Utanríkisráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson):
Virðulegi forseti. Það er komið fram yfir miðnættið. Það er næturfundur og sakar ekki þótt menn strjúki svolítið af sér heiðarleikann. Hv. málshefjandi, hv. 1. þm. Norðurl. v., sem hér lauk máli sínu lýsti því að hann hefði orðið fyrir vonbrigðum með ræðu þess sem hér stendur. Ég lýsi því hins vegar yfir að það er ekki gagnkvæmt. Ég varð ekki fyrir vonbrigðum með ræðu hv. 1. þm. Norðurl. v. Ég átti von á svona ræðu og held reyndar að henni sé ekkert illa lýst, og reyndar einni annarri ræðu sem hér var haldin í kvöld, af athugulum pallagesti og fastagesti hér í húsi og góðvini okkar allra, sem kenndur er við Dagverðargerði, sem sagði svo:
Heræfingahættur rekja,
heilasellur komma vekja.
Páls mun spilla pokaveiði
púðurskot á Miðnesheiði.
Það er tvennt sem ég sé ástæðu til að vekja máls á áður en þessari umræðu lýkur. Það eru annars vegar fullyrðingar um forsögu þessa máls og að rangt hafi verið farið með staðreyndir. Þá vísa ég einkum til þeirra orða hv. málshefjanda sem sagði að ég hefði haldið því ranglega fram að þessar æfingar færu fram að ósk Íslendinga og í annan stað að óskir um það séu ekki frá framsókn komnar.
Fleira í umræðunum gefur tilefni til að rekja samskiptaferil íslenskra stjórnvalda og bandarískra þannig að ekkert fari nú á milli mála og vek ég um leið athygli hv. málshefjanda á því að um leið og þessi samskipti eru rakin skal það tekið fram að hv. málshefjandi hefur verið stuðningsmaður allra þeirra ríkisstjórna sem hér um ræðir frá árinu 1980, þ.e. ríkisstjórnar Gunnars Thoroddsens, ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar, ríkisstjórnar Þorsteins Pálssonar og hann var að enda við að lýsa því yfir að hann væri einlægur stuðningsmaður ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar hinnar síðari. Hv. málshefjandi ber því fulla ábyrgð á því að sínu leyti hver þessi samskipti og hverjar þessar óskir íslenskra stjórnvalda voru í tíð ríkisstjórna sem hann studdi dyggilega því að ekki verður hann um það vændur að hafa ekki gert það.
Hitt atriðið sem er ástæða til að staldra við kom fram í máli hv. 2. þm. Austurl. og var spurningin um það hvort engar áætlanir væru fyrirliggjandi af hálfu íslenskra stjórnvalda um varnir íslenskra þegna á hættutímum, íslenskra mannvirkja, íslenskra stofnana o.s.frv. og reyndar sá tvískinnungur sem fram hefur komið í máli margra ræðumanna, sá að annars vegar er því haldið fram að varnarlið sé hér augljóslega aðeins til þess að verja Bandaríkjamenn, bandaríska herstöð, gæta bandarískra hagsmuna, og gefið í skyn að í raun og veru væri kannski ástæða til að staldra við og gera kröfur um það að uppi séu áætlanir og þær framkvæmdar um varnir íslenskra mannvirkja og íslenskra mannlífa en komast þá í þær ógöngur að þá verða þær varnaræfingar að fara fram utan varnarsvæða en það er skoðun sem ekki er mjög
þekkileg ef ég skil rétt þennan málflutning.
En víkjum nú að því hver samskiptaferill stjórnvalda er í þessu máli. Hverjar hafa óskir íslenskra stjórnvalda verið og hver hefur verið ábyrgð einstakra manna sem með þessi mál hafa farið? Heimildirnar eru byggðar á skriflegum greinargerðum, bókunum, upplýsingum frá varnarmálaskrifstofu utanrrn. í tíð fjögurra utanríkisráðherra.
