Skúli Alexandersson:
Herra forseti. Ég vil taka undir það sem hv. 6. þm. Reykn. sagði um vondar mætingar, ekki kannski eingöngu stjórnarliða heldur er það líka stjórnarandstaðan sem mætir ekki sem skyldi. Ég held að núna sé kannski frekar ástæða til þess að þessir hlutir séu á þann veg sem er með stjórnarliða vegna þess að a.m.k. einn stjórnarflokkurinn er hægt að segja að hafi verið við skyldustörf fyrir skömmu og sé enn þá, Framsfl. Ég held að það sé rétt að taka það fram við þessar sérstöku aðstæður. En ég ætla að minna á hitt, þó að það sé búið, hið formlega, að iðulega á síðasta þingi kom það fyrir þegar hin öfluga stjórnarfylking var, Sjálfstfl., Framsfl., Alþfl., að það þurfti stjórnarandstöðuliðið til að koma í gegn stjfrv. þannig að þetta er því miður ekki alveg nýtt hér á hv. Alþingi og ekki síður hér í hv. deild.