh. er genginn í salinn.) Já, ég sé að hæstv. ráðherra er kominn hér og þá er mér ekkert að vanbúnaði að halda hér fram þeirri ræðu sem ég hóf hér fyrir frestun fundar. Ég gat þess þá, virðulegur forseti, að ég teldi nauðsynlegt að þessi mál sem hér eru til umræðu verði rædd hér á hv. Alþingi í samhengi við þá stefnu sem liggur að baki þeim heræfingum sem hér eru boðaðar, í samhengi við þá stefnu sem Ísland er þátttakandi í sem aðili að Atlantshafsbandalaginu og í samhengi við dvöl bandaríska herliðsins hérlendis, þ.e. í hvaða tilgangi þetta herlið er hér að mati þeirra sem því stjórna. En mér finnst sem það vilji gleymast mönnum, og
ábyrgðaraðilum í íslenskum stjórnmálum eins og hæstv. utanrrh., að minnast þess inni í hvaða samhengi við erum að tala hér um þessi mál.
Hæstv. ráðherra, svo að ég víki að hans máli sérstaklega í upphafi þessa framhalds á mínu máli, lét að því liggja að þetta herlið sem hingað er væntanlegt til æfinga sé tilkvatt að ósk Íslendinga sjálfra, tilkomið og nánast samankvatt vestra og sett á fót, þetta varalið, að ósk íslenskra stjórnvalda. Og það mátti heyra í máli hv. 1. þm. Suðurl. Þorsteins Pálssonar að þetta væri einnig hans skoðun. Hann tók undir þetta mat. Og hv. þm. Þorsteinn Pálsson, sem hældi hæstv. utanrrh. sérstaklega í sínu máli fyrir þá stefnu sem hann hefði framfylgt til þessa, ræddi það sérstaklega að nauðsyn væri á því að gera kröfur til varnarliðsins, sem hann kallar svo, um að það ræki skyldur sínar.
Ég held að það sé augljós blekking sem hér er verið að bera á borð fyrir hv. þingmenn, að ætla okkur að trúa að það svokallaða varalið sem sett var á laggirnar vestur í Bandaríkjunum þegar tekið var að fækka í fastaherliði Bandaríkjanna, upp úr 1980, sé til orðið samkvæmt óskum Íslendinga sjálfra og að sú sveit sem hér um ræðir, 187. sveitin í þessu varaliði, sveit sem mun telja 4000--5000 hermenn þegar þeir eru komnir í búninga, sé hingað komin vegna óska íslenskra stjórnvalda. Það má auðvitað reyna að segja okkur margt hér. Ég veit að það er vitnað í skýrslu fyrrv. utanrrh., Geirs Hallgrímssonar, frá 1984, það var gert hér af hæstv. ráðherra, til þess að færa rök fyrir því að þetta varalið sé tilkomið vegna óska íslenskra stjórnvalda. Ég vil ekki leiða að því getum hvaða viðræður hafa farið fram á milli hv. þáv. utanrrh. Geirs Hallgrímssonar og yfirmanna herliðsins á Keflavíkurflugvelli áður en hann tók að ræða um sjálfstætt íslenskt frumkvæði í þessum efnum. En margt er þó ósennilegra en það að fram hafi komið ábendingar vestan að þess efnis að það væri að mati Bandaríkjamanna nauðsynlegt að koma hingað varaliði á hættutímum, að þeirra mati, að skapa hér aðstæður til þess að taka við slíku liði, og síðan kemur það fram hér á Alþingi Íslendinga að Íslendingar þurfi að efla frumkvæði sitt.
Það væri ástæða til þess, út frá þessum forsendum, virðulegur forseti, að athuga hvernig þá fram hafi verið haldið þessu íslenska frumkvæði, hvernig menn sýna fram á það að það hafi verið haldið fram þessari stefnu sem hv. þm. Þorsteinn Pálsson var að hæla utanrrh. fyrir að standa svo vel að. Það er gert með því að þessar áætlanir og þetta frumkvæði íslenskra stjórnvalda með sérstökum áætlunum varðandi varnir á ákveðnum stöðum hér, ákveðnum mannvirkjum, ættu að koma til og gott ef hæstv. forsrh., þá utanrrh., á árinu 1988, vísaði ekki einnig til þess í skýrslu sinni til Alþingis, að það þyrfti sérstök samráð við Íslendinga m.a. um áætlanir af þessu tagi. En þessar áætlanir hafa ekki enn verið gerðar. Áhuginn á þessum málum út frá forsendum þeirra sem styðja dvöl erlends herliðs í landinu og aðild okkar að Atlantshafsbandalaginu er ekki meiri en svo í reynd að frá árinu 1984 að boðað var þetta íslenska
frumkvæði og sett var upp þessi varaliðssveit vestur í Bandaríkjunum til að koma hingað, til að hafa samráð við Íslendinga um svokallaðar varnir landsins, hefur þessi áætlun ekki verið gerð. Það liggur engin áætlun fyrir hjá varnarmáladeild utanrrn. varðandi óskir íslenskra stjórnvalda um þátttöku þessa varaliðs í vörnum Íslands á forsendum þeirra aðila sem eru að segja að þetta sé tilkomið fyrir frumkvæði Íslendinga. Fimm ár eru liðin. Áhyggjufullir utanríkisráðherrar hafa setið í stjórnarráðinu þennan tíma, þóst vera að byggja upp eitthvert íslenskt frumkvæði. Þeir hafa ekki haft fyrir því að búa til eina einustu áætlun, ekki pappírsgagn um þátttöku þessa varaliðs í svokölluðum vörnum Íslands, að benda á einhverja tiltekna staði sem þeir teldu nauðsynlegt út frá íslenskum aðstæðum og sínum forsendum að varðir yrðu. Sjá menn ekki í gegnum blekkingarnar á bak við þetta? Sjá menn ekki það sem er viðurkennt af Bandaríkjamönnum og þeim sem þora að ræða þessi mál í hreinskilni eins og þau liggja fyrir, að það er vegna hagsmuna Bandaríkjanna og hernaðarhagsmuna þeirra og vegna herstöðvanna sem þeir hafa komið sér upp hér á Íslandi sem á að kveðja þetta varalið til og verið er þjálfa það hér á Miðnesheiði? Það hefur verið gert einu sinni og á að endurtaka það í mun stærri stíl að vori til að kynna því íslenskar aðstæður að kallað er í júnímánuði, í blíðunni.