1. 1984. Yfirmaður landhers Bandaríkjanna kom til Íslands til viðræðna við yfirmenn varnarliðsins og íslensk stjórnvöld um hlutverk varaliðsins og æfingar á þess vegum. Þetta gefur mér tilefni til þess að bæta við að því var ranglega haldið fram í máli málshefjanda áðan að ég hefði fullyrt að þetta varalið hafi verið stofnað að kröfu íslenskra stjórnvalda. Það sagði ég ekki. Ég sagði hins vegar að það hefði verið stofnað árið 1984 og það hefði verið gert í samráði við íslensk stjórnvöld og það hefði verið gert í anda þeirrar stefnu sem m.a. var mörkuð í skýrslu þáv. utanrrh. Geirs Hallgrímssonar og ég vitnaði sérstaklega til, nefnilega um auknar kröfur íslenskra stjórnvalda um sjálfstætt mat á liðsaukanum, athöfnum hans og varnaráætlun.
2. Í desember árið 1984 fara fram viðræður í varnarmálanefnd um æfingar varaliðsins á komandi sumri, þ.e. sumarið 1985. Þar kemur fram að af hálfu íslenskra stjórnvalda er lýst áhuga á nánara samstarfi og atbeina íslenskra stjórnvalda við skipulag varnaráætlana varaliðsins sem og ósk Íslendinga um að fylgjast með þessum æfingum gjörla.
3. Sumarið 1985 fer fram fyrsta æfing varaliðsins hér á landi. Þá koma til landsins sérstaklega 150 varaliðsmenn ásamt með varnarliðsmönnum sem hér eru og framkvæma þá æfingu.
4. Sumarið 1986 kemur hingað til lands Thomas Stone hershöfðingi og stærðfræðikennari sem áður hefur verið að vikið, yfirmaður þessa umrædda varaliðs, höfuðstöðvar Massachusetts og ræddi við varnarmálaskrifstofu utanrrn. um varnaráætlanir. Þá var sérstaklega farið yfir skrá sem afhent var af hálfu íslenskra stjórnvalda yfir mikilvæga staði, mikilvægar samgönguleiðir og mikilvæg mannvirki sem Íslendingum þætti sérstök ástæða til að hafa í huga
við samræmingu á gerð varnaráætlana og almannavarnaáætlana.
5. Í október 1986 á skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu utanrrn. fund í Norfolk með yfirmönnum Atlantshafsflota Atlantshafsbandalagsins þar sem æfingar varaliðsins, og taki menn nú eftir, fyrir árið 1989 og árið 1991 voru ræddar. Þá þegar var lögð fram áætlun um að 1000 hermenn tækju þátt í æfingunum árið 1989. Þetta er í fyrsta sinn sem skriflegar upplýsingar eru látnar í té íslenskum stjórnvöldum um fyrirhugaðan fjölda þátttakenda í æfingum sumarið 1989. M.ö.o., upplýsingar um það hafa legið fyrir í utanrrn., varnarmálaskrifstofu, frá því í október árið 1986, þ.e. að því er varðar fjölda.
6. Í nóv. árið 1986 er æfingaáætlun varnarliðsins árin 1987--1993 rædd í varnarmálanefnd. Varnarmálanefnd er skipuð fulltrúum varnarliðs og
fulltrúum íslenskra stjórnvalda. Þá er sérstaklega rætt um þátttöku Íslendinga, íslenskra stjórnvalda, embættismanna, í undirbúningsfundum fyrir æfingar sem haldnar verði sumarið 1987.
7. Þann 17. júní, á þjóðhátíðardaginn, til 25. júní árið 1987 fer fram varaliðsæfing á Íslandi með þátttöku um 400 hermanna, flestir hverjir úr fastaliði bandaríska landhersins en einnig úr varaliðinu. Hún hófst, eins og ég segi, á þjóðhátíðardaginn 17. júní, stóð til 25., og var víst, eftir því sem ég hef best getað fengið upplýst, hvergi getið í íslenskum fjölmiðlum, vakti enga athygli og eftir því sem ég hef spurt Suðurnesjamenn um kannast enginn við að hafa tekið eftir henni. En ég hef náttúrlega ekki spurt þá alla.
