Flm. (Salome Þorkelsdóttir):
Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga sem ég flyt og er á þskj. 672. Þetta frv. varðar breytingu á lögum nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum.
Þetta frv. lætur lítið yfir sér og er ekki stórt í sniðum. Það er eiginlega aðeins ein grein sem varðar efnislega breytingu á 69. gr. laga nr. 92/1987, um tekjuskatt og eignarskatt, og 2. gr. frv. er svo aðeins um gildistöku laganna. Þessi efnislega breyting á 69. gr. er á þá leið að þar komi ný málsgrein á eftir 2. mgr., svohljóðandi:
,,Rétt til húsnæðisbóta skv. 1. mgr. getur maður öðlast sem byggir nýtt íbúðarhús í stað húss sem úrskurðað hefur verið óhæft til íbúðar, verðlaust og til niðurrifs, enda sé það staðfest með tilskildum vottorðum opinberra aðila.``
Þetta frv. er flutt að gefnu tilefni þar sem lögin eru hvað þennan þátt varðar svo þröngt skilgreind af skattayfirvöldum að ég tel bæði réttlætanlegt og nauðsynlegt að gera þessa breytingu á lögunum til þess að þeir aðilar njóti húsnæðisbóta til jafns við þá sem falla undir 1. mgr. og lenda í raun í sömu sporum og þeir sem eru að eignast húsnæði í fyrsta sinn, þ.e. þegar um það er að ræða að húsnæði hefur verið dæmt ónýtt til niðurrifs og þess vegna nauðsynlegt fyrir viðkomandi að nýtt hús verði reist í staðinn.
Til frekari skýringar á þessu efnisatriði þá vil ég gjarnan segja frá dæmi sem er tilefni þess að ég hef flutt þetta frv. Ég þykist vita að það er ekki eina dæmið sem upp hefur komið, en þau eru væntanlega ekki mörg, kannski sem betur fer. En þar er um að ræða sjö manna fjölskyldu sem einmitt hefur lent í þessari aðstöðu. Þessi sjö manna fjölskylda býr enn þá í þannig húsnæði að það er illa farið og fengu aðilar sérfróða menn til að meta hvort hægt væri að endurbyggja þetta hús, en þeir sem skoðuðu húsið töldu að það svaraði ekki kostnaði. Jafnframt dæmdi héraðslæknir húsið óíbúðarhæft. Eftir þetta ákvað þessi fjölskylda að hefjast handa. Þetta eru hjón með fimm börn og þau byggja nýtt hús frá grunni. Þetta leyfi var veitt af byggingarnefnd viðkomandi sveitarfélags gegn því skilyrði að gamla húsið yrði rifið þegar flutt yrði í nýja húsið. Þessir aðilar hafa svo leitað eftir því að fá húsnæðisbætur samkvæmt þessari lagagrein sem ég vitnaði hér til áðan, en þá gerist það að skattayfirvöld synja um húsnæðisbætur á þeim forsendum að lögin heimili það ekki þar sem ekki sé um nýbyggingu að ræða.
Nú vill svo til að þessir aðilar hafa fengið húsnæðislán sem um nýbyggingu væri að ræða, þ.e. lög um Húsnæðisstofnun heimila að slíkar undantekningar séu gerðar, að það sé tekið tillit til slíkra aðstæðna, en svo ber við að skattayfirvöld gera það ekki vegna þess að þau túlka lögin svo þröngt sem ég gat um hér áðan.
Ég hef undir höndum tvö bréf frá skattstjóra, annað sem er dagsett 25. júlí 1988 og hitt 6. febr. sl., og í báðum tilvikum er þessari umsókn um húsnæðisbætur
synjað. Í fyrra bréfinu var einungis vitnað í tekjuskattslögin, að samkvæmt þeim væri skilyrði fyrir þessum bótum að um væri að ræða kaup eða byggingu íbúðarhúsnæðis til eigin nota í fyrsta sinn, og þar sem viðkomandi uppfylla ekki það skilyrði sé þeim synjað um þessar bætur. Síðan er endurnýjuð þessi umsókn og þær upplýsingar gefnar að húsnæðismálastjórn hafi veitt lán sem um fyrstu íbúðareign væri að ræða og þá er svarið frá skattstjóra, sem ég ætla að lesa hér, með leyfi forseta, og varðar þetta atriði:
,,Í bréfi yðar kemur fram að þér fenguð lán frá húsnæðismálastjórn sem um nýbyggingu væri að ræða og fyrstu íbúðareign. Upplýsingar um það að húsnæðismálastjórn veitti yður lán sem um fyrstu íbúðareign væri að ræða hafa ekki áhrif á ákvörðun um húsnæðisbætur, heldur einungis sú staðreynd að þér hafið átt íbúðarhúsnæði frá 1. okt. 1975. Og ljóst er af þeim reglum sem um húsnæðisbætur gilda og vitnað er til í nefndu bréfi frá 25. júlí að þér eigið ekki rétt á húsnæðisbótum og er því synjun þeirra staðfest með vísan til þeirra forsenda sem þar koma fram.``
Það má segja að þetta sé tilefni þess að ég flyt þetta frv. því að ég tel það réttlætanlegt að lögin séu þannig úr garði gerð að þau tryggi það að réttur í slíkum undantekningartilfellum verði ekki fyrir borð borinn. Það má líka benda á að oftast, og kannski alltaf í svona tilvikum, er um efnalitlar fjölskyldur að ræða sem lenda í slíkum vandræðum varðandi húsnæðismál. En þetta er ástæðan fyrir því að frv. þetta er flutt. Það er til þess að fullkomins réttlætis sé gætt í lögum gagnvart þessum aðilum.
Ég vil, hæstv. forseti, að lokinni þessari umræðu leggja til að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.