Nei, það er ekki íslensk hugsun sem liggur þarna að baki eða íslenskt mat. Það er mat þeirra sem stjórna hernaðaráætlunum á Norður-Atlantshafi. Það er
mat bandarísku yfirherstjórnarinnar sem liggur þarna að baki. Og það fer ekkert á milli mála hvert verkefni þessa varaliðs er. Halda menn að það sé að verja Íslendinga, almenning á Íslandi, Reykjavíkurborg og Reykjavíkursvæðið fyrir ógnum styrjaldar? Nei, til þess er það ekki komið. Þetta varalið á að glíma við svokallaðar skemmdarverkasveitir hins hugsaða óvinar, gagnaðilans, sveitir sem hjá Rússum eru kallaðar spetznaz-sveitir, og Bandaríkjalið gerir ráð fyrir að yrðu sendar hingað á spennutímum, reynt að koma hingað til lands til þess að trufla starfsemi herstöðvarinnar, fjarskiptakerfið og allt sem því tengist. Það er við slíkar sveitir sem þessu varaliði er ætlað að glíma öðru fremur. Það er fullyrt, m.a. af varnarmálaskrifstofunni svokölluðu hér í Reykjavík, að slíkar sveitir gætu verið alvarleg ógnun við starfsemina á Keflavíkurflugvelli, herstöðina, ef þær væru komnar hingað og feldu sig í Hafnarfjarðarhrauni eða í hraununum þarna á Reykjanesskaga með léttar sprengivörpur sem geta skotið eldflaugum og þekktar eru t.d. úr stríðinu í Afganistan og hernaðarátökum fyrir botni Miðjarðarhafs.
Þetta er ekki mitt mat. Þetta er mat frá varnarmálaskrifstofunni hér í Reykjavík. ( EKJ: Hvar er það að finna?) Já, hvar er það að finna, segir hv. fyrrv. formaður utanrmn. Alþingis. ( EKJ: Ég hef aldrei heyrt þetta áður.) Maður sem hefur aldrei heyrt þetta og það kemur mér sannarlega ekki á óvart því
að áhugi hv. þm. á að kynna sér bakgrunn þeirra herstöðva sem hann lofar og blessar hér á landi og er einn þátttakenda í að hér verði við haldið um langa framtíð. Hann hefur ekki hugmynd um það, --- hann viðurkennir það hér á Alþingi --- hann hefur ekki hugmynd um það hvað verið er að sýsla, inni í hvaða samhengi unnið er í þessari herstöð. Hv. þm. var einu sinni ritstjóri Morgunblaðsins og ég hygg að hann geti lesið sér ýmislegt til í því málgagni. En sjálfsagt veit hann eins og ég að það er ósköp takmarkað að marka margt af því sem þar stendur. Þó hef ég séð þar ritað um einmitt það sem hv. þm. er að spyrja um hér úr sæti sínu á Alþingi. Það er hins vegar rétt, vegna þessa áhuga hv. þm. Eyjólfs Konráðs Jónssonar á þessum málum og þeirrar vanþekkingar sem hann opinberar hér úr sæti sínu á Alþingi, að það komi fram að sem formaður utanrmn. Alþingis varð hann ekki við ítrekaðri beiðni minni á síðasta ári að herstöðvarnar hérlendis yrðu teknar til umræðu í utanrmn. Alþingis í samhengi við þá stefnu, hina svokölluðu sóknarstefnu bandaríska flotans sem tengist þessum herstöðvum og sem þessar herstöðvar eru þátttakendur í, eru hlekkur í. Hv. þm. hafði ekki fyrir því frá því að þessi beiðni var borin fram eftir að við heimsóttum Keflavíkurflugvöll á síðasta útáliðnum vetri, 1988, að taka þetta mál fyrir þrátt fyrir ítrekaða beiðni af minni hálfu.
Það sama hefur gerst í núverandi utanrmn. Alþingis að þetta mál hefur ekki fengist tekið þar á dagskrá. Meiri hluti utanrmn. Alþingis hefur þau ár sem ég hef verið þar ekki haft áhuga á því að ræða þessi mál í sinn hóp. Eina verulega umræðan sem þar fór fram þau fimm ár sem ég lít til baka hér varðaði uppkomu hernaðarratsjárstöðvanna vegna þáltill. sem lá fyrir nefndinni um að hafna byggingu þessara hernaðarratsjárstöðva. Yfir það mál var farið í utanrmn. en þar með er nánast upp talið hvað snertir umræðu um hin svokölluðu varnar- og öryggismál Íslands á þeim vettvangi. Og það eru formenn þessara nefnda, stuðningsmenn herstöðvanna hér eins og hv. þm. Eyjólfur Konráð Jónsson, sem hafa komið í veg fyrir það sem formenn í þessum nefndum að þessi mál væru tekin til umræðu á þeim vettvangi. Þetta er ótrúlegt og ég hef helst ekki viljað taka það til umræðu hér opinberlega á Alþingi hvernig að þessum málum er staðið innan nefndar sem er ætlað veigamikið hlutverk hér af hálfu þingsins og ætti að vera vettvangur þar sem menn skiptast á skoðunum um mál sem að ýmissa mati eru talin viðkvæm. Ég segi út af fyrir sig að það getur verið alveg á réttum stað að ræða ákveðna hluti einmitt í hóp manna í utanrmn., sem varða heildarhagsmuni Íslands, hagsmuni landsins út á við og það væri mjög eðlilegt að málefni eins og þau sem hér er um að ræða, herstöðvarnar og hernaðaráætlanir varðandi Norður-Atlantshaf og þær heræfingar, sem hér eru til umræðu, yrðu teknar til ítarlegrar umræðu á þeim vettvangi, vettvangi utanrmn. þingsins. Ég vona að þessi umræða verði til þess að hreyfa við mönnum í þá átt því að ég er sannarlega reiðubúinn til að taka
þátt í því á þeim vettvangi að ræða þessi mál, m.a. við hv. þm. Eyjólf Konráð Jónsson sem sæti á í nefndinni.