Þess skal getið um þessa tilteknu æfingu 17. júní 1987, að í tengslum við þá æfingu kom aukinn flugvélakostur til landsins, þ.e. flugvélar umfram flugflota varnarliðsins, og þar að auki ýmis annar vopnabúnaður sem varaliðið hefur ekki í för með sér nú.
8. Í ágúst árið 1987 heimsótti þá nýorðinn hæstv. utanrrh. varnarliðið svo sem utanríkisráðherrar gera í upphafi starfsferils. Samkvæmt greinargerð varnarmálaskrifstofu var honum þá gerð ítarleg grein fyrir æfingunni árið 1987, sem var nýliðin, nýafstaðin í tíð forvera hans, umfangi hennar og markmiðum og þar með taldar trúnaðarupplýsingar eins og 12 meginatriði í niðurstöðum um framkvæmd æfinganna sem þótti vert og rétt að koma á framfæri við íslensk stjórnvöld. Þá var ráðherranum einnig skýrt frá áformum um næstu æfingu varnarliðsins sumarið 1989 sem 1000 hermenn í það minnsta mundu taka þátt í samkvæmt þeim áformum. Þetta er, hv. málshefjandi, í ágúst árið 1987 í tíð ríkisstjórnar Þorsteins Pálssonar, þ.e. þriðju ríkisstjórnarinnar sem hv. málshefjandi hefur stutt á þessum ferli sem ég hef rakið hingað til.
9. Í sama mánuði, þ.e. í ágúst 1987, fóru fulltrúar varnarmálaskrifstofu utanrrn., embættismenn utanrrh. til þess að fylgjast með varaliðsæfingunni í Kanada sem þá var umfangsmesta æfing varaliðsins til þessa með rúmlega 4000 þátttakendum. Sú æfing vakti verulega athygli fjölmiðla og m.a. birtist af henni ítarleg frásögn í Morgunblaðinu.
10. Í janúar árið 1988 heimsótti þáv. forsrh., Þorsteinn Pálsson, varnarliðið og var þá að sögn gerð ítarleg grein fyrir æfingum varaliðsins.
11. Í mars árið 1988 fór þáv. dómsmrh., Jón Sigurðsson, í heimsókn til varnarliðsins og í þeirri heimsókn var einkum rætt eftirfarandi: Aukin samvinna Landhelgisgæslu, Almannavarna og lögreglustjórnar við varnarlið og varalið.
12. Um líkt leyti var fundur umrædds Stones hershöfðingja og stærðfræðikennara með skrifstofustjóra varnarmálaskrifstofu, þ.e. embættismanni utanrrn., með ráðuneytisstjóra dómsmrn., lögreglustjóra í Reykjavík og formanni og framkvæmdastjóra almannavarnaráðs. Fundarefnið var að skýra hlutverk varaliðsins og kannaðir möguleikar
á frekari samvinnu við undirbúning áætlana þess við íslensk stjórnvöld undir forustu varnarmálaskrifstofu. Þar voru einnig rædd samskipti varnarliðsins við Landhelgisgæslu og reyndar leiddi það til þess að þau voru endurskoðuð þannig að Landhelgisgæslan hefur með reglubundnum hætti fulltrúa sem fylgjast með störfum varnarliðsins. Í framhaldi af því tilnefndi lögreglustjóri sérstakan samstarfsaðila til undirbúnings næstu áætlunum um æfingar. Umræður um aukin tengsl við Almannavarnir voru hafnar og standa enn yfir.
13. Í maí árið 1988 komu 30 yfirmenn landhers og varaliðssveita Bandaríkjanna í kynnisferð til Íslands til þess að kynnast staðháttum og stóð sú kynnisferð í heila viku. Gestgjafinn var að sjálfsögu utanríkisráðuneytið íslenska.
