Landbúnaðarráðherra (Steingrímur J. Sigfússon):
Herra forseti. Ég held að það sé líkt á komið með okkur, mér og síðasta ræðumanni, að okkur leiðist báðum gaddavír og höfun engan áhuga á því að hafa hann víðar og meira en nokkur þörf er á. Þess vegna er ég jafnáhugasamur um það og hv. þm. að reynt verði að standa þannig að þessum málum að ekki þurfi nú að girða meira þvers og kruss um landið en óhjákvæmilegt er af þessum sökum. Og ég er alveg sammála því að það þarf að taka ýmis skipulagsmál sem tengjast þessu viðfangsefni sem hér er flutt frv. um til skoðunar. Það er nú reyndar þegar hafin skoðun á þeim hlutum, m.a. með þeim starfshópi sem ég minntist á í framsöguræðu minni og er skipaður fulltrúum frá landbrn., Umferðarráði, dómsmrn. og fleiri aðilum sem tengjast annars vegar landbúnaði og landnýtingarmálefnum og hins vegar umferð og umferðaröryggi. Sömuleiðis er talsvert unnið í þessum efnum með fulltrúum frá Landgræðslu og Skógrækt og það tengist auðvitað starfi að landnýtingarmálum, landgræðslumálum og fleiru í víðara samhengi. Ég er enn fremur þeirrar skoðunar að það sé nauðsynlegt að taka tillit til mjög mismunandi aðstæðna í landinu og mismunandi þarfa. Ég hef víst sagt það áður að jafnnauðsynlegt og er að grípa á til að mynda þeim miklu slysum sem orðið hafa hér vegna m.a. umferðar stórgripa á umferðarþungum vegum í nágrenni þéttbýlissvæðanna hér suðvestanlands og jafnvel líka á ákveðnum svæðum norðan lands er jafnfáránlegt að hugsa sér að fara að girða af alla vegi á Vestfjörðum eða Norðausturlandi og jafnónauðsynlegt því að auðvitað hlýtur að þurfa að haga þessu eftir aðstæðum. Og ég hygg að stefnan verði sú að takmarka eða afnema lausagöngu búfjár á og í kringum vegi hér út frá stærstu þéttbýlissvæðunum og þar sem umferð er mest, enda sýnir slysatíðnin það að þess er þörf og síðan verði þau svæði sérstaklega auðkennd með einhverjum hætti þegar komið er út fyrir slík svæði þar sem lausagöngu búfjár er ekki að vænta og þá snúist það við og menn þurfi sem sagt að vera við því búnir að mæta einhverjum ferfættum kvikindum, þess vegna, uppi á vegunum. Það má nefna í þessu sambandi að áform eru uppi um það að afnema á næstu árum með öllu lausagöngu búfjár á Reykjanesskaga og tengja það svæði ofanbyggðagirðingunni svonefndu sem mundi þýða að öll lausaganga búfjár á svæðinu frá Reykjanesi og um höfuðborgarsvæðið og upp í Mosfellssveit og upp á Kjalarnes yrði óheimil og vegirnir og umferðaræðar á öllu þessu svæði þá lausar við slíkt. Það er ábyggilega mikilvægur áfangi og góð byrjun í þessum efnum þó að ljóst sé að víðar þurfi auðvitað að huga að þessum málum.
Ég tek svo fram að með þessu frv. er ekki á neinn hátt breytt ákvæðum girðingarlaga eða ákvæðum í vegalögum eða skógræktarlögum eða annars staðar þar sem um girðingar og girðingarskyldur er fjallað. Hér er eingöngu verið að afla þessarar lagaheimildar til handa sveitarstjórnunum þannig að unnt sé þar sem
aðstæður krefjast þess að fara að taka á þessum málum. Það hvernig með þær lagaheimildir verður svo farið verður að skoðast betur í framhaldinu. En forsenda þess í raun að unnt sé að fara að taka á þessum málum á ýmsum svæðum er að þau sveitarfélög sem ekki teljast til kauptúna eða kaupstaða fái slíkar lagaheimildir í hendur.