Það er nú svo að það liggur margt fyrir um þetta samhengi ef menn vilja kynna sér það. Það hafa orðið miklar breytingar á eðli herstöðvanna á Íslandi samhliða breytingum í hermálastefnu Bandaríkjanna og þá sérstaklega bandaríska flotans sem tengist þessum herstöðvum á Íslandi. Þessar breytingar varða stjórnartímabil Reagans forseta árin um og eftir 1980 og Lehman, sem var flotamálaráðherra í forsetatíð Reagans og er stefnan gjarnan við hann kennd.
Ég tel ástæðu til þess, virðulegur forseti, ekki síst af því að hv. þm. Eyjólfur Konráð Jónsson óskar eftir upplýsingum úr sæti sínu, að rifja upp fyrir hv. þingmönnum svolítið af því sem fram kom í umræðum í undirnefnd hermálanefndar öldungadeildar Bandaríkjaþings þann 19. mars 1984, en þá voru þar á vettvangi nefndarinnar til þess að ræða um þessa nýju flotamálastefnu
Bandaríkjanna, svokallaða sóknarstefnu þeirra á norðurslóðum, ekki minni karlar, ekki óþekktari nöfn en Samuel Nunn, formaður hermálanefndarinnar, sem hefur komið til umræðu og verið í fjölmiðlum í tengslum við hrakfallabálkinn Tower, sem Bush, forseti Bandaríkjanna, ætlaði að gera að sínum hermálaráðherra en Samuel Nunn og fleiri menn komu í veg fyrir það. Þeir töluðust við á vettvangi undirnefndar hermálanefndar Bandaríkjaþings þann 19. mars, Samuel Nunn og umræddur John Lehman, þáv. flotamálaráðherra Bandaríkjanna. Ég hef hér fyrir framan mig orðrétta þýðingu á þessum umræðum, en ætla ekki að taka nema glefsur úr því sem þar kom fram. Þessi fróðlega samantekt er unnin af Vigfúsi Geirdal og er að finna í Þjóðviljanum í maímanuði, dagsetninguna sé ég ekki hér í fljótu bragði en ég hygg að það sé 6. maí 1988 sem þessi grein birtist. Ég kom henni raunar á framfæri við utanrmn. á sínum tíma jafnhliða óskum mínum um það að mál þessi yrðu rædd þar á vettvangi nefndarinnar.
Höfundur þessarar samantektar, Vigfús Geirdal, segir í aðdraganda að þýðingu á orðræðum þeirra Samuels Nunn og Johns Lehman eftirfarandi, með leyfi virðulegs forseta: ,,Í þessum umræðum kemur nokkuð skýrt í ljós þáttur Íslands og ,,varnarliðsins`` í þessum hernaðaraðgerðum ef af þeim verður. Vert er að taka vel eftir kjarnanum í gagnrýni Samuels Nunn. Í fyrsta lagi telur hann að með þessari stefnu sé verið að ógna alvarlega viðkvæmasta og mikilvægasta þættinum í langdrægum kjarnorkuherafla Sovétríkjanna. Í öðru lagi segir hann að með því að beita (fimm) flugvélamóðurskipaflotum til árása á sovéskt land sé verið að rétta Sovétmönnum beinlínis upp í hendurnar mikilvægt en auðvelt skotmark sem þeir bókstaflega kæmust ekki hjá að beita kjarnavopnum gegn.
Þessi tvö atriði telur hann að muni stórauka hættuna á að kjarnorkustyrjöld brjótist út.`` --- Þetta er Samuel Nunn, formaður hermálanefndar Bandaríkjaþings. --- Þriðja sjónarmiðið sem fram
kemur hjá Nunn og ekki er sérlega uppörvandi fyrir okkur Íslendinga er spurning hans hvers vegna ekki sé lögð meiri áhersla á að beita herflugvélum frá stöðvum í landi í þessum aðgerðum fremur en frá flugvélamóðurskipum.
Síðan kemur tilvitnun í orðræður þeirra fyrir hermálanefndinni. Samuel Nunn segir:
,,Stóra spurningin er ekki hvort við ætlum okkur að halda yfirráðum heldur með hvaða ráðum við ætlum okkur að halda yfirráðum, og hvort þú ætlar [hann talar til Johns Lehman] þér raunverulega að senda flugmóðurskip inn á þetta svæði með það fyrir augum að tryggja yfirráð þar, eða hvort þú ætlar að færa átökin alla leið inn á sovéskt landsvæði eins og þú hefur sagt. Enginn dregur mikilvægi þessa svæðis í efa. En hér er gert ráð fyrir að við myndum ekki byrja á að senda flugmóðurskip þarna norður fyrr en við hefðum algerlega tryggt stöðu okkar á Grænlandi, Íslandi og Bretlandseyjum, og þá er auðvitað rökrétt að spyrja: Ef við ráðum þessum löndum, hvers vegna beitum við þá ekki flugvélum frá herstöðvum í þessum löndum í miklu ríkari mæli en þú hefur talað um? Ég varð var við að mikils ósamræmis gætti milli þín og flotaforingja sjóhersins í þessu máli.``
Lehman svarar: ,,Staðreyndin er sú að ég hef aldrei sagt að við ætluðum að sigla flugmóðurskipunum þarna upp eftir til að senda nokkrar A-6'ur inn á karlaklósettið í Kreml, eins og Barry Goldwater segir. Það sem ég hef sagt er að við verðum að hefja sóknaraðgerðir strax í upphafi. Við verðum að senda kafbáta þangað upp eftir. Aðgerðirnar verða enn fremur að byggjast á flugvélum sem staðsettar eru í herstöðvum á landi, það verður að gera út fjölda Orion-flugvéla og Nimrod-véla frá Íslandi og Bretlandi. Kafbátarnir okkar verða að gjöreyða kafbátaflota Sovétríkjanna áður en við getum sent nokkur ofansjávarskip á vettvang, vissulega áður en við sendum landgönguliðana þangað í landgönguskipum. Og þegar við teljum það tryggt verðum við að geta notað flugmóðurskip á svæðinu til að veita hersveitunum þarna á svæðinu stuðning úr lofti svo þeim takist að tryggja varnir Noregs.``
