Júlíus Sólnes:
Virðulegi forseti. Það er rétt til greint að ég taldi eðlilegt að þessari umræðu yrði haldið áfram á þriðjudaginn í næstu viku. En að sjálfsögðu erum við reiðubúnir í kvöldfund ef það er vilji þingmanna og hv. þingdeildar. En því miður verð ég að lýsa því yfir að svo virðist sem hæstv. forsrh. hafi ekki gefið sér tíma til að lesa frv. sem hér er til umræðu þar sem hann hefur greinilega ekki kannað tölulegar forsendur sem liggja að baki þessa frv. Því er e.t.v. nauðsynlegt að hann fái tækifæri til að lesa betur undir þá umræðu sem fer fram í framhaldi af þessu. Það er þá kannski ekkert verra að hann fái tækifæri yfir helgina að lesa frv. betur yfir.