Lán handrita á sýningar erlendis
Fimmtudaginn 06. apríl 1989

     Fyrirspyrjandi (Sighvatur Björgvinsson):
    Virðulegi forseti. Ég vil aðeins til gamans minna menn á að það var einmitt undir þessum hatti röksemda sem handritin voru á sínum tíma flutt frá íslensku biskupsstólunum og til erlendra varðveisluaðila, sem sé að það væri nauðsynlegt að kynna íslenska menningu með skipulegum hætti úti í heimi á þann hátt sem Íslendingar sjálfir réðu ekki við og það væri mikill áhugi í heiminum á því að kynnast nákvæmlega þessum þætti í menningarsögu þjóðarinnar sem voru handritin og út á það voru flutt til útlanda öll handrit sem varðveitt voru hjá hinum íslensku biskupsstólum. Þessi röksemd sem kom hér fram í máli hæstv. fyrrv. menntmrh. er því ekki ný á Íslandi, en hins vegar er ég ekki eins viss um að menn séu jafnreiðubúnir til að fallast á hana nú eins og þeir voru þá.
    Ljósprentunartækni hefur fleygt mjög mikið fram í heiminum. Sú tækni er orðin svo fullkomin að það er ekki fyrir alþýðu manna að greina á milli hvað er sýnt í ljósprentun og hvað er í frumhandritum. Ég er ekki í nokkrum vafa um það að það er áhugi víða í veröldinni á því að fá að kynna sér íslenska menningu og íslensku handritin. Það er gert þannig að þessi rit eru sýnd í lokuðum glerskápum, böðuð í ljósum, og ég held að almenningur suður á Ítalíu mundi verða alveg jafnuppnæmur yfir þessum fallegu handritum ef hann sæi þau í ljósprentun eins og þó hann sæi þau í frumhandritunum sjálfum, enda er munurinn þar á fyrst og fremst fyrir fræðimenn sem eru að stúdera einstök vafaatriði í hinum fornu ritum.
    Ég þakka hæstv. menntmrh. hans svör og vil taka undir það með honum að það ber að setja um þetta reglur. Ég er mjög ánægður með það að hæstv. ráðherra skuli ætla að beita sér fyrir því að það sé gert og ég tel að þær reglur eigi að vera með þeim hætti að stuðlað sé að kynningu á íslenskum handritum eins og annarri menningararfleifð Íslendinga, en ekki á þann hátt að tekin sé minnsta áhætta af því að þau rit sem tók þjóðina svo margar aldir að fá aftur heim séu sett í útlegð að nýju.