Heræfingar varnarliðsins
Fimmtudaginn 06. apríl 1989

     Forsætisráðherra (Steingrímur Hermannsson):
    Virðulegi forseti. Í raun hef ég sagt um þetta mál allt sem mér þykir þurfa að segja og fyrst og fremst staðfesti ég það sem ég hef áður sagt. Ég mun a.m.k. ekki verja löngum tíma til að svara hv. þm. Ólafi G. Einarssyni. Það þótti mér aðallega vera varnarræða fyrir varnarliðið ef ég má orða það svo. Ég hef síðan fyrri umræða um þetta mál fór fram fengið í mínar hendur greinargerð frá varnarmáladeild sem staðfestir allt sem ég hef um málið sagt. Ég hef einnig átt ítarlegan fund með skrifstofustjóra varnarmáladeildar sem sömuleiðis staðfestir það allt.
    Því hefur aldrei verið mótmælt af minni hálfu, þvert á móti hef ég staðfest það að í ágúst 1987 fór ég í svokallaða yfirlits- eða upplýsingaheimsókn til varnarliðsins þar sem mér var skýrt frá tilvist þess varaliðs sem hafði verið sett á fót 1984 á fullkomlega og eðlilegan máta í samráði við þann utanrrh. sem þá var. Mér var ekki ljós tilvist þessa liðs, a.m.k. gerði ég mér ekki grein fyrir því hvernig það hagaði sinni starfsemi.
    Mér voru sýndar myndir af fyrri æfingum sem þá höfðu farið fram og fulltrúi varnarliðsins fullyrðir að mér hafi verið skýrt frá því, eins og segir í þessari skýrslu, að í æfingu 1989 mundu taka þátt 1000 hermenn. Það er spurning út af fyrir sig, ég er að lesa upp eins og stendur hér, að í þessum æfingum hafa tekið þátt miklu fleiri en 150 eða 300 hermenn því að varnarliðið hér heima hefur tekið þátt í þeim æfingum og það eru 3000 manns. Það er því ekki ljóst það sem hér stendur. En við skulum skilja það á þann veg sem varnarliðsmenn vilja, að þeir hafa ekki gert grein fyrir því að 1000 menn kæmu aðfluttir hingað til lands. En ég hef sagt og segi enn að þess minnist ég ekki.
    Skrifstofustjórinn hefur einnig staðfest að hann hafi aldrei farið með þetta mál á mitt borð, heldur ekki eftir að í varnarmálanefnd var þessa getið 30. ágúst. Hann hafi ekki komið til mín með málið á meðan ég var utanrrh. Það staðfestir einnig það sem ég hef áður sagt um þetta mál.
    En aðeins til að skýra nánar skal ég fara yfir þá liði þessarar greinargerðar sem varða umrædda æfingu. Það er í fyrsta lagi, eins og ég hef sagt, að þetta varalið er sett á fót 1984 í samráði við utanrrh. sem þá var. Ég vil taka fram að frá þeim tíma er engin skýrsla til í varnarmáladeild um þetta mál. Hún er ekki til. Ég hef spurt um það og hún liggur ekki fyrir. Í desember 1984 voru umræður í varnarmálanefnd um æfingar varnarliðsins 1985. Þar er ein málsgrein eða svo um þessar æfingar. Það er engin skýrsla til í varnarmáladeild um þær umræður sem fóru fram í varnarmálanefnd. Síðan fór fram æfingin 1985 og þá voru 150 varaliðsmenn fluttir til landsins. En svo segir: ,,En auk þess tók varnarliðið að sjálfsögðu þátt í æfingunni.`` Fjórða og kannski mikilvægasta atriðið í þessu máli, sem hér virðist hafa valdið einhverjum misskilningi, m.a. hjá síðasta hv. ræðumanni, er það að í október 1986 átti skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu, ekki núverandi skrifstofustjóri