Og enn spyr Nunn: ,,Það er hins vegar spurning með hvers konar vígbúnaði þú framkvæmir þetta. Þið gerið ráð fyrir að ráða Bretlandi, Noregi og Grænlandi. Spurningin er hvort þú ætlar að setja dýrmæt tæki eins og flugmóðurskip þarna upp eftir, beint inn á mitt svæði Sovétríkjanna, þegar hægt er að gera þetta með flugvélum frá herstöðvum í landi.``
Og Lehman svarar:
,,Hvernig ætlarðu að gera þetta með flugvélum frá herflugvöllum? Flestar taktískar flugvélar í eigu Bandaríkjanna draga ekki lengra en um 450 km.``
Og Nunn segir: ,,Hvað ætlar þú að gera, ef þeir byrja að plamma á okkur skammdrægum kjarnavopnum á þessum slóðum þegar þú ert kominn þangað með öll þessi risastóru flugmóðurskip?``
Og Lehman segir: ,,Ja, hvað heldur þú að verði um landherstöðvar okkar á þessum slóðum (Íslandi, Grænlandi, Noregi og Bretlandseyjum) þegar þeir
byrja að plamma skammdrægum kjarnavopnum?``
Ég get eftir atvikum, virðulegi forseti, látið þessar glefsur nægja úr þessum fróðlegu viðræðum Samuels Nunn og Johns Lehman árið 1984, viðræðum við
manninn sem mótaði þá breyttu stefnu Bandaríkjahers, flota Bandaríkjanna sem kennd hefur verið við sókn, sóknarstefnu norður í höf. Og í staðinn fyrir að stöðva Sovétherinn hefur hún hlotið einkennisorðin ,,sökkvið sovéska flotanum``, fylgið eftir af fullum þrótti, að þeirra mati.
Ég vænti þess að menn hafi tekið eftir þegar hann spyr: Hvað heldur þú að verði um landherstöðvar okkar á þessum slóðum? Hvað halda menn að verði um landherstöðvarnar hérna í Keflavík ef til þessarar alvöru dregur, þessa hildarleiks sem þarna er undirbúinn og áætlanir liggja fyrir um? Hvað halda menn að verði um almenning hér á þéttbýlisstöðunum við Faxaflóa ef til þess kemur? Það kann að vera að það hjari einhverjir í hinum styrktu stjórnstöðvum á Keflavíkurflugvelli þar sem unnt á að vera að halda út eða gefa fyrirskipanir í eina viku í algjöru stríði. En það verður lítið eftir af fólkinu, Íslendingum hér í nágrenni þessarar herstöðvar.
Herliðið sem á að koma til að æfa hér er ekki til þess að tryggja að það lifi fleiri Íslendingar af, heldur til þess að hægt sé að halda leiknum eitthvað lengur gangandi úr stjórnstöðvum Bandaríkjahers á Keflavíkurflugvelli. Það er veruleikinn á bak við það sem hér er verið að ræða.
Svo kemur formaður Sjálfstfl. hér upp í ræðustól, setur upp sakleysissvip og segir: Það verður að tryggja, Íslendingar verða að ganga eftir því að varnarliðið verji okkur. Það segir formaður flokksins sem verið hefur í fararbroddi fyrir þeirri stefnu sem fylgt hefur verið frá því að Ísland var knúið í Atlantshafsbandalagið árið 1949. Hvað hafa þessir heiðursmenn verið að gera á þeim árum, á þeim 40 árum sem liðin eru síðan Ísland var knúið inn í Atlantshafsbandalagið? Á þeim 38 árum sem liðin eru frá því að hingað kom í skjóli leyndar og þagnar, og fram hjá Alþingi, bandarískt herlið er tók sér bækistöð á Miðnesheiði og hreiðraði um sig víðar á landinu? Hvað hafa þeir verið að gera? Ekki til ein einasta áætlun í skúffunum uppi í varnarmálaskrifstofu, hvað þá annars staðar, um það hvernig eigi að reyna að tryggja það að verja fólk á Íslandi, ekki einu sinni að verja mannvirki á Íslandi utan herstöðvanna, mannvirki sem tengjast þessum herstöðvum. Þeir hafa ekki einu sinni haft fyrir því. Slíkur er loddaraleikurinn, slíkt er tómið á bak við þær fullyrðingar sem hæstv. utanrrh. kemur fram með og ber hér á borð fyrir menn í ræðu sinni.
Íslenskt frumkvæði! Varnir Íslands! Það liggur við, virðulegur forseti, að það megi nota orðið húmor um málflutning þessara manna ef alvaran væri ekki meiri á bak við það efni sem við erum hér að ræða.
Hæstv. utanrrh. sagði í máli sínu að ákvörðun í því efni sem hér er rætt sérstaklega varðandi hinar ráðgerðu heræfingar að vori séu á hans hendi og ríkisstjórnar Íslands. Ég vænti að hæstv. ráðherra taki
eftir því að á mál hans var hlýtt hér áðan og eftir því tekið að hann sagði að ákvörðun í þessu máli væri ekki aðeins hans sjálfs sem utanrrh. heldur ríkisstjórnar landsins. Það sagði ráðherrann. Hann sagði jafnframt að það ætti eftir að fjalla um málið í ríkisstjórn landsins.
