Endurnýting á ónýtum bifreiðum
Fimmtudaginn 06. apríl 1989

     Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson):
    Virðulegi forseti. Hv. fyrirspyrjandi innir eftir stefnu iðnrh. í endurnýtingu á ónýtum bifreiðum. Þessu er fljótlegt að svara. Ég hef mikinn hug á því að hið fyrsta komist hér á skipuleg söfnun ekki aðeins á bílflökum heldur einnig á hvers konar brotamálmum og að þessu efni verði komið til endurvinnslu að sem mestu leyti, ef ekki hérlendis þá erlendis. Ég vil láta það koma fram að nú eru í athugun hjá þingflokkunum drög að frv. til laga um meðferð brotamálma og skilagjalda af ökutækjum sem samið hefur verið í iðnrn. á grundvelli skýrslu frá svonefndri endurvinnslunefnd sem iðnrh. skipaði á sínum tíma í samvinnu við heilbrmrh. Hlutverk þessarar nefndar skyldi vera að gera skýrslu um það með hverjum hætti nýtanlegum úrgangi verði safnað, hann endurunninn og honum ráðstafað þannig að komist verði, eftir því sem kostur er, hjá umhverfisspjöllum. Þessari nefnd var falið að kanna fjárhagshlið málsins og hvort nauðsyn væri á sérstakri lagasetningu. Þegar er komið fram í þinginu frv. til laga um söfnun og endurvinnslu á einnota umbúðum um drykkjarvörur og, eins og ég sagði, eru drög að frv. um brotamálma og skilagjald af ökutækjum nú til athugunar hjá þingflokkunum.
    Í starfsáætlun endurvinnslunefndar er gerð grein fyrir því hvað telja megi nýtanlegan úrgang. Þar segir m.a.: ,,Hér munu einkum koma til úrgangsmálmar og þá ekki síst bílflök, margs konar ónothæfar vélar og einnota umbúðir úr málmi, úrgangspappír margs konar, þar með einnota umbúðir, ýmiss konar úrgangsplast, ekki síst ýmislegar umbúðir, og þá gúmmíhjólbarðar sem hætt er að nota, svo og alls konar gler, textílúrgangur og timburúrgangur sem stöðugt falla til.``
    Eins og menn munu almennt sammála um er hér við geysimikið vandamál að etja. Þar eru bílflökin efst á blaði og skal ég þó ekki draga úr öðrum vanda af þessu tagi. Ég vil taka það fram að árið 1987 voru afskráð hér á landi um 16.000 ökutæki. Auk þess eru bílflök og brotamálmar á víð og dreif um landið frá fyrri árum. Landrými til að urða þetta allt er mjög af skornum skammti, einkum bíla og virðist nú illfáanlegt eins og yfirleitt land fyrir hvers konar úrgang og sorp. Þá er það vitað mál að það er töluvert mikill kostnaður við að urða bíla og hvers konar brotamálma. Það hlýtur einnig að teljast óskynsamlegt að grafa í jörðu verðmæti á borð við málma sem taldir eru ganga nokkuð ört til þurrðar þótt auðvitað sé hlutur Íslands í þeim efnum ekki mikill þegar á heimsheildina er litið. Þá er líka til þess að líta að víða er ekki aðstaða til að urða úrgang þannig að til frambúðar geti talist vegna þess hversu jarðvegur er víða grunnur og mundi því það sem urðað er fljótt koma í ljós þegar jarðvegurinn rennur til eða fýkur burt.
    Þá vil ég taka það fram vegna þess sem fram kom í máli fyrirspyrjanda að sú aðferð að sökkva brotajárni, t.d. skipum í sjó, er talin óheppileg á margan hátt svo að ekki sé meira sagt. Sama gildir að

sjálfsögðu um bílflök. Ég tel að það þurfi nú að vinna að því að fram fari um allt land skipulagsbundin söfnun á brotamálmum, þar með bílflökum, ónothæfum vélum og fleira af því tagi, með endurvinnslu í einu eða öðru formi að markmiði. Þá er það jafnframt markmið fyrir slíka söfnun að með henni verði bætt, eftir því sem aðstæður leyfa, úr þeim umhverfisspjöllum sem stafa frá bílflökum og brotamálmi sem er allt of víða í reiðileysi um landið.
    Ég get ekki rætt hér í einstökum atriðum um framkvæmd þessa verks en þó verður gert ráð fyrir því að skilagjald verði lagt á ökutæki við innflutning en það verði síðan að verulegu leyti endurgreitt þegar ökutækið er afhent í söfnunarstöð. Þaðan yrði það flutt til endurvinnslustöðvar hér eða erlendis. Með þessu er aðeins tæpt á mikilvægu máli, en ég vona að með þessum fáu orðum sé fyrirspurninni svarað.