Staða og rekstur fiskvinnslufyrirtækja
Mánudaginn 10. apríl 1989

     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Ég vil upplýsa hv. 5. þm. Austurl. um að gengið hefur verið nú þegar eftir öllum svörum við fsp. þar sem beðið er um skriflegt svar og öll ráðuneytin hafa skilað um það svari að þeirra sé að vænta mjög bráðlega. Það eru einungis tólf fyrirspurnir sem beðið er eftir skriflegu svari við og þar af eru flestar þeirra mjög nýlegar. En það er rétt hjá hv. þm. að nokkuð hefur dregist að svara þessari umræddu fsp.