Ég rifjaði það upp fyrr í umræðunni að tveir af þremur flokkum í ríkisstjórn landsins hafa lýst viðhorfum sínum til þessa máls, þar á meðal sjálfur forsrh. ríkisstjórnarinnar og því verður auðvitað ekki trúað að þessi ríkisstjórn fari að standa fyrir því að hingað verði dregið þetta varalið á vegum Bandaríkjanna upp á Reykjanesskaga, upp úr þjóðhátíðinni íslensku, og látin ólmast þar með sín vígtól kringum Jónsmessuna að vori, mestu heræfingar sem hér hafa farið fram um langt skeið, storkandi hvernig sem á málið er litið. Við sem erum stuðningsmenn stjórnarinnar hér á Alþingi og lítum á þessi mál þeim augum sem ég hef hér dregið upp, við mótmælum því að til þess komi að þessar heræfingar fari fram. Við gerum kröfu til ríkisstjórnarinnar að hún sjái til þess að af þessum heræfingum verði ekki. Það mætti vera fyrsta skrefið af mörgum sem stíga þarf til að hreinsa þann blett af Íslandi sem á það hefur fallið um áratugaskeið, þá hlekki sem Ísland hefur verið fjötrað í, þá hernaðarhlekki sem landið hefur verið fjötrað í um áratugi og sjái til þess að land okkar verði á ný friðlýst land og herlaust land og leggi sín lóð á vogarskálar afvopnunar og friðar í heiminum. Það eitt væri í samræmi við stöðu okkar og sögu, stöðu okkar sem vopnlausrar smáþjóðar sem á sitt undir því að friður haldist í heimi og friðsamlegt sé í heiminum. En það gerum við ekki með því að tengjast hernaðarbandalögum, hvort sem væri í austri eða vestri.
Einn var sá þáttur í máli hæstv. utanrrh. sem ég hlýt að víkja að sérstaklega og var dapurlegasti kafli í ræðu hæstv. ráðherra, og lýsti hún þó ekki af neinni bjartsýni í heild sinni og síst af öllu af þeirri sýn til mála sem ég hefði óskað og kosið að birtist í máli manns sem á stundum vill kenna sig við jafnaðarmennsku --- og mætti sitthvað læra af þeim sem ganga undir þeim merkjum annars staðar í heiminum --- en það var sá þáttur sem varðaði aðild íslenskra stofnana að þeim heræfingum sem ráðgerðar hafa verið af Bandaríkjamönnum hér um langnættið í júnímánuði. Það var þátttaka Almannavarna Íslands og þeirra sem fjarskiptum ráða á Íslandi, Pósts og síma væntanlega, í þessum stríðsleik sem þarna á sviðsetja. Og tóku menn eftir því hvernig hæstv.
ráðherra hagaði máli sínu varðandi þetta? Hann greindi okkur frá því að að sínu mati lægjum við talsvert eftir, skorti talsvert á að við hefðum sinnt þessum þáttum eins og skyldi og samhæft æfingar erlends hers í landinu við starfsemi innlendra aðlila eins og Almannavarna og Pósts og síma.
Hæstv. ráðherra greindi frá því sjónarmiði sínu að hann teldi það bæði æskilegt og nauðsynlegt að slík samhæfing færi fram jafnvel þótt það þýddi það að einhverjir þyrftu að fara út fyrir hin svonefndu
varnarsvæði að vori, væntanlega, því hæstv. ráðherra botnaði þetta með því að segja að hann vildi helst sjá að þessi minni háttar hliðaræfing, eins og hæstv. ráðherra kallaði þessa samtengingu íslenskra stofnana við bandaríska herliðið, að þessi minni háttar hliðaræfing fari fram með aðilum frá hernum sem fari út fyrir varnarsvæðin svokölluðu.
Ég vænti að hæstv. forsrh. hafi lagt við hlustir þegar þessi boðskapur var framreiddur hér. Það er þessi málflutningur sem vekur ugg hjá mér. Við höfum ekki útilokað að hæstv. ráðherra kunni að komast að réttri niðurstöðu í þessu máli, aflýsa heræfingunum, reisa sig og segja: Hér tökum við fyrsta skrefið af Íslands hálfu til þess að draga okkur út úr stríðsleiknum, út úr stríðsleik Lehmans og félaga vestra sem gerir nú ekki ráð fyrir að mikið verði eftir af landherstöðvunum hérna norður frá eftir að hjólin eru farin að snúast hjá þeim eftir skipanir frá Pentagon. Er það alvara hæstv. utanrrh., getur það verið alvara hæstv. ráðherra að hann geti séð fyrir sér að það verði sett hér á svið samtengd æfing íslenskra stofnana og hersins á Miðnesheiði með þátttöku aðila sem fari hér um landið utan hinna svokölluðu varnarsvæða til þess að tengja Íslendinga enn nánar inn í þennan hroðalega leik heldur en orðið er?
Hæstv. ráðherra lýsti því undir lok máls síns að hann teldi æskilegt að lagt yrði sjálfstætt mat á þessa hluti af hálfu okkar Íslendinga. Ég tek undir það með hæstv. ráðherra, ég tek undir orð sem falla í þá átt. Auðvitað eigum við Íslendingar að leggja sjálfstætt mat á okkar hagsmuni í þessum efnum. Það höfum við ekki gert, það erum við ekki að gera og það er ekkert sem bendir til þess að það sé einhver metnaður hjá þeim aðilum sem hér hafa ráðið ferðinni í svokölluðum öryggis- og varnarmálum að hugsa sjálfstæðar hugsanir út frá íslenskum hagsmunum. Lítilþægnin í þessum efnum er svo ótrúleg. Ég verð að segja það eftir reynsluna af því að hafa setið í utanrmn. Alþingis í líklega fimm ár að lítilþægnin í þessum efnum er aldeilis ótrúleg af hálfu þeirra aðila sem hér hafa haldið á málum og hér hafa farið með völdin í raun í þessu efni. Lýsir sér í því að utanrmn. er boðið að fara suður á Keflavíkurvöll og skoða tólin þar, líta svona á vígtólin og fá sér kaffisopa undir fyrirlestri yfirstjórnar hersins þar. En að verja dagstund í utanríkismálanefnd þingsins til að ræða málin í framhaldi af slíkri heimsókn? Til þess má ekki taka tíma, hv. þm. Eyjólfur Konráð Jónsson, til þess má ekki taka tíma. Þau orð geta einnig gilt um núv. borðsenda í utanrmn.
