Guðrún Agnarsdóttir:
Hæstv. forseti. Ég verð að lýsa nokkurri óánægju með ónákvæmni í svörum hæstv. ráðherra þar sem greinilega er verið að leita nokkuð nákvæmra svara með þessari fyrirspurn.
Eina tiltekna þingið, ráðstefnan eða staðurinn sem kom fram að þessari skoðun stjórnvalda á Íslandi hefði verið komið á framfæri um það að hér skuli ekki leyfð kjarnavopn er þing Sameinuðu þjóðanna. Það kom fram í máli hæstv. ráðherra að hann hefði sagt þar að hér skyldu ekki leyfð kjarnorkuvopn, en hann tók ekki sérstaklega fram að það ætti við bæði um friðar- og ófriðartíma.
Hann tiltók að ályktun Alþingis frá 23. maí 1985 hefði verið kynnt eða henni dreift á kerfisbundinn hátt á ýmsum ráðstefnum og fundum og trúlega í bréfaviðskiptum utanrrn. Þá vil ég spyrja: Er ekki til í ráðuneytinu skrá um þau bréf sem koma til ráðuneytisins og þau bréf sem send eru frá ráðuneytinu þannig að það megi athuga í þessari skrá hvert og hvenær þessi ályktun hefur verið send t.d. eða lýst yfir þessari skoðun? Hann talaði einnig um að ályktunin hefði verið send þeim löndum sem málið varðar. Hver eru þessi lönd sem málið varðar? Mér fannst þetta vera allt of ónákvæm svör og almenn í raun hjá hæstv. ráðherra. Satt að segja er ég nokkurn veginn jafnnær um hvernig þetta hefur verið kynnt nema ég veit að það hefur verið kynnt á þingi Sameinuðu þjóðanna.