14. Þann 30. ágúst gerist það að æfing varaliðsins sumarið 1989 er kynnt með formlegum hætti á fundi varnarmálanefndar, eins og ég greindi frá í upphafsræðu minni eða svarræðu minni, umfangið skýrt, áformin um 1300 hermenn, en það er án allrar tímasetningar eins og fram er komið.
Ég vek athygli á því að allan þann tíma sem þessi samskipti fóru fram var hv. málshefjandi framarlega í flokki stuðningsmanna og forustumanna ríkisstjórna sem að þessum samskiptum stóðu þannig að ef hann vill nú fullyrða að þessi samskipti hafi ekki verið að ósk íslenskra stjórnvalda og undir engum kringumstæðum að ósk Framsfl., þá hygg ég að það sé rétt að segja að þau orð
hans þarfnist nánari skýringar.
Við þetta er eiginlega aðeins einu að bæta og það er að í febrúar árið 1988 fór reyndar fram sérstök varaliðsæfing. Í febrúar 1988 þannig að sú seinasta var ekki í júní 1987. Þetta var að vísu afar fámenn æfing því að í henni tóku þátt foringjar úr þessari varaliðssveit. Hún er kölluð sérstök vetraræfing og fór fram í febrúar 1988.
Þess er síðan að geta að þess er getið um þann fund sem yfirmaður varaliðsins átti í maí 1988 við æðstu menn varnarmálaskrifstofu, ráðuneytisstjóra dómsmrn. og fleiri, að þá gaf hann nákvæmar upplýsingar um áætlanir varaliðsins, um varnir Íslands og lykilmannvirkja, þ.e. kynnti samhæfingu á almannavörnum og þessum varnaráætlunum. Um þann fund er sagt á minnisblaði í varnarmálaskrifstofu að yfirlýstur tilgangur fundarins var að tryggja stuðning utanrrh. og dómsmrh. við grundvallarreglur varnaráætlunarinnar og stuðning ríkisstjórnar Íslands við varnaráætlanir á spennutímum eða hættutímum.
Loks er þess að geta að í júní 1988, hv. málshefjandi, kom yfirmaður stuðningsdeilda varaliðsins --- og þær eru innifaldar í þessum tölum, meðal annarra orða það er ekki rangt með það farið --- kom yfirmaður stuðningsdeilda varaliðsins, það heitir Army Combat Support Hospital til fundar með forstöðumanni og framkvæmdastjóra ríkisspítalanna. Þar var rætt um gagnkvæmar heimsóknir, þjálfun og þátttöku bandarískra hjúkrunarliða í neyðarástandsæfingum Almannavarna.
Ég held að það sé þýðingarmikið að þetta komi fram úr því að málshefjandi fullyrti að ég hefði farið með rangt mál í minni ræðu. Ég tek það reyndar fram að ég sagði að það væri of langt mál að rekja þessi samskipti öll og ég gerði það ekki í framsöguræðu minni, en úr því að málshefjandinn gekk fast eftir því með brigslum um að rangt væri farið með staðreyndir, þá þykir mér rétt til þess að taka af öll tvímæli að rekja þessar staðreyndir hér. Og niðurstaðan er sú að hv. málshefjandi, sem nú skorar á utanrrh. þann sem hér stendur að grípa nú í taumana og stöðva þetta, hann hefur verið stuðningsmaður fjögurra ríkisstjórna sem hafa að baki þennan feril í undirbúningi að þessum áætlunum og þessum æfingum.