Það er ekki áhugi hjá þeim aðilum sem hér eiga hlut að máli að þessi mál séu rædd af alvöru og farið ofan í samhengi hlutanna. Auðvitað hljótum við að spyrja okkur: Hvernig stendur á þessu? Ég hef spurt mig: Er það vegna þess að þessir menn eru að lesa þetta heima, hafa bækurnar á náttborðinu, eru að stúdera þetta í stofunni heima eða á þingflokksfundum Framsfl., Sjálfstfl. og Alþfl., þessara herstöðvaaðdáenda frá fyrri tíð sem borið hafa ábyrgðina á þeirri siglingu sem hér hefur farið fram,
þeirri háskasiglingu sem Ísland hefur verið gert að þátttakanda í á undanförnum árum og áratugum? Er það svo að þeir verji miklum tíma í þingflokksherbergjunum til þess að ræða þessi mál, virðulegur forseti? Hefur virðulegur forseti hlýtt á margar slíkar gagnrýnar yfirferðir í þingflokki Framsfl. á herstöðunni á Norður-Atlantshafi, samhenginu Keflavík--Stokksnes--Gunnólfsvíkurfjall o.s.frv.? Það er vel hægt að upplýsa þetta hér við umræðuna.
Hafa menn í þingflokksherbergi Alþfl. tekið sér tíma til að fara ofan í saumana á þessu? Mér hefur heyrst hv. þm. Árni Gunnarsson kvarta á stundum undan því úr sæti sínu hér, hann hefur ekki haft mjög hátt um það hér í ræðustól, að það hafi farið heldur lítið fyrir umræðum um þau efni í þingflokksherbergjum Alþfl. og annars staðar þar sem forusta hans sest á stóla.
En kannski Sjálfstfl. hafi tekið sér tak og ræði þessi mál þrátt fyrir fákunnáttu hv. þm. Eyjólfs Konráðs Jónssonar eða það sem túlka má sem slíkt þegar hann kastar hér fram spurningum úr sæti sínu á þingi og segist ekkert botna í þessu. Kannski hafa menn verið að ræða þessi mál í niður grunninn þar, hermálastefnu Bandaríkjamanna, flotastefnu Lehmans, flotamálaráðherra Bandaríkjanna, og hvaða þýðingu það hefur fyrir herstöðvarnar á Íslandi og þátttöku okkar í Atlantshafsbandalaginu. Kannski hefur hv. þm., fyrrv. hæstv. ráðherra, Matthías Á. Mathiesen haldið skynuga fyrirlestra í þingflokki Sjálfstfl. um þessi efni, eitthvað skynsamlegra en heyrðist frá honum sem ráðherra hér í sölum Alþingis á meðan hann fór með utanríkismál, því að það var því miður ansi magurt. Eða er það svo að menn bara stingi hausnum í sandinn, vilji ekki ræða þessi mál og treysti á forsjónina vestur í Pentagon? Er það þannig? Og hugsi sem svo: Ja, það er nú ágætt að hafa þetta lið hérna,
þetta gefur bara heilmikið af sér hér. Þó að við afneitum aronsku, þá er það ekki lítill þáttur í gjaldeyrisöflun á Íslandi, ekki smáir gullmolarnir sem hrjóta af borðum þessa liðs hér inn í íslenskan búskap til gæðinga sem standa þessum flokkum ansi nærri og væru tilbúnir að kosta svo sem eitt fræðslunámskeið, ef svo bæri undir, um þessi efni fyrir mennina sem standa að og tryggt hafa þessa stefnu.
Virðulegur forseti. Sums staðar er rætt um þessi efni. Það var t.d. haldinn fundur í félagsskap sem heitir Varðberg þann 18. mars sl. og kannski voru einhverjir hv. þm. viðstaddir á þeim fundi. Það kynni að vera. Hver halda menn að hafi verið gestur fundarins? Hver halda menn að hafi verið gestur á þeim fundi 18. mars sl. hjá Varðbergi? ( Gripið fram í: Það var auglýst.) Það var auglýst. Það var ekkert verið að leyna því. Gestur fundarins var yfirmaður herliðsins á Keflavíkurflugvelli. Sá heitir McVadon. Hluti af máli hans var tíundaður á síðum Morgunblaðsins þann 21. mars sl., en þó ekki allt. Hermt er af trúverðugum aðilum að McVadon hafi m.a. mælt eitthvað á þá leið þegar hann var að ræða um ,,háborg kafbátavarnanna``, eins og Morgunblaðið
hefur eftir honum að hann taldi herstöðina Keflavík vera, háborg kafbátavarnanna, þegar hann var að ræða um þessa háborg kafbátavarnanna, þá greindi hann söfnuðinum í Varðbergi frá því ,,að við vitum að þeir vita að við erum hér til langframa``. Á máli þeirra í Pentagon eitthvað á þá leið: ,,We know that they know that we are here to stay.`` Þetta er á árinu 1989, á 40 ára afmæli Atlantshafsbandalagsins. Þá skreppur það upp úr yfirmanni Bandaríkjahers á Íslandi í söfnuði útvalinna, Varðbergi, að Bandaríkjamenn viti að Rússarnir viti að Bandaríkjamenn eru komnir hér til að vera --- ,,that we are here to stay`` --- og það er kannski kjarni málsins. Það er kjarni þess máls sem við ræðum hér. --- Hvar er hæstv. ráðherra? ( Gripið fram í: Hann er hérna.) Hann er þar. ( EG: Og nýtur látbragðslistar ræðumanns.) --- Það er kjarni þess máls sem við ræðum hér.
Ætla menn að sætta sig við þá staðreynd að yfirmenn Bandaríkjahers á Íslandi og yfirmenn Bandaríkjahers vestra séu farnir að tala um það feimulaust og láta hafa eftir sér á prenti að Íslendingar séu orðnir svo samdauna hersetunni að þeir séu farnir að viðurkenna hana sem sjálfsagðan hlut, að það sé hægt að segja við þá: Við erum komnir hér til að vera. Orðin sem hrjóta stundum af talsmönnum herstöðvanna hér á Alþingi í umræðum þess efnis að Íslendingar geti hvenær sem er sagt við þetta lið: Farið þið heim. Við höfum þetta allt á okkar valdi, við getum vísað þeim burtu og ætlað þjóðinni að trúa. Ég er ekki að segja að við höfum ekki þetta formlega vald og gætum látið reyna á það strax í dag. En herliðið og bakmenn þess treysta því að þannig sé komið fyrir íslenskri þjóð að þeir hafi náð því markmiði sem Bandaríkin settu sér við lok síðasta stríðs að tryggja sér herstöðvar á Íslandi um alla framtíð, á máli hersins og í samningum sem gerðir voru við sumar aðrar þjóðir á þeim tíma til 99 ára. Ég held að þetta sé svo mikið alvörumál sem ég er að ræða hér að við þurfum öll á Alþingi Íslendinga að fara vandlega yfir það í hugum okkar og taka á því hér á Alþingi. Ætlum við að láta þetta gerast? Ætlum við að una því að Ísland verði stimplað inn sem útvarðstöð Bandaríkjanna, herstöð til langframa? Er þannig komið fyrir okkur?
