Vegáætlun 1989-1992
Mánudaginn 10. apríl 1989

     Landbúnaðarráðherra (Steingrímur J. Sigfússon):
    Ég tel mig ekki þurfa að lengja þessa umræðu með mörgum orðum þar sem hér hefur fyrst og fremst farið fram málefnaleg umræða og hreinskiptin skoðanaskipti um efni þessarar áætlunar, en ekki verið mikið um beinar spurningar til mín, enda kemur það vandasama hlutskipti aðallega í hlut fjvn. að fjalla um þau helstu álitamál sem að sjálfsögðu eru uppi við afgreiðslu vegáætlunar nú eins og endranær. Það hefur verið almennur tónn í þessari umræðu að gjarnan vildu menn hafa meira fé til að ráðstafa til vegamála, um það eru held ég allir, a.m.k. flestir og ég held bara allir, sammála sem hér hafa talað. Það kann hins vegar að skipta mönnum nokkuð í hópa hvernig menn meta aðstæðurnar til þess, bæði nú og fyrr, að sækja það fjármagn til framkvæmda sem menn gjarnan vildu sjá fara til þessara verkefna eins og reyndar til fleiri hluta. Ég tek að sjálfsögðu undir það og fagna hverjum þeim liðsmanni sem leggur því lið að hér sé á ferðinni einhver allra mikilvægasti framkvæmdaflokkur opinberra framkvæmda í landinu sem mjög æskilegt sé að geta gert sem myndarlegast við.
    Ég hygg þó að við skyldum ekki, Íslendingar, vanmeta það að mikið hefur áunnist og ég nefndi í minni fyrri ræðu að það hefur þó þrátt fyrir allt tekist að leggja um 2000 km af vegakerfi landsmanna bundnu slitlagi og hafa þær framkvæmdir að mestu leyti farið fram á einum áratug.
    Varðandi það efni sem hér hefur verið nefnt af mörgum og var reyndar sérstaklega gert að umtalsefni af mér í upphafi, að því miður varð það að ráði vegna erfiðra aðstæðna í ríkisfjármálum á þessu sl. hausti að taka hluta af mörkuðum tekjustofnum vegagerðar, þ.e. sérstaka hækkun sem gripið var til á þeim tekjustofnum, og láta renna í ríkissjóð, vil ég upplýsa að við þá afgreiðslu í hæstv. ríkisstjórn var gerð bókun sem lýtur að því að hér er um einstaka afgreiðslu að ræða bundna yfirstandandi ári og ekki er ætlunin að hún verði til frambúðar. Á grundvelli þessarar bókunar og vilja ríkisstjórnarinnar er vegáætlun nú þannig sett upp að þegar á næsta ári renna markaðir tekjustofnar að fullu og öllu til framkvæmda í vegamálum og ég vil gefa þá yfirlýsingu sem samgrh. að ég mun sjá til þess að við þessa afgreiðslu ríkisstjórnarinnar verði staðið verði það í mínu valdi.
    Ég vil svo að lokum ítreka að ég legg á það mikla áherslu að hv. fjvn. gefi sér sem bestan tíma til að fara ítarlega yfir þetta mál. Ég get að vísu ekki fallist á að vegáætlun nú sé illa unnin venju fremur og hún beri meiri keim af sleifarlagi eða leti samgrh. en áður hefur tíðkast eins og mér fannst aðeins brydda á í máli eins hv. ræðumanns. Ég vil a.m.k. upplýsa það, hafi einhver haldið að það væri öðruvísi, að samgrh. hefur ekki legið í leti í vetur. Það getur vel verið að honum hafi verið mislagðar hendur, en hann hefur þó verið að reyna að vinna vinnuna sína. Ef eitthvað er hér um að sakast er það við ráðherrann en ekki

embættismenn, undir það tek ég.
    Ég vil líka leyfa mér að vona að um þetta mál geti að lokum eftir vandaða meðferð í fjvn., þar sem taka verður m.a. á þeim álitamálum sem hér hafa verið nefnd, tekist um þetta efni og afgreiðslu vegáætlunar sem allra best og mest samstaða og þar á ég við almenna samstöðu óháð flokkaskipan á Alþingi og landfræðilegum aðstæðum. Það hefur löngum verið helst gæfa manna á þessu sviði sem auðvitað annars staðar þar sem svo vel tekst til hafi menn getað hafið sig upp yfir pólitíska eða landfræðilega flokkadrætti og staðið sameiginlega að málamiðlun og niðurstöðu í þessu efni eins og öðrum. Vegáætlun fyrir yfirstandandi ár tekur eins og þegar hefur verið nefnt mið af þröngum aðstæðum og erfiðleikum í ríkisbúskapnum, en vonandi bregður þar til betri tíðar og við getum fagnað því að á næstu árum höfum við meira til skiptanna í þennan mikilvæga málaflokk og um það eru örugglega allir sammála að sé full þörf á.