Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson):
Virðulegi forseti. Ég tek undir það sem fram kom hjá hv. fyrirspyrjanda. Ég vildi leyfa mér að gera þá tillögu við virðulegan forseta að forseti ítreki erindi sitt til forsrn. og sendi að nýju þessa þál. til meðferðar með vísun til þeirrar umræðu sem hér hefur farið fram.