Landbúnaðarráðherra (Steingrímur J. Sigfússon):
Virðulegi forseti. Það er sannast sagna varðandi þessa fsp. um lendingarskilyrði á hugsanlegum varaflugvöllum fyrir millilandaflug, eins og sagt er, að í raun þyrfti nokkru meiri tíma en hér gefst í knöppum fyrirspurnatíma til að útskýra og fara yfir þó ekki væri annað en þá miklu fyrirvara og þau vandkvæði sem eru á því að svara þessum spurningum af einhverju viti. Ég vil þess vegna taka mikinn vara á því að menn taki alvarlega þær tölur sem ég ætla að fara með af þeirri einföldu ástæðu að þær segja í sjálfu sér óskaplega lítið nema haft sé í huga að hér er í fyrsta lagi spurt um tafir eða truflanir á flugi yfir mjög skamman tíma og þá verður einnig að gera mjög skýran greinarmun á því af hvaða orsökum flug tefst. Eins og gefur að skilja getur þar ýmislegt komið til og þarf ekki endilega allt að snerta það sem er sérstaklega spurt um og er í fyrirsögn fsp., þ.e. lendingarskilyrði, og ég tala nú ekki um ósköpin, ,,á hugsanlegum varaflugvöllum``. En fsp. sjálf hljóðar svo:
,,1. Hve oft hefur þurft að fella niður áætlunarflug (frá og til) Sauðárkróksflugvallar, Akureyrarflugvallar, Húsavíkurflugvallar og Egilsstaðaflugvallar á tímabilinu 1. des. 1988 til 1. mars 1989?`` Ég svara þessu þá þannig að spurt sé um heildartölur í þessu sambandi og í þeim er þá að einhverju leyti um að ræða tafir eða hindranir á flugi vegna lendingarskilyrða. Það er hins vegar ekki sundurgreint og svarið er eftirfarandi yfir þá daga frá 1. des. 1988 til 1. mars 1989 sem ekki var flogið til umspurðra staða vegna veðurs: Ég tek þá fyrst heildartölur, þ.e. heildarfjölda daga sem ekki var flogið til Sauðárkróks, Akureyrar, Húsavíkur og Egilsstaða af einhverjum ástæðum, en jafnframt mun ég taka fram hve oft var ekki flogið til þessara staða vegna skilyrða í Reykjavík. Reyndar kemur í ljós að það var oftar en ekki veðurskilyrði, brautarskilyrði eða aðrar aðstæður hér í Reykjavík sem hindruðu flug til þessara staða en hitt.
Þá er það Sauðárkrókur: Þar féll ekki niður flug neinn dag í desember, tvo daga í janúar og fjóra daga í febrúar, þar af tvisvar í febrúar vegna slæmra skilyrða í Reykjavík.
Til Akureyrar féll sömuleiðis ekki niður flug í desember, tvisvar í janúar og fjórum sinnum í febrúar og þar af einnig tvisvar vegna lélegra skilyrða í Reykjavík.
Til Húsavíkur féll niður flug þrisvar í desember, sjö sinnum í janúar og þar af sjö sinnum vegna lélegra skilyrða í Reykjavík. Sem sagt: flug féll aldrei niður í janúarmánuði til Húsavíkur vegna skilyrða þar en sjö sinnum vegna lélegra skilyrða í Reykjavík. Og í febrúar féll sex sinnum niður flug til Húsavíkur, þar af fjórum sinnum vegna skilyrða í Reykjavík.
Til Egilsstaða féll fjórum sinnum niður flug í desember, þar af tvisvar vegna skilyrða í Reykjavík, þrisvar sinnum í janúar og þar af aldrei vegna skilyrða í Reykjavík, sex sinnum í febrúar, þar af
tvisvar vegna skilyrða í Reykjavík.
Ég undirstrika að menn taki tölum þessum með miklum fyrirvara og sem afar litlum vísindum því að í fyrsta lagi þarf að gera sér grein fyrir öllum þeim þáttum sem þarna eru að verki og alls ekki er raunhæft að nota þessar tölur til samanburðar milli flugvallanna vegna þess að truflanir á flugi geta komið til á mismunandi dögum en ekki endilega sömu daga. Það er líka nauðsynlegt að hafa í huga áætlunartíðnina á þessa staði, það að flogið er á mismunandi tímum o.s.frv. sem gerir það allt saman að verkum að satt best að segja er þessi talnaleikur mestan part leikfimi en lítil vísindi.
2. spurning: ,,Hve oft hefði verið hægt að lenda þotum sem eru notaðar til millilandaflugs á áðurnefndum flugvöllum á sama tímabili ef nægilega langar brautir hefðu verið fyrir hendi og hve oft hefðu þær getað hafið sig til flugs á sömu stöðum?``
Hér er talsvert mikið af ef og hefði eins og heyra má og ég held ég verði að segja alveg eins og er að það er nánast óhugsandi að svara þessari spurningu öðruvísi en þá þannig að ætla má að röskun á flugi fyrir stærri þotur af því tagi sem notaðar eru í millilandaflugi hefði getað orðið eitthvað svipuð ef flugvellirnir hefðu verið í stakk búnir til að taka á móti þannig vélum, þ.e. eitthvað svipuð og hún varð fyrir þær skrúfuþotur sem notaðar eru í innanlandsflugi til þessara staða.
Aftur er nauðsynlegt að gera mikinn greinarmun á því hvað það er sem hindrar flugið. Það sem kannski helst er ólíkt með stærri þotunum og þeim skrúfuþotum sem notaðar eru í innanlandsflugi er að þær fljúga í meiri hæð og því kann að vera að ókyrrð í lofti sem stundum hindrar flug yfir landið, eins og menn vita, ef skil eru að fara yfir landið eða annað af því tagi, gæti haft minni áhrif á þá möguleika sem væru til að halda uppi flugi með stærri þotum sem geta klifrað í hærri flughæð og flogið þar.
Að öðru leyti held ég að ég verði að endurtaka það að ég tel --- og um það eru flugsérfræðingar mér sammála --- að það sé nánast óhugsandi að svara þessari síðari spurningu hv. fyrirspyrjanda, um hugsanlegar truflanir á flugi þotna til áðurnefndra flugvalla á þessu sama tímabili ef nægilega langar brautir hefðu verið fyrir hendi o.s.frv., öðruvísi.