Staðan í kjaramálum
Mánudaginn 10. apríl 1989

     Júlíus Sólnes:
    Virðulegi forseti. Þessi umræða þykir mér öllu tímabærari heldur en sú langa umræða sem fór hér fram í síðustu viku, um hvort nokkur hundruð varaliðsmenn eða jafnvel rúmlega þúsund mundu koma til Íslands í júnímánuði til þess að trufla kríuna á Miðnesheiði. Það er þessi umræða sem ég hef verið að bíða eftir. Að við tökumst á um það hér í þinginu með hvaða hætti við eigum að reyna að finna leið út úr þeim ógöngum sem þjóðin er komin í í nánast öllum þeim málum sem varða efnahags- og fjármálastjórn landsins.
    Í raun og veru sjáum við fram á algjört skipbrot bæði í ríkisfjármálum og í efnahagsstjórn landsins. Allir gömlu stjórnmálaflokkarnir eru samsekir enda höfum við verið hér á hálfgerðri sjálfsmorðsbraut sl. tvo áratugi í þeim efnum. Það er svo sannarlega kominn tími til að við förum að reyna að átta okkur á því: Hvað ætlar þessi þjóð að gera? Á hverju ætlar hún eiginlega að lifa ef það er orðin staðreynd að undirstöðuatvinnuvegir þjóðarinnar, og þá fyrst og fremst sjávarútvegurinn sem útvegar okkur þær gjaldeyristekjur sem við þurfum að lifa á, eru reknir með tapi? Reyndar er ástandið orðið þannig, eftir því sem mér hefur verið tjáð af virtum endurskoðanda hér í bæ, að fjögur af hverjum fimm fyrirtækjum eru nú rekin með tapi um allt land. Og skyldi kannski ekki fimmta fyrirtækið þá vera banki eða einhver peningastofnun? Því það virðast vera einu stofnanirnar sem eru reknar með hagnaði í þessu þjóðfélagi. Og hvað á þetta eiginlega að ganga lengi? Hvenær verðum við hreinlega gjaldþrota eins og reyndar hæstv. forsrh. hefur svo oft vikið að, að við römbum hér á barmi þjóðargjaldþrots. Kannski hefur hann aldrei þessu vant á réttu að standa. Það er staðreynd málsins að það er að styttast í það að við verðum raunverulega gjaldþrota og verðum hreinlega teknir undir yfirstjórn einhvers annars aðila sem kannski getur kennt okkur hvernig á að fara með fjármál og hvernig á að stjórna atvinnumálum hjá þjóð sem okkar. Mér þykir ansi hart að þurfa að segja það en ein mjög merkileg tillaga, sem kom fram hjá einum ágætum vini mínum hér í síðustu viku, um hvernig leysa ætti efnahagsmál þjóðarinnar, gekk nánast út á það að við yrðum að skipta um þjóð í landinu.
    Við þingmenn Borgfl. höfum um langt skeið lýst áhyggjum okkar út af þeirri viðvarandi óstjórn og úrræðaleysi sem hefur ríkt í efnahags- og atvinnumálum þjóðarinnar um langt skeið. Ég verð að segja eins og er að sú ríkisstjórn sem nú situr er engin undantekning. Hún virðist endanlega hafa gefist upp við að leysa vanda atvinnulífsins eða finna leiðir til þess að tryggja afkomu heimilanna og atvinnufyrirtækjanna í landinu. Í því tilliti fetar hún dyggilega í fótspor fyrrv. ríkisstjórnar undir forsæti Þorsteins Pálssonar, hv. 1. þm. Suðurl. Það virðist nefnilega ekki skipta nokkru máli þótt nokkrum ráðherrum Sjálfstfl. hafi verið skipt út fyrir nokkra ráðherra Alþb. Stefnu- og úrræðaleysið er það sama.
    Í raun og veru má segja að stjórnarfarið eftir

alþingiskosningarnar 1987 hafi verið þjóðinni dýrkeypt. Í einhverju mesta góðæri sem þjóðin hefur lifað frá upphafi vega hefur gömlu stjórnmálaflokkunum, sem hér hafa farið með öll völd undanfarna áratugi, nánast tekist að eyðileggja atvinnulíf landsmanna. Eins og ég gat um áðan eru nær öll atvinnufyrirtæki þjóðarinnar rekin með tapi og útflutningsfyrirtækin svo og fyrirtæki í samkeppnisiðnaði eru komin á heljarþröm. Hvers konar stefna er það eiginlega, spyrjum við þm. Borgfl., sem hefur leitt til þess að útflutningsframleiðslan, hvort sem er í sjávarútvegi eða iðnaði, stendur engan veginn undir sér og þarf nánast að vera í gjörgæslu hjá bankastofnunum um þessar mundir? Eftir að allt eigið fé fyrirtækjanna er upp urið á hverju ætlar þessi þjóð eiginlega að lifa?
    Ég var staddur norður á Akureyri fyrir líklega tíu dögum síðan og átti þar ágætan fund með forráðamönnum Útgerðarfélags Akureyringa, sem lengi hefur verið talið eitt best rekna útgerðarfyrirtæki landsins og fiskvinnsluhluti þess fyrirtækis hefur ávallt verið talinn vera til fyrirmyndar. Það má því segja að þegar þeir ágætu forráðamenn þessa fyrirtækis upplýstu mig að nú væri virkilega tekið að harðna á dalnum, nú stefndi í taprekstur hjá því góða fyirtæki, ja, þá er fokið í flest skjól því þá er endanlega búið að setja punkt fyrir aftan rekstur fiskvinnslufyrirtækja á þessu landi a.m.k.
    Það er í þessu ljósi sem við verðum að skoða nýgerða kjarasamninga við opinbera starfsmenn. Eftir því sem ég hef fengið upplýst mun vera um að ræða 20% hækkun launa hjá mjög stórum hópum innan vébanda BSRB, þó svo að meðalhækkunin sé ekki meiri en 9--10%. En það eru einmitt þeir hópar innan vébanda BSRB sem hafa lægri launin, sem hafa fengið svo mikla hækkun launa. Þess vegna hljóta verkalýðssamtökin, launþegasamtökin á hinum frjálsa vinnumarkaði að hugsa sem svo: Ja, við hljótum að eiga rétt á, við eigum kröfu til þess að fá svipaðar launahækkanir. Þess vegna spyr ég: Hvernig eiga fiskvinnslufyrirtækin, þegar eitt besta og virtasta fiskvinnslufyrirtæki landsins telur að það stefni nú óðum í bullandi taprekstur, að taka á sig 20% launahækkun hjá sínu starfsfólki? Það væri mjög fróðlegt að fá svör við þessum spurningum hjá ráðherrum hæstv. ríkisstjórnarinnar.
    Í Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins, sem birtist á sunnudaginn var, er mjög
vikið að þeirri efnahagsstjórn og þeirri pólitísku stjórn sem hefur verið viðvarandi í landinu í eina tvo áratugi. Þar eru mjög athyglisverðar hugleiðingar um hvað hefur raunverulega gerst hér á undanförnum tveimur áratugum. Ég held að það væri mjög fróðlegt fyrir þingheim að ég læsi upp þessar hugleiðingar vegna þess að það er engu líkara en að sá sem ritar þetta bréf hafi gengið í smiðju hjá þingflokki Borgfl. ( Forseti: Nú vil ég minna hv. þm. á að klukkan er orðin eina mínútu yfir fimm og vil því spyrja hann hvort upplestur úr Reykjavíkurbréfi megi ekki fara fram á framhaldsfundi í kvöld.)