Í öðru tímariti --- sem ég hef hér undir höndum og heitir Aviation Week, gefið út í Bandaríkjunum, sem fjallaði ítarlega í mörgum greinum um herstöðvarnar á Íslandi og átti viðtal við yfirmenn úr herstöðvunum þann 14. nóv. 1988 --- er ein millifyrirsögnin einmitt í þessa veru: ,,Íslendingar viðurkenna nálægð herstöðvanna`` --- ,,Icelanders accept U.S. military presence`` og þetta er undirstrikað í greininni. Íslendingar hafa tekið við hernum, tekið herinn að hjarta sér er kannski það sem liggur að baki orðanna. Og það stendur fleira í þessum greinum. Það stendur m.a. í þessum greinum, haft eftir yfirmanni flughersins á Keflavíkurflugvelli. Sá mun heita Stone og hann fræðir okkur á því að það þurfi ekki að spyrja íslensk yfirvöld, ekki að spyrja þau hið minnsta um það þó að fjölgað sé hér vígtólum til þátttöku í heræfingum
á norðurslóðum. Yfirmaður herliðsins, flughersins í Keflavík er kallaður Colonel, hann staðhæfir það að Bandaríkjaher hafi fullt vald til þess að fjölga herflugvélum á Íslandi í tengslum við æfingar á norðurslóðum.
Ég spurðist fyrir um það hjá varnarmálaskrifstofunni svokölluðu hvernig þeir litu á þetta, hvort þetta væri svona. Og ég fékk þau svör: Já, þetta er víst svona. Það er að vísu svo að það hefur verið talað um að þessi mál séu kynnt fyrir íslenskum stjórnvöldum, en formlega séð hafa Bandaríkjamenn þetta vald og þeir hafa notað það. Þeir notuðu það í sambandi við heræfingarnar ,,Teamwork`` í september sl., um það leyti sem ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar var að hrökklast frá völdum, á þeim haustdögum, þá var að koma hingað til Íslands liðstyrkur til þátttöku í heræfingunni ,,Teamwork`` sem hæstv. utanrrh. greindi frá og eru mestu heræfingar á norðurslóðum um langa hríð. Hingað komu 10 Phantom-orustuþotur til viðbótar við það lið sem fyrir er. Og það er svo smekklega frá því greint í Aviation Week, í þessu tímariti sem ég var að vitna til, að þessar Phantom-þotur geta borið nánast hvað sem er í vopnabúri flughersins. ,,They can carry almost everything in the U.S. Air Force
inventory.`` Svo að ekkert fari á milli mála.
Þeir eru ekkert að liggja á hlutunum í Aviation Week, hæstv. utanrrh. Þeir segja: Við höfum fullt vald til þess að koma hingað með flugflota í viðbót til þátttöku í slíkum heræfingum og þessar flugvélar geta borið nánast hvað sem er í vopnabúri flughersins. Og hvað gerðu íslensk stjórnvöld? Þau voru þó spurð um einn þátt í þessum heræfingum ,,Teamwork``, þau voru spurð um einn þátt. Þeir spurðu: Megum við nú ekki fljúga hérna inn yfir Ísland með herþoturnar okkar frá Theodore Roosevelt flugvélamóðurskipinu sem liggur hérna fyrir utan suðausturlandið? Megum við ekki koma inn í lágflugi og æfa árásarflug inn yfir Vatnajökul og norður yfir Vatnajökul? Þeir spurðu um þetta, hv. þm. Egill Jónsson, þarna rétt yfir minkabúunum í Nesjunum, í lágflugi. Hverju svöruðu íslensk stjórnvöld? Jú, auðvitað. Verið þið velkomnir. Gjörið þið svo vel. En þau höfðu ekki fyrir því að greina Íslendingum frá þessum æfingum. Það var ekki að finna orð um þessar æfingar herflugvéla í lágflugi inn yfir Vatnajökul, sem hefur nú ekki verið skilgreindur sem varnarsvæði enn sem komið er, ekki orð. Þeir máttu fara norður yfir Ódáðahraun í leiðinni.
Hvers konar samskipti eru þetta? Svo er hæstv. utanrrh. að bera saman þessar smávægilegu heræfingar væntanlegar á Miðnesheiðinni, eins og hann kallar þetta, smávægilegar æfingar sagði hann í sjónvarpi við þjóðina, við þessar miklu æfingar Teamwork sem tengdust Noregi. En þær tengdust bara ekki Noregi einum saman. Þær tengdust öllum norðurslóðum með þátttöku Íslands, íslensks lands, undir þetta herlið, undir þessar æfingar, undir þennan flugflota. Við erum hér þátttakendur í neti sem hv. alþm. margir hverjir hafa því miður ekki haft fyrir að mæla möskvana á.
