Salome Þorkelsdóttir:
Hæstv. forseti. Mér finnst full ástæða til að vekja athygli á því einu sinni enn, þetta gerist hér fund eftir fund, að stjórnarliðar mega bara ekkert vera að því að mæta á þingdeildarfundum. Hér eru fjórir stjórnarþingmenn. (Gripið fram í.) Nei, fjórir munu þeir nú vera. Fjórir stjórnarliðar eru mættir í þessari hv. þingdeild þegar verið er að greiða atkvæði um stjfrv. Mér finnst full ástæða til að það sé vakin athygli á þessu.