Ósk um atkvæðagreiðslu
Þriðjudaginn 04. apríl 1989

     Salome Þorkelsdóttir:
    Hæstv. forseti. Mér fyndist það nú freistandi að gera tilraun til þess að fá að vita hve margir hv. þingdeildarmenn eru staddir hér í húsinu og láta fara fram atkvæðagreiðslu um þetta mál, ef ég mætti fara fram á það við hæstv. forseta. Mér er kunnugt um að það er fundur í nefndinni á morgun og það væri ánægjulegt ef hægt væri að koma þessu máli til nefndar núna. Ég geri mér grein fyrir því að hér er um að ræða þmfrv., meira að segja stjórnarandstöðuþingmanns, en ég hef reynt hæstv. forseta að því að vera réttlátan forseta í sínum störfum öllum og þó að stundum geti eitthvað borið upp á sem gefur mönnum tilefni til þess að gagnrýna störf forseta, þá vil ég leggja á það áherslu að ég hef ekki reynt hann að öðru en vera réttlátan gagnvart stjórnarandstöðuþingmönnum og ég vildi fara þess á leit að nú yrði reynt að kalla inn þingdeildarmenn og fá atkvæðagreiðslu um málið.