Og vitið þið hvað yfirmaður bandaríkjahersins
sagði þeim á Varðbergsfundinum 18. mars annað en ,,that we are here to stay``, við erum komnir til að vera? Hann sagði þeim m.a. samkvæmt frásögn Morgunblaðsins: Ég lít á Ísland á vissan hátt sem mitt annað land --- á vissan hátt sem sitt annað land. Og það er auðvitað alveg rökrétt hjá yfirmanninum. Það er einmitt þannig sem Bandaríkjamenn vilja líta á þetta land, þetta eyland, og telja sig hafa efni á því. Og eitt aðalefni yfirmannsins, fyrir utan það að lýsa háborg kafbátavarnanna, var það að koma á framfæri við þessi góðu eyru á Varðbergsfundinum að það væri ekki vel gert að viðhalda þessum ströngu takmörkunum gagnvart því góða liði sem er hér til að verja okkur. Ég held að það sé meira að segja orðrétt tilvitnun í þetta í Morgunblaðinu --- ja, a.m.k. er það haft eftir honum í óbeinni ræðu þar sem segir: ,,Margir Bandaríkjamenn fyndu þó til óþæginda vegna takmarkana sem þeim væru settar með samningum milli ríkisstjórna Íslands og Bandaríkjanna og þeim þætti þeir ekki alltaf mjög velkomnir. Sumir leiddu rök að því að það væru gildar ástæður til að lofa Bandaríkjamönnunum ekki að búa í byggðarlögunum utan varnarsvæðisins eða fyrir útivistarbanni og ströngum tollareglum. Varnarliðsmenn vildu þó gjarnan sjá þessar reglur afnumdar eða mildaðar.`` Er ekki von? Heyrðum við það ekki? Heyrðum við ekki aumkunartóninn í hæstv. utanrrh. áðan? Er hægt að breyta áætluninni þegar mennirnir eru búnir að undirbúa sig, þeir eru búnir að dagsetja þetta, að þeir ætla að koma hingað á vordögunum? Getum við nú gert þeim það að fara að breyta þessum áætlunum, senda þá til Kanada í staðinn þar sem þeir voru þó að sprikla hérna fyrir nokkrum árum en vilja endilega koma hingað á vettvang? ( EgJ: Þetta er þinn ráðherra.) Hv. þm. Egill Jónsson. Já, þetta er þinn ráðherra. Ja, það mátti heyra svolítið annað hjá formanni Sjálfstfl. Hlustaði ekki hv. þm. á formann Sjálfstfl. í umræðunni? ( EgJ: Jú.) Hvað sagði hann? Hann sagði sko: Þetta er minn ráðherra. Fram að þessu hefur þetta verið minn ráðherra, í varnarmálunum er hann sko minn ráðherra. Hann hefur staðið sig vel. Og hann kinkar kolli þessu til staðfestingar. Hann hefur staðið sig vel. ( EgJ: Er þingmaðurinn ekki sammála þessu?) Hins vegar var einhver smábeygur í formanni Sjálfstfl. þess efnis að það kynni að draga til þess að hæstv. utanrrh. færi að líta eitthvað öðrum augum á málin. Hann hafði smábeyg og lýsti honum hér.
Í ræðu sinni, virðulegur forseti, vék Eric McVadon að þætti herliðsins, m.a. með þeim orðum að það er þó hamingjusamara, herliðið, og betri skammtímaíbúar þegar það finnur að þörf er fyrir það og mætir skilningi. Og í framhaldi af því segir hann ekki ósvipað og hæstv. utanrrh. gerði: ,,Varnarliðið á Íslandi egnir hvorki né ógnar.`` Við heyrðum þessi orð raunar hér úr ræðustól fyrr í þessari umræðu. Eins og nafnið bendir til, segir McVadon, þá þjónar það eingöngu vörnum Íslands --- þá þjónar það eingöngu vörnum Íslands og tryggir að Evrópa geti fengið liðsauka. Og leggið nú við hlustir: ,,Og það er atriði
sem verður því mikilvægara sem dregið er úr herafla Bandamanna í Evrópu`` --- og það er atriði sem verður því miður mikilvægara sem dregið er úr herafla Bandamanna í Evrópu. ,,Það er með þennan góða ásetning og markmið að leiðarljósi sem Bandaríkin og aðrar NATO-þjóðir halda úti vel búnu varnarliði á Íslandi sem ég vona að megi njóta betri skilnings og viðurkenningar Íslendinga``, mælti yfirmaðurinn á Varðbergsfundinum. Afvopnun í Evrópu. Aukin þörf liðsafla Bandaríkjamanna á Íslandi. Það er einmitt þetta sem við blasir.
Ég endurtek spurningu mína til hv. alþm.: Ætlum við að gera Ísland að útvarðstöð Bandaríkjahers til langframa? Er það ásetningur manna að láta þá bíta sig hér svo fasta eins og þessar heræfingar og það samhengi sem þær á að reka í eru eins og til þeirra er stofnað? Getur slíkt gerst í ríkisstjórn undir forsæti Steingríms Hermannssonar, hæstv. forsrh.? Ég vænti að það eigi ekki eftir að koma fyrir og ég vænti þess að hæstv. utanrrh., Jón Baldvin Hannibalsson, verði sá gæfumaður að snúa af þessum vegi, af þessum helvegi, og byrja að færa Ísland í átt að þeim stað þar sem það á heima í samfélagi þjóðanna sem sú smáþjóð sem við erum í samfélagi þjóðanna, vopnlaus og sem boðberar friðar og afvopnunar og reynum að rjúfa hlekkina sem við höfum verið bundin í á Norður-Atlantshafi.
Ég hef hér aðeins vikið að örfáum þáttum sem snerta þetta mál, virðulegur forseti, en það er nauðsynlegt þegar þessi mál eru tekin hér til umræðu að gefnu þessu stóra tilefni að við reynum að átta okkur á hvað er á ferðinni, hvað býr á bak við þær heræfingar sem hér á að stofna til að vori ef óskir Bandaríkjamanna þar að lútandi verða uppfylltar, hvað verður um Ísland nema við snúum frá, nema við snúum af þeirri götu sem við vorum teymdir inn á með inngöngu í Atlantshafsbandalagið 1949 og sem við höfum verið leidd eftir eins og sauðir í 40 ár þar sem utanríkisstefna Íslands hefur verið rekin á röngum forsendum og okkar málstaður hefur verið gerður allur annar en þær kynslóðir sem reistu lýðveldi á Íslandi ætluðu sér með því að tryggja sér hér sjálfstæði og frelsi. Við skulum vona að það tilefni sem er til þessara umræðna verði upphafið að því að menn verði fúsari til að horfa til forfeðra sinna og reynslu þeirra og líta inn í þá framtíð sem við þurfum að búa Íslendingum sem hlutlausri friðsamri þjóð hér úti í Atlantshafinu.