Tekjuskattur og eignarskattur
Þriðjudaginn 04. apríl 1989

     Flm. (Salome Þorkelsdóttir):
    Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. 4. þm. Suðurl. fyrir hennar stuðning við þetta frv. Það er vissulega ekki í fyrsta sinn sem hún kemur hér í ræðustól og lýsir stuðningi við góð mál. Hún er málefnaleg í sínum þingstörfum og mættu margir taka sér hana til fyrirmyndar í þeim efnum. Ég treysti því, þar sem ég veit að hún á sæti í hv. fjh.- og viðskn., að hún muni hjálpa til við að koma þessu réttlætismáli í gegnum nefndina og í gegnum deildina hér áfram.
    Ég vil taka undir orð hv. þm. varðandi setu manna hér í þingdeild þegar ýmis góð mál eru flutt og ekki virðast vekja mikla athygli. Hér vill svo til að við erum tvær staddar í þingdeildinni auk hæstv. forseta og má nú bæta við hv. 2. þm. Norðurl. e. sem vissulega var hér í hliðarsal. Vænti ég að hann hafi hlustað á okkar málflutning varðandi þetta frv. og þar sem hann á jafnframt sæti í hv. fjh.- og viðskn., þá muni hann einnig leggja þessu réttlætismáli lið.
    En ég ætlaði aðeins að leiðrétta tölur sem komu fram hjá hv. 4. þm. Suðurl. vegna þess að við vorum báðar með þessar tölur þegar við spjölluðum saman hér fyrr í dag. Ég hef komist að raun um það að húsnæðisbætur á árinu 1988 --- það eru sennilega verðlagsbreytingar sem gera það að verkum --- voru 46.201 kr. á einstakling eða fyrir hjón tvöföld sú upphæð á því ári. Ég tek jafnframt undir það sem hún sagði að ég held að það geti ekki verið um stórar fjárhæðir að ræða því að hér er verið að tala um undantekningartilfelli og sem betur fer eru þau væntanlega ekki mörg.