Forseti (Guðrún Helgadóttir):
Eins og hér hefur komið fram fyrr á fundinum verður þessari umræðu um vegáætlun nú frestað því gefið hefur verið leyfi til umræðu utan dagskrár að beiðni hv. 18. þm. Reykv. um stöðuna í kjaramálum. Sú umræða fer fram skv. síðari mgr. 32. gr. laga um þingsköp og er því án tímamarka.