Friðjón Þórðarson:
Virðulegi forseti. Þingheimur hefur nú um stund fjallað um samgöngumál, en það er sá málaflokkur sem er flestum þingmönnum allhjartfólginn og hugleikinn eins og hér hefur komið fram. Til umræðu er till. til þál. um vegáætlun fyrir árin 1989--1992 en hún er sett saman skv. III. kafla vegalaga, nr. 6 frá 1977.
Um heildarfjármagn það sem verja á til vegamála á þessu tímabili er fjallað á bls. 1 og um það hafa ræðumenn talað nokkuð. Það er leitt til þess að vita að þar skuli fjármagn, sérstaklega til vegaframkvæmda árið 1989 vera skert verulega þar sem færðar eru beint á ríkissjóð 682 millj. kr. og raunar, eins og nokkrir þingmenn hafa gert grein fyrir, að það er meira en þessi fjárhæð sem vegaféð skerðist um. Það skerðist einnig um þær 180 millj. sem skipt var í fyrra en virðast nú týndar um stundarsakir. Þarna hafa því alls verið lagðar til hliðar 862 millj. kr. en fyrir þá fjárhæð hefði mátt koma allmiklu í framkvæmd af nauðsynlegustu málum.
Langtímaáætlun um vegagerð var mikið rædd hér áður og hefur verið mikið rædd síðasta áratug. Menn gerðu sér snemma grein fyrir því að þessi mál þurfti að taka skipulegum tökum og til nokkurs var að vinna. Í till. til þál. um gerð langtímaáætlana um vegagerð frá 1980 er þegar bent á að stefnt skuli að þeim markmiðum sem þar eru talin upp í fjórum töluliðum: að vegir hafi fullt burðarþol allt árið, að vegir séu byggðir upp úr snjó eftir því sem unnt er, að bundið slitlag sé lagt á fjölfarnari vegi og að tekið sé tillit til umferðaröryggis við uppbyggingu veganna. Þá þegar gerðu þingmenn sér fulla grein fyrir því að uppbygging þjóðvegakerfisins og lagning bundins slitlags á fjölfarnari hluta þess er meðal brýnustu verkefna þjóðfélagsins. Mjög margar framkvæmdir á þessu sviði eru einnig arðsamar í besta lagi svo að óvíða mun fjárfesting skila meiri raunvöxtum.
Samstaða alþingismanna var líka óvenjugóð um þessi mál öllsömul. Það var rætt um að verja ákveðinni prósentutölu af þjóðarframleiðslu til þessara verka, þ.e. 2,4% af þjóðarframleiðslu frá og með árinu 1985. Sú viðmiðun byggði að vísu á eldri grunni um þjóðarframleiðslu. En síðan mun hafa verið breytt um aðferðir við útreikning þannig að nú er upphaflegi grunnurinn 86,7% af núverandi grunni og nýtt hlutfall af þjóðarframleiðslu miðað við sömu upphæð er því 2,08%. Eigi að síður er langt frá því að þetta hlutfall náist og að sönnu hefur það aldrei náðst. En það er nú svo með margt takmarkið sem menn setja sér að það næst ekki til fulls þó að menn haldi áfram að miða við það og keppa að því.
Þessi skerðing vegafjár sem ég hef nú minnst á er ekki til fyrirmyndar enda gagnrýnd af alþingismönnum. Hennar er að vísu getið hér í kafla í nýjum lánsfjárlögum fyrir árið 1989, en sá kafli er lítt til fyrirmyndar í lagasetningu. Það er hinn svokallaði ,,þrátt fyrir``-kafli, II. kafli lánsfjárlaga. Og þar segir einmitt í 31. gr. að þrátt fyrir ákvæði laga nr. 19 frá 1986, um fjáröflun til vegagerðar, skulu
680 millj. kr. af hækkun bensíngjalds og þungaskatts renna í ríkissjóð. Það er svo önnur saga að ég held að við alþm. ættum að taka til sérstakrar athugunar að þessi kafli sem ég nú minntist á úr nýjum lánsfjárlögum er okkur til lítillar sæmdar.