Að því er varðar seinna atriðið, sem ég taldi rétt að upplýsa hér frekar í tilefni umræðnanna, þ.e. hvort engar áætlanir væru til af hálfu íslenskra stjórnvalda um varnarráðstafanir að því er varðar íslensk mannvirki, orkumannvirki, samgöngumannvirki, stofnanir eða líf íslenskra ríkisborgara, þá vil ég um það segja, af því að því var haldið mjög afdráttarlaust fram í ræðu hv. 2. þm. Austurl., að það er ofmælt að engar slíkar áætlanir séu til. Það er ofmælt, eins og reyndar margt annað í ræðu hans. En hitt er rétt, og ég tek undir það með honum, að því fer fjarri að þessar áætlanir séu nægilega vel undirbúnar, nægilega vandaðar og það sé nægilega tryggt með æfingum að þær séu framkvæmanlegar þegar á þeim þarf að halda. ( Landbrh.: Þegar og ef.) Þegar og ef. Það er betra að hafa það. Ég þakka samgrh. fyrir þá ábendingu.
Að því er varðar almannavarnir og starf Almannavarna, þá er þess að geta að síðan 1971 hafa Almannavarnir ríkisins staðið fyrir samræmdri áætlunargerð með varnarliðinu og yfirvöldum á Suðurnesjum, takmarkaðar áætlanir um viðbrögð við hugsanlegum stórslysum á Keflavíkurflugvelli. Viðbrögð við hópslysum á Keflavíkurflugvelli eru æfð reglulega og samræmd öðrum áætlunum með tveggja ára millibili. Átta slíkar samræmdar æfingar hafa átt sér stað á þessu tímabili. Björgunardeild varnarliðsins hefur að auki tekið þátt í sex æfingum Almannavarna á þessum áratug, þar á meðal með sínum þyrlum.
Við undirbúning áætlana varaliðsins hafa Almannavarnir ríkisins verið í sambandi við varnarliðið varðandi þá hluta aðgerða sem hafa bein áhrif á innlendar öryggis- og hjálparstofnanir. Þar má benda á eftirfarandi t.d.: Stórslys sem kynnu að koma upp og meðferð þeirra innan íslensku heilbrigðisþjónustunnar á hættutímum. Í öðru lagi: Áhrif á áætlanir Almannavarna vegna notkunar á samgöngumannvirkjum og landsvæðum. Í þriðja lagi: Fjarskiptakerfi Almannavarna ríkisins og samræming þess við fjarskiptakerfi varnarliðsins, auk þeirrar áætlunar sem ég vék að áðan um mannvirki, stofnanir og samgönguæðar getum við kallað það og mannflutninga sem áætlanir hafa verið gerðar um.
Ég tek það fram að þetta er of lítið, þetta er ekki nægilega vandað, þetta er ekki nægilega ítarlegt og þetta er ekki nógu æft. Engu að síður skal það tekið fram að það er ofmælt, hvaðan sem þær upplýsingar
eru fengnar hjá hv. þm., að hér sé um engar áætlanir að ræða.
Virðulegi forseti. Ég sá mig tilknúinn til þess að bæta þessum upplýsingum við að gefnu tilefni af hálfu málshefjanda og annarra ræðumanna. Ég má kannski draga saman í örfáum orðum niðurstöður míns máls. Það hefur verið lýst ýmsum skoðunum hér á hinu stærra samhengi varnarmála, afvopnunarmála, stöðu Íslendinga í umheiminum og á hvern veg við ættum að haga okkar stefnumálum. Þær skoðanir geta verið með ýmsu móti og eiga að sjálfsögðu allar rétt á sér. Það er skoðun út af fyrir sig að það eigi ekki að hafa slökkvilið og það er
skoðun út af fyrir sig að það eigi ekki að hafa björgunarbáta um borð í skipum. Það er svo önnur skoðun að það að hafa slökkvilið örvi fólk til eldsvoða vegna þess að það er þó alla vega slökkvilið fyrir hendi og það er skoðun út af fyrir sig, þó að hún sérkennileg, að það að hafa björgunarbúnað um borð í skipum ýti undir drukknanir í sjó. Versta skoðunin er þó sú þegar menn segja: Jú, við skulum að vísu hafa slökkvilið og við skulum hafa björgunarbúnað, en við skulum umfram allt aldrei æfa þessi tæki.