Hreppstjórar
Þriðjudaginn 04. apríl 1989

     Frsm. allshn. (Jón Helgason):
    Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nál. um frv. til l. um breytingu á lögum um hreppstjóra, nr. 32 26. apríl 1965, frá allshn. Efni frv. er fyrst og fremst vegna þeirra breytinga sem hafa verið gerðar á sveitarstjórnarlögum þegar sýslunefndir voru lagðar niður frá síðustu áramótum. Af þeim sökum er ekki lengur um að ræða að þær geti gert tillögur um þá sem sýslumaður skyldi velja úr til hreppstjórastarfa. En í þessu frv. er gert ráð fyrir að þegar starf hreppstjóra losnar skuli sýslumaður auglýsa starfið til umsóknar.
    Það kom fram í nefndinni að það mætti búast við því að ekki yrðu alls staðar margar umsóknir um hreppstjóraembætti þegar þau verða auglýst. Af þeim sökum taldi nefndin að það væri nauðsynlegt að fella niður úr 2. gr. orðin ,,úr hópi umsækjenda`` þar sem stendur að sýslumaður skuli veita stöðu hreppstjóra úr hópi umsækjenda að fenginni umsókn sveitarstjórnar því það getur verið svo að enginn verði umsækjandinn og þá verði að leita eftir einhverjum til starfsins með umsögn sveitarstjórnar.
    Þá er enn fremur gerð tillaga um breytingu við 4. gr. frv. þar sem í frv. stendur að lögin skuli öðlast gildi 1. janúar 1989 sem nú er þegar liðinn, en í staðinn komi að lögin öðlist þegar gildi. Þannig breytt leggur allshn. til að frv. verði samþykkt.