Vegáætlun 1989-1992
Mánudaginn 10. apríl 1989

     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Mér láðist að geta þess í upphafi þessa fundar að kl. 3 hefst umræða utan dagskrár um kjaramál. Það er umræða sem hv. 18. þm. Reykv. hefur beðið um og sú umræða fer fram skv. síðari mgr. 32. gr. þingskapa sem þýðir að tími er ómældur.