Ólafur Þ. Þórðarson:
Herra forseti. Mér er ljóst að nýir tímar kalla á nýja lagasmíð um marga hluti. Varðandi það mál sem hér er á dagskrá ber að hafa í huga að það eru lög í þessu landi sem veita landeigendum rétt til að krefjast girðinga á landamerkjum jarða sinna. Til þess að það sé gert þarf að gefa þeim sem í kring eru vissan umþóttunartíma, ég man ekki hvort það er eitt ár, þ.e. fyrirvara um að þess sé krafist að girt sé á landamerkjum.
Nú á ríkið sjálft margar jarðir í þessu landi og sumar þeirra eru í eyði en það fer ekki milli mála að hægt er að krefjast þess samkvæmt þessum lögum að girt sé á landamerkjum. Að mínu viti þarf að skoða það mjög hvor kosturinn er skynsamlegri á ýmsum svæðum að taka ákvörðun um að girða meðfram vegum eða að taka ákvörðun um það að hver bóndi gæti síns búfjár, sem er þá jafnframt ákvörðun um að neyða hann til þess að krefjast þess að girt verði á landamerkjum því að auðvitað getur hann ekki nýtt sitt land nema hann girði þá hringinn í kringum það. Mér er ljóst að sá kostur kallar á miklu fleiri girðingar og miklu lengri. Það fer ekkert á milli mála. Frekar hefði ég talið að leita bæri niðurstöðu um það hvernig hægt væri að standa að girðingum meðfram vegunum, hvort sem kostnaði yrði skipt í því sambandi, frekar en að kalla hitt gaddavírsflóðið yfir sig. Með þessu móti er ég ekki að gagnrýna það að landbrh. leggi fram þetta frv. því að það er rétt, sem fram kom í hans ræðu, að ástand í umferðarmálum er á þann veg að ekki verður við unað. Ég hefði engu að síður talið að fróðlegt væri að setjast niður og skoða þetta mál í víðara samhengi. Í sumum tilfellum gæti það staðið þannig af sér að það væri kannski eyðijörð sem ætti örlítið land að vegi sem stoppaði það að girt væri meðfram veginum alla leiðina en menn sætu uppi með það að verða að girða á merkjum hringinn í kringum sitt land. Og auðvitað væri það röng niðurstaða að heimila þá ekki frekar girðingu meðfram veginum. Ég tel að þegar vegir voru lagðir í upphafi hafi mátt líta svo á að allar jarðir á Íslandi hækkuðu í verði sem urðu þess aðnjótandi að bílaumferð náði til þeirra. Sumar jarðir búa aftur á móti við það í dag að vegurinn liggur um endilangt þeirra land og hefur það óneitanlega orðið til þess að gera þær miklu verðminni og í sumum tilfellum óhæfar til búskapar. Í þessu sambandi verður mér hugsað til Vestfjarða þar sem snjóalög og fleira koma hreinlega í veg fyrir það að girðingar standi jafn vel og á þeim stöðum landsins sem hér er verið að ræða um.
Þegar ég varpa þessu hér inn í umræðuna geri ég það í von um að á það verði horft með jákvæðu hugarfari hvernig Íslendingar sem þjóð geta skynsamlegast staðið að sínum girðingamálum og að við köllum ekki yfir okkur meiri gaddavír en nauðsynlegt er.