Heræfingar varnarliðsins
Mánudaginn 03. apríl 1989

     Matthías Á. Mathiesen:
    Virðulegi forseti. Ég vil taka undir það sem hv. 3. þm. Reykv. sagði nú hér rétt áðan og ég verð að segja alveg eins og er að mér fannst ég í minni ræðu halda mig alfarið að því málefni sem hér er til umræðu utan dagskrár. Þannig að sú athugasemd sem gerð var hafi þess vegna verið að ástæðulausu. En eins og áður hefur komið fram hefði aðalforseti miklu fyrr í kvöld mátt gera athugasemdir í þessu máli undir ákveðnum kringumstæðum.