Í þessari till. til þál. er getið um nokkur nýmæli. Það er m.a. hér á bls. 28 vikið að því sem nefnt er stórverkefni. Þar er lagt til að tekinn verði upp nýr liður innan stofnbrauta, stórverkefni, sem skiptist til fjármögnunar framkvæmda í jarðgöngum, umferðarmannvirkja á höfuðborgarsvæðinu og til stórbrúa og fjarðaþverana. Það eru engin smáverkefni sem þarna er minnst á og til þeirra þarf mikið fé. Og sannleikurinn er sá að í vegamálum bíða okkar mörg verkefni, smá og stór, eins og hér hefur komið fram í máli manna. M.a. sagði hv. 2. þm. Norðurl. v.: Það bíða verkefni í lágsveitum, það bíða verkefni á fjallvegum, það bíða verkefni í brúargerðum o.fl. o.fl. Og þannig mætti lengi upp telja.
Hv. 7. þm. Reykn. minntist á hringveginn og að það þyrfti að taka til hans stórlán og framkvæma það sem eftir væri að vinna við hann. Það er sjálfsagt alveg rétt hjá hv. 7. þm. Reykn. að þörf er enn á miklum átökum við hringveginn, en þörfin er miklu víðar. Hv. þm. minntist sérstaklega á valddreifingu sem þyrfti að ástunda þegar um héraðavegi væri að ræða. Þar mætti ekki lúta neinni miðstýringu. Það þyrfti að vera heimastjórn á héraðsvegum eins og hann komst að orði. Mér finnst að þessi hv. þm. hafi talað af lítilli þekkingu um þessi mál vegna þess að eins og við vitum, flestir alþingismenn, hefur stjórn sýsluvega og sýsluvegaframkvæmda verið í höndum heimamanna, a.m.k. hingað til, í samráði við starfsmenn Vegagerðarinnar. Og ég tel að það hafi farið mjög vel á því, hvað sem það verður lengi, því að nú vitum við að búið er að leggja niður sýslunefndir. Það er verið að tína orðið sýslunefnd út úr lagasafninu. Það er mikið verk, það er ekki nærri búið. Ætli sýsluvegasjóðum verði ekki næst útrýmt? En eigi að síður tel ég nauðsynlegt að stjórn á slíkum heimaverkefnum sem ég nú nefndi sé í höndum heimamanna í samráði við Vegagerðina, eins og verið hefur.
Það væri ástæða til þess að ræða hér um snjómokstur og fleira eftir það
tíðarfar sem verið hefur það sem af er þessu ári. Hv. 2. þm. Vestf. minntist nokkuð á þetta mál og gat þess m.a. að hægt væri að byggja upp veg um Dali frá Ströndum og Norðurlandi til Faxaflóasvæðisins. Þetta er hverju orði sannara. Það er langt síðan bent var á þessa ágætu vetrarleið þar sem Laxárdalsheiði er aðeins í 200 metra hæð yfir sjó og Heydalur 165 metra yfir sjávarmáli.
Það hefur svo komið hér fram að jafnvel hv. stjórnarsinnar í fjvn. eru ekki að öllu leyti sammála um þessa vegáætlun. Hv. 2. þm. Vestf. vildi þó ekki gera mikið úr því og teldi að þar á bæ ríkti að mér skildist full sátt og samlyndi a.m.k. á milli þingmanna Framsfl. í fjvn. En hv. 1. þm. Vesturl. benti á að hann gæti ekki fallist á þá aðgerð að taka um 200
millj. af nýbyggingarfé eða almennu framkvæmdafé þessa árs og setja í Ólafsfjarðarmúla þó að hann teldi á hinn bóginn þá framkvæmd mjög nauðsynlega. Þetta er álíka fjárhæð, 200 millj., og þingmenn Vesturlands vanhagar um til þess að byggja upp veginn um Mýrar frá Borg að Hítará.
Það er rætt um einhvers staðar í þessari grg. að lögð hafi verið sérstök áhersla á bundin slitlög, þ.e. lögð hefur verið áhersla á að láta þá fjárvöntun sem ég hef gert að umtalsefni ekki bitna á bundnum slitlögum. Það er auðvitað mjög gott að hafa þessa viðmiðun að leiðarljósi, en eigi að síður höfum við kynnst því og gátum vel rifjað upp núna á vetrinum sem er að líða að það er margt sem þarf að gera fleira en að leggja vegi bundnu slitlagi þó að það sé mjög nauðsynlegt og æskilegt.
Ég ætla ekki að eyða meiri tíma í að ræða um vegáætlunina að þessu sinni. Það er margt sem á eftir að segja um hana og margt sem á eftir að vinna að þessum málum. En við verðum að reyna að grandskoða þessa hluti, vinna úr því sem fram undan er og borið hefur verið hér á borð fyrir okkur. Fjalla vandlega um þá vegáætlun sem hér er til umræðu og beina sjónum okkar fram á veginn.