heldur fyrrverandi, fund í Norfolk með yfirmönnum Atlantshafsflota NATO þar sem æfingar áranna 1989 og 1991 voru ræddar. Þá þegar var áætlað að um 1000 hermenn tækju þátt í æfingu sumarið 1989. Þarna segir ,,taka þátt`` sem er mjög ónákvæmt ef átt er við að flytja til landsins. Um þetta er engin skrifleg skýrsla eða minnisblað til í varnarmáladeild svo að það er misskilningur ef utanrrh. hefur verið skilinn svo. Hann getur skýrt það hér á eftir. Ég hygg að hann hafi verið að vísa til álíka minnisblaðs og ég fékk núna frá varnarmálanefnd. Það er búið hafa samband við þennan fyrrv. skrifstofustjóra sem upplýsir að hann hafi upplýst þáv. utanrrh. munnlega um þennan fund. Það er ekki til skrifleg skýrsla. Ég fékk enga skriflega skýrslu í hendur né fékk sá skrifstofustjóri varnarmáladeildar sem þá var skýrslu í hendur. Ég held að það sé full ástæða til að endurskoða samskiptin við varnarliðið þegar svona er að málum búið. Kannski er þetta eitthvert hernaðarleyndarmál, en það er þá lágmark að varnarmáladeild utanrrn. sé trúað fyrir skriflegri skýrslu um þetta mál. Hún liggur sem sagt ekki fyrir. Það er staðfest.
    Í nóvember 1986 er æfingaáætlunin 1987--1993 rædd í varnarmálanefnd og þar er þess getið í fundargerð að þetta hafi verið rætt. Nánar er ekki um það. 1987 er æfing sem 300 varaliðsmenn taka þátt í. Síðan kemur þessi fundur 1987, sem ég fer á, sem ég hef þegar greint frá og þarf ekki að endurtaka það. Ég fékk upplýsingar um það sem hefði verið gert og ætlað væri að hafa æfingar annað hvert ár. Ég veit ekki hvort það hefur komið fram, en í janúar 1988 var þáv. forsrh. Þorsteini Pálssyni boðið í heimsókn til varnarliðsins og segir hér: ,,Var honum gerð ítarleg grein fyrir m.a. æfingum varaliðsins.`` Hann getur sjálfsagt greint frá því sem honum var sagt þar. Það var ekki rætt í ríkisstjórninni. Síðan kemur 30. ágúst þar sem þessa er getið í fundargerð varnarmálanefndar að ráðgerð sé þessi æfing. Það kemur ekki inn til utanrrh. meðan ég sat þar.
    Síðan kemur að 25. okt. var utanrrh. og íslenskum embættismönnum m.a. gerð ítarleg grein fyrir fyrirhugaðri æfingu í sumar í aðalstöðvum
Atlantshafsbandalagsins í Norfolk. Núv. utanrrh. fór í heimsókn til Norfolk og hér segir að honum hafi þar verið gerð ítarleg grein fyrir þessum æfingum. 27. des. 1988 var utanrrh. og aðstoðarmanni hans auk skrifstofustjóra varnarmálaskrifstofu gerð allítarleg grein fyrir fyrirhugaðri æfingu í kynnisferð til varnarliðsins sem er kynnisferð svipuð og sú sem ég fór 1987. En utanrrh. hefur upplýst að engu að síður fékk hann ekki sundurliðaðar upplýsingar fyrr en sl. sunnudag. Hann getur greint nánar frá því sem fram fór á þessum fundum efa ég ekki.
    Þetta allt saman vekur menn til umhugsunar. Það er t.d. umhugsunarvert að á sama tíma og haldinn er hér leiðtogafundur í október 1987 eru þeir að ráðgera úti í Norfolk auknar heræfingar hér á landi. Mér finnst það ekki geðfellt. Það má hver áfellast mig fyrir það. Ég hef haldið að þessar viðræður

stórveldanna um afvopnun væru hinar alvarlegustu og ákveðnustu og markvisst stefnt að því að draga úr slíkum æfingum, en á sama tíma er verið að ráðgera þetta úti í Norfolk.
    Hvergi hér er þess getið að við höfum verið upplýstir um að þessar heræfingar ættu að hefjast í framhaldi af þjóðhátíðardegi okkar Íslendinga. Hér kemur ekki fram að þeir hafi sagt mér það eða núv. utanrrh. Það má aftur hver sem er lá mér það og kalla mig óvin NATO og varnarliðsins þó mér þyki það mikið smekkleysi hjá varnarliðnu og klaufaskapur eins og ég hef sagt.
    Ég hef farið yfir þessa hluti og svo sannarlega gefa þeir ástæðu til að athuga miklu betur hvernig þessi samskipti eigi að vera, a.m.k. krefjast þess að skriflegar skýrslur séu til um þessi mál sem fari frá einum embættismanni varnarmálaskrifstofunnar til annars og frá einum utanrrh. til annars. Ég vona að menn geti verið sammála um að það sé óhætt að krefjast þess af varnarliðinu að slíkt liggi fyrir. Sömuleiðis vona ég að menn séu sammála um að þótt um eitthvað hafi verið samið í október 1986 sé hverjum nýjum utanrrh. heimilt að endurskoða þá hluti. En mér finnst eins og varnarliðið gangi út frá því að þá hafi verið gengið frá þessum hlutum. Ég hef að vísu ekki fengið það staðfest, en ég hef spurt að því og mér finnst það liggja í loftinu eins og þeir líti jafnvel svo á.
    Skal ég svo ekki hafa um þetta fleiri orð. Ég hef farið yfir þær upplýsingar sem mér hafa verið veittar og eins og ég sagði hafa þær staðfest það sem ég hef áður sagt um málið.